Stjarnan - 01.08.1950, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.08.1950, Blaðsíða 8
64 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a yeár. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjðrn og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can. undirbýr oss til að standa frammi fyrir Guði eins og vér aldrei hefðum syndgað. „Já,“ segir þú, „þetta tekur yfir hið liðna, en hvað er um framtíðina? Þegar satan og freistingarnar koma inn eins og flóð til að eyðileggja mig, hvar stend ég þá? Jesús þekkir áhlaup óvinarins. Páll postuli segir oss til hughreystingar. „Guði séu þakkir sem oss hefir sigurinn gefið fyrir Drottinn vorn Jesúm Krist.“ 1 .Kor. 15:57. Vér getum daglega lifað sigursælu lífi einungis fyrir kraft Krists. Þú þráir að öðlast frið og gleði. Guðs barn hefir hvortveggja. „Friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yð- ar og hugsanir yðar í samfélaginu við Krist Jesúm.“ Fil. 4:7. Allir eftirfylgendur Krists óska líka að blessun Guðs hvíli yfir þeim í tímanlegum efnum. Vér þráum ekki einungis andlegt ljós heldur einnig líkamlega vernd og vel- líðan. Skyldum vér eitt einasta augnablik efast um fúsleika hans og kraft til að mæta þessum þörfum? Páll postuli segir: „Hann, sem ekki þyrmdi sínum eigin syni, heldur framseldi hann fyrir oss alla, hví skyldi hann ekki líka gefa oss alt með honum?“ Róm. 8:32. Sá Guð sem elskaði þig nógu mikið til að gefa sinn eingetinn son fyrir þig, hann mun aldrei gleyma þér né yfirgefa þig. Hann sem gaf þér líf veit þú þarft fæðu til að halda því við. Hann sem skapaði líkama þinn veit að þú þarft fatnað fyrir hann. Hann sem gaf þér lífið, hann gefur þér alt sem þarf því til viðurhalds. Blessun Guðs til barna hans er yfirfljót anleg. Hann „megnar að gjöra langsamlega fram yfir alt það sem vér biðjum eða skynjum.“ Efes. 3:20. Guð er ekki smátæk- ur. Hann gjörir langt um meira en vér biðjum um. Hann uppfyllir allar þarfir vorar, andlegar, tímanlegar og líkamlegar. „En Guð minn mun uppfylla sérhverja þörf yðar eftir auðlegð sinni, með dýrð i'yrir samfélag yðar við Krist Jesúm.“ Þetta loforð er fyrir þig vinur minn. Lestu það. Settu orðið „mína,“ 1 staðinn fyrir „yðar“. Meðtaktu loforðið fyrir sjálfan þig. —R. H. Pierson ------------------------- - Viltu ávinna pér traust og vináttu annara 1. Þá máttu ekki hlæja að því sem öðrum yfirsést. 2. Þú mátt ekki hafa eitthvað að setja út á hjá öllum öðrum. 3. Ekki altaf streytulaust halda fram þinni eigin hugmynd. 4. Vertu ekki altaf að tala, og gríptu ekki fram í þegar aðrir tala. 5. Klæddu þig snoturt og hreinlega. 6. Vertu glaðlyndur og talaðu aldrei um erfiðleika þína. 7. Brostu vingjarnlega. Það hjálpar cðrum og gleður þá. 8. Hlustaðu á meÓ hluttekningu þegar aðrir segja þér frá raunum sínum. 9. Vertu áhugsamur. Gjörir þú nokkuð fyrir vini þína, lánar þeim bók, eða leiðir athygli þeirra að ein- hverju nytsömu sem þú hefir lesið? sýnir þú að þú hugsar til þeirra? Talar þú vingjarnlega til annara, og um þá þegar þeir eru fjarlægir? Býður þú nýjum nágrönnum heim til þín, eða bíður þú þess að þeir bjóði þér fyrst? Ert þú geðstirður, eða hefir þú lipurt geðslag? Reynir þú að vera vinur og afla þér vin- áttu ýmsra ólíkra kunningja? Ertu vingj- arnlegur, við alla. Vinátta er nokkuð sem þú getur ekki lagt fyrir, því meir sem þú lætur úti af henni, því betur nýtur þú hennar. Sendi- bréf er ein aðferðin til að sýna vináttu. Lukkuósk, þakklæti, samhygð o.s.frv. gleð- ur viðtakendur og afla þér vina. I einu orði, leyndardómur vináttunnar er að hugsa um aðra fyr en sjálfan sig. -C.O.G.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.