Stjarnan - 01.07.1950, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.07.1950, Blaðsíða 3
STJARNAN 51 það aðeins manna boð og reglur, sem hafa komið á sunnudagshelginni og haldið henni við. Jesús segir: „Lýður þessi heiðrar mig með vörunum en hjarta þeirra er langt í burtu frá mér, og til einkis dýrka þeir mig er þeir kenna lærdóma sem eru manna boðorð“. Matt. 15:9. Þetta fer að verða alvarlegt. Endir allra hluta er nálægur. Dómarinn stendur fyrir dyrunum, og hinn réttláti dómari getur ekki gefið trúrra þjóna verðlaun þeim, sem hafnað hafa Jesú frelsara sínum eða ekki leyft honum að frelsa sig frá syndinni sem er yfirtroðsla Guðs boðorða. Getur Jesús kannast við sem sína lærisveina þá, sem með vitund og vilja hafna Guðs boðorðum, en halda fast við manna boðorð? Þeir eiga á hættu að heyra,_Jesúm segja til þeirra: „Farið frá mér þér sem fremjið lögmáls- brot.“ Matt. 7:23. Hvar stendur þú? Hefir þú meðtekið Krist og kraft hans til að sigra synd og freistingar? Heldur þú Guðs heilögu boð- orð? Ert þú Guði trúr í smáu og stóru svo hinn réttláti dómari geti á þeim mikla degi gefið þér trúrra þjóna verðlaun? Gef Guði hjarta þitt heilt og óskift. Taktu ákvörðun þína í dag, það getur orðið of seint á morgun. --S. Johnson XIV. Réttarhald á himnum Hreinsun helgidómsins eða dómsdagur. I. Frelsun frá synd fyrir blóðfórn. „Samkvæmt lögmálinu er nálega alt sem hreinsast með blóði, og eigi fæst fyrir- gefning án úthellingar blóðs.“ Hebr. 9:22. 1. „Líf likamans er í blóðinu, ég hef gefið yður það á altarið til þess að með því sé friðþægt fyrir yður; því að blóðið friðþægir með lífinu.“ 3. Mós. 4:3-5. 2. Abel fórnaði blóði. „Abel færði fórn af frumburðum hjarðar sinnar.“ 1. Mós. 4:315. 3. Nói og Abraham fórnuðu blóði. 1. Mós. 8:20, og 22:13. 4. Skepnur sem fórnað var voru tákn- mynd uppá Krist. (a) Jesús fórnaði líkama sínum. Hebr. 10:4-5. „Sjá Guðs lambið sem ber synd heimsins.“ Jóh. 1:29. (b) Hans blóð var úthelt fyrir oss. „Þetta er sáttmála blóð mitt, sem úthelt er fyrir marga til syndafyrir- gefningar.“ Matt. 26:28. „Fyrir hans benjar urðum vér heilbrigðir.“ Jes. 53:5. II. Frá Móses til Krists voru fórnirnar bornar fram í helgidóminum. 1. „Þeir skulu búa mér helgidóm að ég búi mitt á meðal þeirra.“ 2. Mós. 25:8. 2. „Henni samkvæmt eru fram bornar bæði gáfur og fórnir.“ Heb. 9:9. III. Helgidómurinn hafði fremri og innri hluta, auk forgarðsins. 1. Hið heilaga. „Tjaldbúð var gjörð, hin fremri, og í henni voru bæði ljósa- stikan, borðið og skoðunarbrauðin, og heitir hún „hið heilaga“. Heb. 9:2. (a) „Og hann setti upp gullaltarið inn í samfundatjaldinu fyrir framan fortjaldið“. 2. Mós. 40:26. (b) „Þá ganga prestarnir stöðugt inn í fremri tjaldbúðina og inna af hendi þjónustu athafnirnar.“ Heb. 9:6. 2. Hið allra helgasta. „Þú skalt . . . flytja sáttmálsörkina þangað inn fyrir fortjaldið, og skal fortjaldið skilja milli hins heilaga og hins allra helgasta hjá yður.“ 2. Mós. 26.33. (a) í örkinni voru lögmálstöflurnar. „Þá ritaði hann á töflurnar . . . tíu boðorðin . . . síðan fékk Drottinn mér þær. Þá sneri ég á leið og gekk ofan af fjallinu, og lagði töflurnar í örk- ina.“ 5. Mós. 10:4-5. (b) Yfir örkinni var náðarstóliinn. „Og þú skalt setja lokið ofan yfir örkina, og niður í örkina skalt þú leggja sáttmálið sem ég mun fá þér.“ 2. Mós. 25:21. (c) Guð birtist þar. „Og þar vil ég eiga samfundi við þig og birta þér ofan af arkarlokinu millum beggja kerúbanna, sem stánda á sáttmáls- örkinni, alt það, er ég býð þér að flytja ísraelsmönnum." 2. Mós. 25:21-22. (d) í því allra helgasta var guðs- þjónusta aðeins einu sinni á ári. „Inn í hina innri tjaldbúð gengur æðsti

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.