Stjarnan - 01.11.1950, Síða 4

Stjarnan - 01.11.1950, Síða 4
84 STJARNAN „Og sjá, þennan sama dag voru voru tveir af þeim á ferð til þorps nokk- urs sem er hér um bil 60 skeiðrúm frá Jerúsalem að nafni Emaus, og voru þeir að tala sín í milli um alt þetta sem við hafði borið. Og svo bar við er þeir voru að tala saman og ræða um þetta, að sjálfur Jesús nálgaðist þá og slóst í för með þeim“. Lúk. 24:13.-15. 5. Hann birtist þeim ellefu sama kvöld- ið. Þeir urðu skelfdir. „Þeir stóðu samstundis upp og fóru aftur til Jerúsalem, og fundu þá ell- efu samansafnaða og þá er með þeim voru, sem sögðu: „Sannarlega er Drottinn upprisinn og hefir birst Símoni. Og hinir sögðu frá því, sem við hafði bori'ð á veginum, og hvern- ig þeir hefðu þekt hann við það, að hann braut brauðið. En þegar þeir voru að tala um þetta stóð hann sjálfur meðal þeirra og segir við þá: „Friður sé með yður“. En þeir urðu skelfdir og hræddir og hugðust sjá anda. Og hann sagði við þá: Hví eruð þér óttaslegnir? Og hvers vegna vakna efasemdir í hjarta yðar? Lítið á hendur mínar og fætur að það er ég sjálfur. Þreifið á mér og lítið á, því andi hefir ekki hold og bein eins og þér sjáið mig hafa. Og er hann hafði þetta mælt sýndi hann þeim hendur sínar og fætur. En er þeir ennþá trúðu ekki fyrir fögnuði og voru fullir undrunar, sagði hann við þá: Hafið þér hér-nokkuð til matar? og þeir fengu honum stykki af steyktum fiski. Og hann, tók það og neytti þess frammi fyrir þeim“. Lúk. 24:33.-43. Hér er ekkert minst á helgi sunnu- dagsins. IV. Vitnisburður Jóhannesar. (Hér um bil 60 árum eftir krossinn). 1. Jóhannes nefnir tvisvar fyrsta dag vikunnar. „En á fyrsta degi vikunnar kemur María Magðalena snemma, meðan ennþá var dimt, til grafarinnar og sér að steinninn hefir verið tekinn frá gröfinni“. Jóh. 20:1. „En er kvöld var komið þennan sama fyrsta dag vikunnar, og dyr- um hafði verið lokað, þar sem læri- sveinarnir voru, af ótta við Gyð- ingana, kom Jesús og stóð mitt á meðal þeirra, og segir við þá: Friður sé með yður“. Jóh. 20:19. Þeir voru ekki saman til að minn- ast upprisu Krists, því þeir trúðu ekki að hann væri upprisinn. Hér er ekkert minst á helgihald sunnu- dagsins. V. Vitnisburður postulanna. (Skrifað 30 árum eftir krossinn). 1. Fyrsti dagur vikunnar er nefndur aðeins einu sinni. Á biblíutímabilinu var talið að dag- urinn byrjaði við sólsetur, svo eftir okkar reikningi hefir Páll haldið ræðuna það sem vér köllum laugar- dagskvöld. Hvíldardagurinn endaði við sólsetur og þá byrjaði fyrsti dag- ur vikunnar. Að brjóta brauðið hafði ekkert við helgihald að gjöra. Jesús innsetti kvöldmáltíðina á fimtudagskvöld. Postulasagan minnist ekkert á helgi- hald sunnudagsins. VI. Vitnisburður Páls postula. Hann nefnir fyrsta daginn aðeins einu sinni. „En hvað snértir samskotin til hinna heilögu, þá skuluð einnig þér fara með þau eins og ég hefi fyrirskipað söfnuðunum í Galatíu. Hvern fyrsta dag vikunnar skal hver yðar taka frá heima hjá sér og safna í sjóð eftir því sem efni leyfa, til þess ekki verði fyrst farið að efna til samskota þegar ég kem“. I Kor. 16:1.—2. Páll minnist ekkert á helgihald fyrsta dagsins. Páll hélt langa ræðu og braut brauð- ið. „En er vér vorum samankomnir fyrsta dag vikunnar, til þess að brjóta brauðið, átti .átti Páll sam- ræður við þá, með því að hann ætl- aði að fara burt morguninn eftir, og teygði hann talið til miðnættis“. Post. 20:7.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.