Stjarnan - 01.11.1950, Síða 7

Stjarnan - 01.11.1950, Síða 7
STJARNAN 87 líkur fögnuður og kraftur fylgir slíku Guði helguðu lífi? Guð gefur slíkri sál undir- ritaða ávísun upp á banka himinsins, sem maðurinn getur sjálfur fylt út hvað upp- hæðina snertir. Hann uppfyllir allar vor- ar þarfir. Takið eftir tilboði hans: „Ef þér eruð í mér og mín orð eru í yður, þá biðjið um hvað þér viljið og það mun veitast yður“. Jóh. 15:7. Hugsið yður, hvað sem maður óskar eftir hjá Guði alheimsins, þá hefir maður fullvissu um að fá það. Þær stundir kpma fyrir þegar mikið þrengir að mönnum, að þeir þrá mjög að hafa samband við slíkan kraft. Ef maður er í vandræðum, í voða- legri hættu, eða líður megna sálarangist, þá snýr, jafnvel hinn stærsti syndari huga sínum til Guðs. En ef vér viljum að Guð svari oss á neyðartímum, þá þurfum vér að vera í stöð ugu sambandi við hann einnig endranær. Loforðið er: „Þér munuð leita mín og finna mig þegar þér leitið mín af öllu hjarta“. Jer. 29:13. Þetta bendir skýrt á að engin hálfvelgja nægir til að hafa sam- band við Guð. Ef vér viljum hafa aðgang að hinum takmarkalausa fjársjóð himins- ins og njóta stöðugs friðar, þá verðum vér að leita Guðs af öllu hjarta. Til þess að meðtaka kraft og frið Guðs útheimtist ekkert minna en fullkomin undirgefni undir vilja hans. Já, vinur minn, það kostar þetta. Und- irgefni undir Guðs vilja meinar að gefa honum alt, lífið sjálft ef nauðsyn krefur. En verðið er als ekki of hátt fyrir þann fögnuð og hamingju sem það veitir. Jón- athan Edwards, sem var áhrifamesti pré- dikarinn á sinni tíð sýnir oss uppsprettuna að krafti hans og áhrifum með þessum orðum: „Ég hef verið hjá Guði í dag' og hef gefið honum sjálfan mig og alt sem ég hef. Ég er ekki lengur minn eigin. Ég gjöri enga kröfu til skilnings míns, vilja né tilfinninga. Ég hef heldur engan rétt yfir þessum líkama eða limum hans. Ég á ekki lengur þessa tungu, augu, eyru, ilm- an eða smekk. Ég hef gefið það alt í burtu, og hef als ekkert sem ég get kallað mitt eigið. Ég hef verið hjá Guði þenna morg- un og sagt honum að ég gæfi honum alt, svo framvegis krefst ég einkis fyrir sjálf- an mig á nokkurn hátt“. Ungi maður, unga stúlka, vinur minn, á hvaða aldri sem þú ert, hefir þú gefið Guði sjálfan þig? R. H. PIERSON ------------it------------ Fjársjóðurinn hennar ömmu „Það er voðalegt, það er voðalegt“, sagði Mrs. Fillips um leið og hún kom inn í húsið til hennar ömmu. „Það er alveg voðalegt.“ „Hvað hefir komið fyrir, segðu mér frá því,“ bað amma um leið og hún setti fram stól fyrir Mrs. Fillips. „Eg heyrði gegn um víðvarpið að stór- flóð hefði komið í þorpinu þar sem ég á heima.“ „Eg heyrði það líka,“ sagði amma, „en það gleður mig að enginn misti líf sitt.“ „En indæla húsið mitt og öll nýju hús- gögnin mín,“ sagði Mrs. Fillips og fór að gráta. „Allur minn fjársjóður er þar. Eg hef skrautbundnar bækur, dýra gólfdúka og ágætis píanó. Flóðið kemur til að eyði- leggja allan fj-ársjóð minn, allar eigur mín- ar. Eg get ekki hugsað um neytt annað heldur en fallega heimilið mitt sem er eyðilagt.“ Amma hughreysti Mrs. Fillips sem best hún gat, en ekkert sem hún sagði virtist hafa nein áhrif á Mrs. Fillips því hún hafði mist allan sinn fjársjóð. Mae var í heimsókn hjá ömmu sinni og stóð nú róleg hjá og hlustaði á samtal þeirra. Eftir að Mrs. Fillips var farin leit hún í kring um sig. Alt á heimili ömmu hennar var hreint og snoturt, en hljóðfær- ið var gamalt og gólfteppin heima tilbúin. Amma hafði búið þau til. Þau voru falleg, en þau mundu þola vatn. „Hefur þú nokkurn fjársjóð amma?“ spurði Mae. „Já, ég hef fjársjóð, en flóð getur ekki skemt hann, þjófar geta ekki stolið honum og melur getur ekki eyðilagt hann.“ Mae leit undrandi út. Hún vissi að amma var altaf glöð, en hún vissi ekki til að hún ætti neinn fjársjóð. „Hvar hefir þú fjársjóðinn þinn amma?“ „Réttu mér Biblíuna, hún segir frá hvar fjársjóður minn er.“ Mae skildi þetta ekki en færði ömmu sinni Biblíuna og hún

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.