Stjarnan - 01.11.1950, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.11.1950, Qupperneq 5
STJARNAN 85 Erfiðir tímar „Á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir, því að menn munu verða . . . foreldr- um óhlýðnir“. 2Tím. 3:1.—2. „Tom, kom þú hingað11, kallaði ná- grannakona mín, við vorum að tala sam- an fyrir framan húsin okkar. Tom hafði verið að leika sér á flötinni en sneri nú upp úr húsinu. Þegar móðir hans kallaði til hans flýtti hann sér enn meir. „Tom, farðu ekki upp á pallinn11, hrópaði hún, en Tom fór upp tröppurnar eins og orð móður hans hefðu hvatt hann til þess. „Farðu ekki inn“, hrópaði hún um leið og hann kom að skrínhurðinni. Hann gekk inn. Það var eins og hann væri að leika við móður sína: „Þú segir nei, en ég gjöri það“. Þetta litla atvik er þúsund sinnum endurtekið í heiminum. Það er alment að börnin brjóta móti vilja foreldranna og óhlýðnast þeim. Hlýðin börn eru sjald- gæf orðin nú á dögum. Skipuninni sem gefin var forðum um að hlýða foreldrun- um, er snúið við. Á nútíðar heimilum eru það oft börnin sem skipa fyrir. Páll post- uli sagði fyrir að þetta mundi verða og bendir á það sem eitt af táknum síðasta tíma. Mrs. Colni Lombardi, sem kunnug er ástandinu, sagði á alheims fjölskyldu- fundi, sem haldinn var fyrir nokkru síð- an, að það væri nauðsynlegt að finna ráð á móti yfirráðum barna yfir foreldrum sínum. Foreldrar skipa ekki börnum sín- um lengur heldur börnin foreldrunum. Foreldrarnir þjást af langvarandi kjark- leysi. Þetta er ekki Guðs tilætlun. í upphafi ætlaðist Guð til að foreldrarnir, á æsku- árum barnanna væru þeim í Guðs stað. Þessari ábyrgð fylgir að foreldrar eiga heimtingu á elsku og virðingu barnanna framar öllum öðrum. Þetta innifelst í boðorðinu: „Heiðra föður þinn og móður þína, svo þú verðir langlífur í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér“. 2 Mós. 20:12. Barn sem sýnir foreldrum sínum hlýðni og virðingu mun einnig verða samvisku- samt gagnvart samtíðarmönnum sínum. Aftur á móti sá, sem ekki hlýðir foreldr- um sínum, mun heldur ekki virða lög landsins. Hið almenna lögleysi í landinu er sorglegur vitnisburður um vanrækslu uppeldisins á heimilinu. Börn sem elska Guð og hlýða honum hafa fyrst lært að elska foreldra sína og hlýða þeim. Hin dýrmætustu einkaréttindi foreldranna er að leiða börn sín til að elska og hlýða þeim Guði sem þau sjálf þekkja og þjóna. Nauðsynleg kensla á heimilinu ber með sér mikla umhyggju og þunga ábyrgð, sem margir foreldrar vilja helst hliðra sér hjá. Börnin bera ekki alla sökina á óhlýðni sinni, sem er svo almenn á nú- tíðar heimilum. Foreldrarnir eru líka í sökinni. Edgar Hoover segir, þegar hann talar um glæpaferil æskulýðsins: „Allir ungl- ingar taka einhvern fullorðinn til fyrir- myndar. Þegar hann fer að sýna fyrir- litning fyrir lögum og rétti, þá geta menn verið vissir um að hann .lærði eitthvað í þá átt á heimilinu, eða að honum hefir ekki verið kent að greina rétt frá röngu, svo að hann gæti sjálfur tekið ákvörðun sína“. Það tekur bæði visku og þolinmæði hjá foreldrunum að innræta börnunum stöð- uga hlýðni. Það er ómögulegt að fá börn til að sýna fúsa hlýðni með því að brúka stóryrði og reiði við þau, heldur ekki með stöðugri líkamlegri hegningu fyrir hvert afbrot. Hlýðni verður ekki kend á þann hátt, ekki sú hlýðni sem litli drengurinn talaði um hjá hundinum sínum er hann sagði: „Hann sýnist altaf verða svo glaður yfir að gjöra það sem ég segi honum11. Það þarf mikið af náð og kærleika Guðs í hjarta foreldranna til að geta haft góða stjórn á heimilunum. Eitthvert hið besta dæmi upp á góða heimilisstjórn er líf Abrahams. Þessi Guðs maður stóð fyrir sannkristilegu heimili. Guð sagði um hann: „Ég hef útvalið Abra- ham til þess hann bjóði börnum sínum og húsi sínu eftir sig að þau varðveiti vegu Drottins með því að iðka rétt og réttlæti11. 1 Mós. 18:19. Þar var engin syndsamleg vanræksla gagnvart börnunum, engin heimskuleg eftirlátssemi. Abraham gaf réttar reglur og leit eftir að þeim væri fylgt. Hversu fáir vor á meðal fylgja dæmi hans . . . . Eins og Abraham ættu foreldrarnir að

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.