Stjarnan - 01.07.1950, Page 6

Stjarnan - 01.07.1950, Page 6
54 STJARNAN Jesús kallar: Kom til mín Járnbrautarvélin bilaði, svo farþegarn- ir urðu að bíða 1 litlu þorpi í Tennessee fjöllunum meðan gjört var við hana. Mað- ur og ung stúlka fóru inn í lélega stofu á litlu veitingahúsi. Þar í horninu stóð gamalt hljóðfæri. Enginn var þar inni nema gráhærð gömul kona sem virtist eiga þar heima. Úti var myrkur og rigning. Fyr- ir utan gluggann stóðu fáeinir menn og voru að reykja. Unga stúlkan gekk yfir að hljóðfærinu og spilaði eitt eð tvö dans- lög til að stytta tímann, svo byrjaði hún á sálms versi. Nú kom gráhærða konan yf- ir til hennar og sagði hálf hikandi. „Eg var að hugsa ef þú syngir fallegan sálm, þá gæti það ef til vill hjálpað drengjunum þarna úti. Þeir eru langt í burt frá heimil- inu og mæðrum sínum, og líklega heyra ekki mikið af góðum söng.“ Unga stúlkan fór nú að syngja og spila og félagi hennar söng með henni. Gamla konan hlustaði á með mestu ánægju. Mennirnir fyrir utan gluggann hættu að reykja og tala saman svo þeir gætu betur hlustað á. Eftir nokkrar mínútur spilaði stúlkan og söng: „Jesús kallar kom til mín, kom til mín.“ Þegar hún hafði lokið við að syngja þennan sálm þerraði einn drengj- anna tár af auga sér. Rétt í þessu bili var cllum gjört aðvart að lestin væri tilbúin að leggja af stað og hver fór sína leið. Mörgum, árum seinna stóð maðurinn sem söng undir þarna, í hóp manna og hlustaði á prédikara sem líka var söngmaður. Hann söng einmitt sálminn: „Jesús kallar kom til mín.“ Þegar söngnum var lokið sagði hann við áheyrendur sína: „Eg gleymi aldrei fyrsta skifti sem ég heyrði þennan sálm sunginn. Það var á veitingahúsi í Tennessee, þar sem ég hafði eytt fé mínu í óhófsömum lifnaði. Einn eftirmiðdag kom fólk af lestinni, sem varð að bíða eftir að- gjörð á vélinni. Einn eð tveir af þeim fóru að sýngja undir með hljóðfærinu. Eg get aldrei gleymt málrómi konunnar, hún söng uppáhalds sálm móður minnar: „Kom heim.“ Hvar sem ég var og hvert sem ég fór lengi á eftir hljómaði fyrir eyrum mér: „Kom heim“. Það endaði með því að ég kom heim. Áheyrandinn sem áður er minst á, sagði nú frá hvaða þátt hann hefði átt 1 sögunni, og hvernig gráhærða gamla kon- an hefði stungið upp á að sýngja sálm í von um að það gæti hjálpað drengjunum fyrir utan gluggann. —C.O.G. -----------☆----------- Gjöf föðursins til sonar síns Ríkur kaupmaður var á lestinni. Sam- ferða honum var E. M. Hodges alkunnur rithöfundur. Kaupmaðurinn sagði við Hodges: „Hefðir þú nokkuð gaman af að vita hvað ég ætla að gefa syni mínum í jólagjöf ?“ ' Hodges kvaðst hafa gaman af því og hugsaði með sjálfum sér að þessi maður gæti sannarlega gefið syni sínum verð- mæta gjöf. Kaupmaðurinn náði í peninga- buddu sína og tók upp úr henni saman- brotinn bréfmiða og rétti að Hodges. Á miðanu stóð: „Til sonar míns: Eg gef þér af tíma mínum einn klukkutíma á hverjum virk- um degi og tvo klukkutíma á sunnudögum, þeir tilheyra þér, þú mátt nota þá eins og þú vilt án allrar hindrunar.“ Hodges hugsaði með sér: hvernig skyldi drengnum geðjast að gjöfinni þegar hann les miðann á jóladagsmorguninn. Ef hann líkist fjöldanum þá verður hann mjög von- svikinn og óánægður. En ef hann er ólíkur fiestum öðrum, þá mun hann skilja að með þessu gefur faðir hans honum nokkuð svo dýrmætt að það getur aldrei orðið endur- goldið. „Viltu segja mér,“ spurði Hodges, „hvernig þér gat komið til hugar að gefa svona óvenjulega gjöf?“ Kaupmaðurinn svaraði:: „Fyrir nokkr- um dögum síðan kom ungur maður inn á skrifstofu mína, sem ég hafði ekki séð síðan hann var barn á aldur við drenginn minn. Hann kom inn rétt til að „heilsa upp á mig,“ sagði hann. Alt útlit hans bar vott um slark og iðjuleysi. Hann var eyði- lagður maður „Róbert,“ sagði ég undrandi, „Að sjá þig svona útlítandi, slíkan föður sem þú áttir.“ „Eg hef heyrt að pabbi hafi verið ágæt- ismaður,“ svaraði drengurinn. „Allir vinir hans hafa sagt mér það. Eg kyntist honum aldrei. Hann var svo upptekinn við verslun sína og ýmsan félagskap að ég sá hann aðeins stöku sinnum við máltíðar. Eg eig- inlega kyntist honum aldrei.“

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.