Stjarnan - 01.07.1950, Side 2
50
STJARNAM
gáfum og yfirburðum gæddir en þeir.
Þeirri skoðun hefur verið haldið fram,
að þeir einir, er framúrskarandi gáfur
hafa, eigi að helga hæfilegleika sína þjón-
ustu guðs. Margir ætla, að gáfur séu að
eins gefnar nokkrum flokki manna, er
standi að því leyti betur að vígi en allir
aðrir, er sneyddir séu hlutdeild í þeim og
séu fyrir því eigi kallaðir til að taka þátt
i erfiðismununum né laununum. En eigi er
því þannig lýst í dæmisögunni. Þegar hús-
bóndinn kallaði þjóna sína, fékk hann
hverjum þeirra sitt verk að vinna.
Vér getum unnið lítilmótlegustu
skyldustörf lífsins með kærleiksanda „eins
cg þau séu fyrir drottin.“ Ef kærleikur
guðs er í hjartanu, þá mun hann lýsa sér
í líferninu. Krists sæta angan mun vera
umhverfis oss og áhrif vor munu göfga
aðra og verða þeim til blessunar.
Þú átt ekki að bíða eptir meiri háttar
tilefni né krefjast óvenjulegra hæfileg-
leika, áður en þú ferð að vinna fyrir guð.
Þú þarft eigi að hirða um, hvað heimurinn
muni hugsa um þig. Ef dagfar þitt ber
vott um hreinleika og einlægni trúar þinn-
ar og aðrir verða sannfærðir um, að þú
viljir þeim vel, þá verða erfiðismunir
þínir eigi með öllu til ónýtis.
Hinn lítilmótlegasti og fátækasti af lær-
isveinum Jesú getur verið Öðrum til bless-
unar. Vera má að menn sjái ekki sjálfir, að
þeir komi neinu sérstöku góðu til leiðar,
en þeir geta komið bylgjum blessunarinnar
af stað með áhrifum sínum, er þeir þekkja
eigi sjálfir, og þessar bylgjur verða æ
stærri og víðtækari; en sú blessun, sem
af þessu leiðir, verður ef til vill aidrei
augljós fyr en á hinum mikla og síðasta
reikningsskapardegi. Þeir vita ekki, að þeir
eru mikið afreksverk að vinna. Þess er
eigi krafizt af þeim, að þeir þreyti sig á
því að vera áhyggjufullir um arðinn af
starfi sínu. Þeir eiga að eins að starfa í
kyrþey og með trúmennsku að því verki,
sem forsjón guðs hefur fengið þeim; þá
lifa þeir ekki til ónýtis. Mynd Krists í
sálum sjálfra þeirra mun ná meiri og meiri
þroska. Þeir eru samverkamenn guðs í
þessu lífi og með því verða þeir undirbúnir
undir æðra starf og óblandna gleði hins
komandi lífs.
E. G. W.
„Ef þér elskið mig munuð
þér halda boðorð mín"
Það eru dýrmæt einkaréttindi sem vér
höfum að geta sjálfir lesið Guðs orð í
hans heilögu bók, svo vér þurfum ekki að
leita til ánnara til að þekkja skyldu vora
gagnvart Guði og meðbræðrum vorum.
í 2. Mós. 20. kapítula 3-17 versi eru Guðs
10 boðorð skrifuð niður. Þau eru lampi
fóta vorra og ljós á vegum vorum. Fjöldi
fólks leitar allra hugsanlegra undanbragða
til að reyna að afsaka sig frá að viðurkenna
og halda þessi blessuðu boðorð. En Jesús,
hann, sem er vor eina sáluhjálparvon,
hann, sem dó fyrir vorar syndir, dó fyrir
vorar yfir troðslur Guðs boðorða, hann
segir: „Þangað til himin og jörð líða undir
lok, mun ekki einn smástafur eða einn
smákrókur lögmálsins undir lok líka unz
alt er komið fram.“ Matt. 5:18. Himin og
jörð eru hér ennþá, og Guðs lögmál i
gildir samkvæmt vitnisburði Guðs Sonar.
Páll postuli segir: „Umskurnin er ekk-
ert og yfirhúðin ekkert, heldur það að
varðveita boðorð Guðs.“ 1. Kor. 7:19.
Jóhannes postuli segir: „Því að í þessu
birtist elskan til Guðs að vér höldum hans
boðorð, og hans boðorð eru ekki þung“.
1. Jóh. 5:3.
Jakob postuli segir: „Þótt einhver héldi
alt lögmálið en hrasaði í einu atriði, þá
er hann orðinn sekur við öll boðorð þess,
því sá, sem sagði: þú skalt ekki hórdóm
drýgja, hann sagði líka: Þú skalt ekki
morð fremja. En þó að þú drýgir ekki
hór, en fremur morð, þá ertu orðinn yfir-
troðslumaður lögmálsins. Talið og breytið
eins og þeir er dæmast eiga eftir lögmáli
frelsisins.“ Jak. 2:10-12.
Hér talar postulinn um 10 borðorðin og
vitnar í tvö þeirra. Allir þessir Guðs
menn, Páll, Jakob og Jóhannes störfuðu
og skrifuðu þessi bréf sín fleiri árum eftir
upprisu og himnaför Krists. Þeir álitu að
Guðs boðorð væru í gildi.
Hvernig sunnudagshelgihaldið komst
inn í kristnina skiftir minstu, en hitt er
alvarlegra að menn hafa ekkert Guðs boð-
orð fyrir að halda sunnudaginn heilagan,
enga aðvörun Guðs móti því að brjóta
hann, og ekkert fyrirheit Guðs fyrir að
halda hann heilagan. Svo eftir þessu eru