Stjarnan - 01.11.1950, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.11.1950, Qupperneq 2
82 STJARNAN satan. „Guð er vort athvarf og styrkur". Bið þú í einrúmi, og lyft þú hjarta þínu til guðs í bæn þegar þú gengur til dag- legrar vinnu þinnar. Á þennan hátt gekk Enok með guði. Þessar þöglu bænir stíga upp fyrir hásæti guðs eins og dýrmætt reykelsi. Satan getur ekki sigrað þann, sem treystir guði þannig af hjarta. Á öllum stöðum og öllum stundum sæmir að biðja til guðs. Ekkert getur tálm- að oss frá að upplyfta hjörtum vorum til guðs í innilegum bænaranda. Vér getum beðið til guðs í mannþyrpingunni, á göt- unni og þegar að vér erum að störfum vorum, og beðið um guðlega leiðsögn eins og Nehemías, þegar hann tilkynnti Artax- erxi konungi kröfu sína. Hvar, sem vér erum, getum vér fengið einrúm til að tala við guð. Vér eigum sífellt að hafa dyr hjartans opnar og bjóða Jesú að koma og búa í sálunni, sem himneskum gesti. Þó að saurgað og spillt andrúmsloft sé umhverfis oss, þá þurfum vér ekki að anda eiturgufum þess að oss. Vér getum lifað í hinu hreina lofti himinsins. Vér getum lokað öllum dyrum fyrir óhreinum hug- myndum og vanhelgum hugsunum með því að láta sál vora nálgast guð í mnilegri bæn. Þeir, sem hafa opnað hjörtu sín til þess að taka á móti aðstoð guðs.og blessun, munu ganga í helgara lofti en því, sem um jörðina er; þeir munu sífellt hafa sam- neyti við himininn. Vér þurfum að fádjósari hugmyndir um Jesú og víðtækari nugsanir um gildi hins eilífa. Hjörtu guðs barna eiga að verða full af heilagleikanum, og til þess að þetta megi ske, verðum vér að biðja guð að opin- bera fyrir oss hina himnesku hluti. Lát þú hjartað verða gagntekið af þrá eftir hinu himneska, svo að guð geti sent oss andblæ frá hinu himneska lofti. Vér getum nálgast guð svo mjög, að hugsanir vorar snúi sér til hans í hverri óvæntri raun, eins og blómið snýr sér mót sólu. Lýs þú brestu'tn þínum, gleði þinni og sorg, áhyggjum þínum og ótta, fyrir guði. Þú getur ekki orðið honum til byrði, þú getur ekki þreytt hann. Hann, sem telur þín höfuðhár, er ekki skeytingarlaus um skort barna sinna. „Drottinn er harla misk- unsamur og líknsamur“. Hans ástríka hjarta aumkast yfir oss, er vér erum sorg- um og áhyggjum hlaðnir. Far því til hans með allt það, sem veldur sálunni áhyggju. Ekkert er of þungt fyrir hann að bera, því að hann heldur öllum heiminum uppi. Hann stjórnar alheiminum, og ekkert, sem á nokkurn hátt snertir frið vorn, er of lítilfjörlegt til þess að hann taki eftir því. Enginn kafli í æfisögu vorri er of myrkur fyrir hann að lesa. Engin flækja er svo erfið, að hann fái eigi greitt úr henni. Engin ógæfa getur komið yfir hið lítilmót- legasta af börnum hans, engin áhyggja kvalið sáluna, engin gleði örfað hana, eng- in einlæg bæn komið af vörunum, svo að faðir vor á himnum verði þess eigi var og láti sér þegar í stað umhugað um það. „Hann læknar þá, sem hafa sundurmarið hjarta, og bindur um þeirra sár“. Sam- bandið milli guðs og hverrar sálar er svo fullkomið og ljóst sem engin önnur sál væri til, er guð hefði gefið son sinn ein- getinn fyrir. Jesús sagði: „Á þeim tíma munuð þér biðja í mínu nafni, og ekki segi ég yður, að ég muni biðja föðurinn fyrir yður, því sjálfur faðirinn elskar yður“. „Ég hefi út- valið yður . . . svo að hvers þér biðjið föðurinn í mínu nafni, það mun hann veita yður“. En til þess að biðja í Jesú nafni þarf meira en að nefna þetta nafn 1 upphafi og enda bænarinnar. Það þarf að biðja í Jesú anda og með hans hugarfari, trúa fyrir- heitum hans, treysta náð hans og vinna hans verk. E. G. W. -----------☆------------ XVIII. Vitnisburður postula og guðspjallamanna Jesús kom til að opinbera föðurinn fyr- ir oss. „Enginn hefir nokkurn tíma séð Guð; sonurinn eingetni sem hallast að brjósti föðursins hefir veitt oss þekkingu á honum“. Jóh. 1:18. Matteus, Markús, Lúkas og Jóhannes segja frá lífi og kenningum Krists, og fyrirmynd þeirri sem hann gaf oss. Hvað er vitnisburður þeirra viðvíkjandi fyrsta degi vikunnar? Þeir nefna hann sjö sinn- um og Páll postuli einu sinni. I. Vitnisburður Matteusar. (Um 6 ár- um eftir krossfestinguna).

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.