Stjarnan - 01.08.1950, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.08.1950, Blaðsíða 7
STJARNAN 63 einn um borð í skipinu. Skipsmenn fóru leiðar sinnar og hrósuðu skipstjóra, en strax er þeir voru úr sýn reyndi hann að bjarga sér á öðrum bát og tók með sér kassa með dýrmætum munum, sem hann hafði stolið. En þegar hann fór ofan í bátinn náði illfiskur í hann og drap hann. Þessi maður fékk hegningu fyrir syndir sínar, en það eru margir sem sleppa hjá henni í þessum heimi. Dómurinn hefir tvær hliðar, ekki ein- ungis hegningu, heldur einnig endurgjaldi verður úthlutað. Fyrir marga verður dómsdagur fagnaðardagur, því sannleikur- inn mun hreinsa þá af öllum lognum ákær- um sem þeir urðu fyrir í þessu lífi. Á þeim degi munu allir fá réttan úrskurð allra mála. Sumir hafa syndir á samvisku sinni sem þeir reyna að dylja. Guð ræður oss til að játa syndir vorar. „Sá, sem dylur yfirsjónir sínar verður ekki lángefinn.“ Orðskv. 28:13. Vér getum valið um hvort vér viljum, játa syndir vorar og fá þær burt teknar fyrir Guðs náð í Jesú Kristi, eða dylja þær nú svo verða þær opinberar og rannsakaðar á degi dómsins. Hver verður grundvöllur dómsins, eða hvaða reglu verður fylgt í dóminum? Páll postuli sagði Aþenuborgarmönnum að Guð mundi „dæma heimsbygðina með réttvísi“. Það er mikið ritað og rætt um náð Guðs, en náð hans leyfir oss ekki að halda áfram að lifa í synd. Réttlátt líferni ber vott um náð Guðs. Guð er kærleikans Guð, en hann er líka réttlátur Guð. „Guð mun leiða sér- hvert verk fyrir dóm, sem haldinn verður yfir öllu því sem hulið er hvort sem það er gott eða ilt.“ Préd. 12:14. Hann mun dæma hvern mann eftir sínu guðdómlega lögmáli. Jakob segir: „Talið þér og breytið eins og þeir, er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins.“ Jak. 2:12. Það er tíu boðorða lögmálið. Alt er komið undir afstöðu vorri gagnvart Jesú Kristi. „Sá sem hafnar mér og veitir ekki mínum orðum viðtöku, hef- ir þann sem dæmir hann: orðið sem ég hef talað mun dæma hann á efsta degi.“ Jóh. 12:48. Aftur segir Jóhannes: „Sá sem trúir á soninn hefir eilíft líf, en sá, sem óhlýðn- ast syninum skal ekki sjá lífið.“ Jóh. 3:36. Hér er aðal áherslan lögð á persónulega afstöðu vora til Krists. Tíu boðorðin eru frelsisins lögmál, en til þess vér getum haldið þau og notið frelsisins þá verðum vér fyrir Guðs náð að breytast þannig að Guðs vilji verði vor vilji, þá göngum vér í hans frelsi. Ef vér höfum gefið Guði hjörtu vor og vilja þá mun Jesús tala máli voru í dóm- inum. Kærleiki hans og fórn hans verður oss þá tilreiknuð. í því er kærleikurinn orðinn fullkominn hjá oss að vér höfum djörfung á degi dómsins. 1. Jóh. 4:17. —A. L. Bietz -------------------------- Allar þarfir uppfyltar Hvers þarfnast þú í dag? Hefir þú skort á nauðsynjum lífsins? Þjáist þú af heilsuleysi? Þráir þú að öðlast innri frið? Hvað er það sem amar að þér? Hvað sem það er þá getur þú fengið bót á því. Guð þekkir þig persónulega. Hann veit allar þarfir þínar, tímanlegar, andlegar og líkamlegar, og ber umhyggju fyrri þeim. Jesús segir: „Leitið fyrst Guðs ríkis og hans réttlætis, og munuð þér fá hitt alt í viðbót.“ Matt. 6:33. Vor himneski faðir hefir lofað að „Uppfylla sérhverja þörf yðar eftir auð- legð sinni, með dýrð fyrir samfélag yðar við Krist Jesúm.“ Fil. 4:19. Biður þú um fyrirgefningu synda þinna? Hlustáðu á hvað Drottinn segir: „Eg, ég einn afmái afbrot þín . . . Og minn- ist ekki synda þinna.“ Jes. 43:25. Með fórn sinni á krossinum mætti Jesús þörf vorri að fá fyrirgefningu. Hverja synd, sem viðurkend er fyrirgefur Faðirinn, afmáir hana og gleymir henni. Ef þú vegna umliðinna synda þinna ert hræddur um að Guð muni ekki veita þér viðtökur, þá hlustaðu á þessi orð frels- arans: „Þann, sem til mín kemur mun ég engan veginn frá mér reka.“ Jóh. 6:37. Vér erum meðteknir í hinum elskulega, því Jesús kom til að leita þess sem glatað var. Þú mátt ekki efast um loforð hans. Þráir þú að hafa alla synd fjarlægða frá þér? Guð segir: „Þó að syndir yðar séu sem skarlat skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó þær séu rauðar sem purpuri skulu þær verða sem ull.“ Jes. 1:18. Guð fyrirgefur, en hann gjörir meira. Hann hreinsar af öllu ranglæti. 1 Jóh. 1:9. Þetta

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.