Stjarnan - 01.08.1950, Page 6

Stjarnan - 01.08.1950, Page 6
62 STJARNAN ,„Nei, við erum allir vinir þínir,“ svar- aði maðurinn. Þá sagði Webster „Hið mikilvægasta málefni sem ég hef nokk- urn tíma hugsað um er ábyrgð einstakl- ingsins gagnvart Guði“ Svo talaði hann til félaga sinna um ábyrgð mannsins gagn- vart Guði í tilliti til hins síðasta dóms, eða dómsdagsins. Ritningin segir oss að „allir munum vér verða að koma fram fyrir dómstól Guðs.“ Róm. 14:10. Fyrst þessu er þannig varið er þá ekki áríðandi fyrir oss að hafa í huga reikningskapardaginn ? Menn leitast við að komast hjá hegn- ingu fyrir brot sín. Það er erfitt að kann- ast við synd sína og segja: „Það hryggir mig ég gjörði rangt.“ Eg hef séð fólk sem í mörgu var góð fyrirmynd annara, en þegar kom til þess að kannast við að þeim hefði yfirsést þá var öðru máli að gegna. Jafnvel þeir sem fengið hafa mikinn kristilegan þroska eiga bágt með að kannast við yfirsjónir sínar. En þegar vér komum fram fyrir Guðs dómstól þá verðum vér að mæta þeim yfirstjónum og syndum, sem vér höfum ekki viðurkent. Það er tvent í sambandi við líf vort sem er, mjög alvarlegt. Fyrst, endurlausn- arverkið. Jesús dó fyrir syndir vorar. Það gjörir lífið þess vert að lifa. Ef Jesús hefði ekki dáið á krossinum þá væri þetta líf lítilsvirði, því engin von væri fyrir annað líf. Það annað sem gjörir lífið svo alvar- legt er einstaklings ábyrgðin. Vér verðum kallaðir til reikningskapar fyrir hvernig vér verjum lífinuog öllu því sem Guð hef- ir gefið oss. Nú á dögum reyna menn að koma sér hjá einstaklingsábyrgð. Al'kunn- ur sálarfræðingur sagði nýlega að þó of- drykkjan væri sjúkdómur, þá væri hún fremur sjúkdóms einkenni. Það er nokkur sannleikur í því, en aftur á móti er hætta á að ofdrykkjumaðurinn noti sér þá hug- mynd til að telja sjálfum sér trú um að hann hafi enga ábyrgð í því efni og reynir því ekki að hætta drykkjuskapnun. Mað- urinn hefur ábyrgð á gjörðum sínum. Það er mikill sannleikur í Guðs orði sem vér verðum að taka í trú. En þegar til dómsins kemur þá höfum vér auk vitnis- burðar Biblíunnar sannfæring um hann gegn um siðferðistilfinningu vora. Eng- inn lifandi maður getur mótmælt sannind- um komandi dómsdags. „Því þegar heið- ingjarnir sem ekki hafa lögmál, gjöra ó- sjálfrátt það sem lögmálið býður, þá eru þeir þó ekki hafi þeir neitt lögmál sjálfum sér lögmál, því þeir sýna að verk lögmáls- ins er ritað í hjörtu þeirra, með því að samviska þeirra ber vitni og hugrenning- arnar sín á milli ásaka eða líka afsaka. Það verður á þeim degi Guð dæmir hið dulda hjá mönnunum fyrir Jesúm Krist — sam- kvæmt fagnaðar erindi mínu.“ Róm. 2:14-16, Með öðrum orðum, þeir sem ekki hafa hið ritaða lögmál Guðs vitna um það í samvisku sinni að þeir munu að lokum verða að standa reikningskap. Einhver getur sagt: Er ekki nóg hegn- ing og harður dómur sem maðurinn fær í þessu lífi fyrir misgjöðrir sínar? Ef hann missir álit sitt og mannorð og traust samtíð- armanna sinna, er það ekki hegning? Það er að nokkru leiti rétt. Sumir verða mikið að líða fyrir misgjörðir sínar. En samt sem áður hlýtur að koma alsherjar dóms- dagur, því, alt ílt fær ekki sína maklegu hegningu í þessu lífi, og alt sem vel er gjört getur ekki orðið verðlaunað hér. Það eru þrjár ástæður fyrir því að alsherjar dómsdagur verður að koma. Fyrst, það eru margar syndir sem aldrei er hegnt með mannlegum lögum, en eru þó stórsyndir. Til dæmis vanþakklæti, fyr- irlitning, dramb, óhlýðni við foreldra og fleira. Sumir ætla af því hegningin kemur ekki strax þá muni þeir komast hjá henni, en Guðs orð segir að „Allir hljótum vér að birtast fyrir Krists dómstóli, svo að sérhver úr býtum beri það sem hann hefir aðhafst hvort sem það er gott eða ílt.“ Önnur ástæðan fyrir því að dómsdagur hlýtur að koma er, að jarðneskir dómend- ur vita ekki ætíð hvað hegningin ætti að vera, því þeir þekkja ekki tilganginn bak við brotin. Guð einn þekkir hjartað og veit hver er undirótin, til íllverkanna, þess vegna getur hann einn dæmt rétt. Þriðja ástæðan er sú að hinir seku kom- ast oft hjá hegningu í þessu lífi. Victor Hugo segir frá manni sem sveik og rændi, en fór í kring um lögin svo lögreglan náði honum ekki. Hann, sigldi skipi, en það rakst á klett. Samkvæmt skyldu skipstjóra bjargaði hann öllum inönnum sínum svo þeir komust heilir til lands, en hann beið

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.