Stjarnan - 01.07.1950, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.07.1950, Blaðsíða 4
52 STJARNAN presturinn einn, einu sinni á ári.“ Heb. 9:7. IV. Jarðneski helgidómurinn er eftir- mýnd hins himneska. „Því Kristur gekk ekki inn í helgidóm, eftirmynd hins sanna helgidóms, heldur inn í sjálfan himininn, til þess nú að birtast fyrir Guðs augliti, oss til heilla.“ Heb. 9:24. 1. Hinn jarðneski helgidómur var eftir- mynd hins himneska. „Móse fékk bending um frá Guði er hann var að koma upp tjaldbúðinni ,því gæt þess, segir hann, að þú gjörir alt eftir þeirri fyrirmynd, sem þér var sýnd á fjallinu.“ Heb. 11:5. 2. Báðir helgidómar höfðu sama úthún- að. Jóhannes sá í musterinu á himni ljósastikur, gullaltari og sáttmáls- örkina. Op. 1:12-13. Op. 8:3-4 og 11:19. 3. Kristur er æðsti prestur hins himn- eska helgidóms. „Vér höfum þann æðsta prest, er settist til hægri hand- ar hástóls hátignarinnar á himnum, helgiþjón helgidómsins og tjaldbúð- arinnar, hinnar sönnu, sem Drottinn reisti, eigi maður. Heb. 8:1-2. V. Jarðneski helgidómurinn var hreins- aður einu sinni á ári. 1. Það var kallaður friðþœgingardagur. „Tíunda dag hins sjöunda mánaðar er friðþægingardagurinn, skuluð þér þá halda helga samkomu og þjá yður og færa Drotni eldfórn.“ 3. Mós. 23.27. 2. Friðþægingin var hæði fyrir helgi- dóminn og fólkið. Hann skal „frið- þægja þannig fyrir helgidóminn vegna óhreinleika ísraelsmanna, og vegna misgjörða þeirra.“ „Á þessum degi skal friðþægt verða fyrir yður til að hreinsa yður. Af öllum synd- um yðar skuluð þér hreinir vera fyrir Drotni.“ 3. Mós. 16.-16-30. 3. Þetta var árlegur dómsdagur. „Hver sá er eigi þjáir sig (auðmýkir sig) þennan dag, skal upprættur verða úr þjóð sinni.“ 3. Mós. 23:29. VI. Hinn himneski helgidómur átti líka að verða hreinsaður. 1. Þjónusta jarðneska helgidómsins endaði þegar Jesús dó. „Jesús kallaði hárri röddu og gaf upp andann. Og sjá, fortjald musterisins rifnaði í tvent, frá ofanverðu niður í gegn.“ Matt. 27:50-51. 2. „Kristur gekk ekki inn í hélgidóm höndum gjörðan . . . heldur inn í sjálfan himininn, til þess nú að birt- ast fyrir augliti Guðs oss til heilla.“ Heb. 9:24. 3. Árið 1844 kom tíminn til að hreinsa hinn himneska helgidóm. Dan. 8:14. 4. Þetta var hinn mikli dómsdagur sem fyrirmyndaður var með friðþæging- ardeginum í því allra helgasta í hin- um jarðneska helgidómi. 5. Það er engin synd á himnum, en það en það er synda registur þar. „Eg sá þá dauðu stóra og smáa standa frammi fyrir hásætinu, og bókunum var lokið upp . . og hinir dauðu voru dæmdir eftir því, sem ritað var í bókunum, samkvæmt verkum þeirra.“ Op. 20:12. 6. „Dómendurnir settust niður og bók- unum var flett upp.“ Dan. 7:10. 7. Jóhannes sá sáttmálsörkina í musteri himinsins. „Reiði þín kom og sá tími er dauðir skulu dæmdir verða, og tíminn til að gefa laun þjónum þín- um.“ „Og musteri Guðs, opnaðist það, sem á himni er, og sáttmálsörk hans birtist í musteri hans.“ Op. 11:18-19. 8. Þegar hin síðasta dómsályktun hefir verið uppkveðin, þá kemur Jesús brátt á eftir. „Hinn rangláti haldi á- fram að fremja ranglæti, og hinn saurugi saurgi sig áfram, og hinn réttláti stundi áfram réttlæti og hinn heilagi helgist áfram. Sjá ég kem skjótt og launin hefi ég með mér til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er.“ Op. 22:11-12. 9. Boðskapur um dóminn á að verða fluttur öllum þjóðum til aðvörunar áður en Jesús kemur. „Eg sá annan engil fljúga um miðhiminn og hélt hann á eilífum fagnaðarboðskap til að boða þeim, sem á jörðinni búa, sérhverri þjóð og kynkvísl, tungu og lýð, og sagði hárri röddu: Óttist Guð og gefið honum dýrð, því komin er stund dóms hans, og tilbiðjið þann, sem gjört hefir himininn og

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.