Stjarnan - 01.07.1950, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.07.1950, Qupperneq 5
STJARNAN 53 jörðina og hafið og uppsprettur vatnanna.“ Op. 14:6-7. VII. í réttarsalnum. 1. Guð er yfirdómarinn. „Eg horfði þar til stólar voru settir fram og hinn aldraði settist niður . . . þúsundir þúsunda þjónuðu honum. . . . dómendurnir settust niður og bókunum var flett upp.“ Dan. 7:9-10. 2. Englar og öldungar voru umhverfis. „Og ég sá og ég heyrði raust margra engla hringinn í kring um hásætið, og verurnar og öldungana tala þeirra var tíu þúsundir tíu þúsunda og þúsundir þúsunda. Op. 5:11. 3. Jesús er talsmaður vor. „Börn mín, þetta skrifa ég yður til þess að þér skulið ekki syndga, og jafnvel þó einhver syndgi, þá höfum vér árnað- armann hjá föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta." 1. Jóh. 2:1. VIII. Þrefaldur vitnisburður. 1. Guð þekkir alt. „Augu drottins er . alstaðar vakandi yfir vondum og góðum.“ Orðskv. 15:3. 2. Bœkurnar á himnum. „Og bókunum var lokið upp.“ Op. 20:12. (a) Lífsins bók. „Allir þeir sem á jörðunni búa munu tilbiðja það, hver og einn sá er eigi á nafn sitt ritað í lífsbók lambsins.“ Op. 13:8. „Hjálpa þú þeim því þær börðust með mér við boðun fagnaðar erindi- sins ásamt Klemens og öðrum sam- verkamönnum mínum, og standa nöfn þeirra í lífsins bók“. Fil. 4:3. (b) Minnisbók. „Drottinn gefur gæt- ur að því og heyrir það og frammi fyrir augliti hans er rituð minnisbók fyrir þá sem óttast Drottinn og virða nafn hans.“ Mal. 3:16. 3. Englarnir. „Sjáið til að þér ekki fyr- irlítið neinn af þessum smælingjum, því ég segi yður, að englar þeirra á himni sjá ávalt auglit föður míns, sem er á himni.“ Matt. 18:10. IX. Um hvað fjallar dómurinn? 1. Verk vor. „Hinir dauðu voru dæmd- ir . . . samkvæmt verkum þeirra.“ Op. 20-12. 2. Orð vor. „Sérhvert ónytju orð er mennirnir mæla, fyrir það skulu þeir á dómsdegi reikning lúka, því af orðum þínum muntu verða rétt- lættur, og af orðum þínum muntu verða sakfeldur.“ Matt. 12:36-37. 3. Hugsanir vorar. „Dæmið ekki neitt fyrir tímann fyr en Drottinn kemur, hann sem mun leiða það í ljós sem myrkrunum er hulið og opinbera ráð hjartnanna." 1. Kor. 4:5. „Drottinn lítur á hjartað“. 1. Sam. 16:17. „Manninum þykja sínir vegir- hreinir, en Drottinn prófar hugar- þelið.“ Orðskv. 16:2. 4. Alt sem hulið er. „Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm, yfir öllu því sem hulið er, hvort sem það er gott eða ílt.“ Préd. 12:14. X. Grundvallarlögin sem dæmt verður eftir. Hið 10 boðorða lögmál Guðs. „En verðið gjörendur orðsins, og eigi aðeins heyrendur, svíkjandi sjálfa yður. . . . En sá sem skygnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það, og er ekki orðinn gleyminn heyrandi, heldur gjörandi verksins, hann mun sæll verða af fram- kvæmdum sínum.“ Jak. 1:22-25. „Því að þótt einhver héldi alt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess. Því sá, sem sagði þú skalt ekki hórdóm drygja, hann sagði líka: Þú skalt ekki morð fremja, en þó að þú drýgir ekki hór, en fremur morð, þá ertu orðinn yfirtroðslumaður lögmálsins. Talið því og breytið eins og þeir, er dæmast eiga eftir lögmáli frelsis- ins.“ Jak. 2:10-12. „Vér skulum hlýða á niðurlagsorðið í því öllu: Óttastu Guð og haltu h^ns boð- orð, því það á hver maður að gjöra, því Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm, yfir öllu því sem hulið er, hvort sem það er gott eða ilt.“ Préd. 12:13-14. Hvernig mun ég standa í dóminum? Allir verða að mæta. Allir hafa syndgað. Laun syndarinnar er dauði. Vér verðum að játa syndir vorar til að ta þær fyrirgefn- ar. Vér verðum að snúa frá syndinni. Synd er yfirtroðsla Guðs boðorða. Boðorð hans verða lögð til grundvallar fyrir dóminum. Jesús kom til að frelsa syndara. Hann verð- ur dómarinn. Orð hans eru hæðsta réttar úrskurður. „Ekki er hjálpræði í neinum öðrum, því eigi er heldur annað nafn und- ir himninum, er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða.“ Post. 4:12.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.