Stjarnan - 01.09.1952, Síða 2
66
STJARNAN
þú hugsar aðeins um að safna þeim saman
fyrir sjálfan þig, en aftur á móti í sínu
fulla verði, ef þú notar þá fyrir Meistar-
ann. Á þessum tíma tækifæranna eru þeir
meira virði en þeir munu verða eftir tvö
eða þrjú ár. Nú er tækifærið til að nota
fjármunina fyrir Krist og hjálpa hinum
þurfandi bæði nær og fjær. Vel sé þeim,
sem losa sig við eigur sínar í tæka tíð og
setja peninga sína í starfið í hinum him-
neska banka.
Og meira en þetta getum við gert. Við
getum á meðan við lifum gengið frá erfða-
skrá, svo að eignir okkar gangi til starfs
Guðs að okkur látnum, ef ekki eru ná-
komnir ættingjar, sem þarfnast þeirra.
Mundu að peningar þínir hafa verð-
mæti í sér aðeins í samræmi við það,
hvernig þú notar þá. Ef þeim er safnað
saman, eru þeir verðlausir. Ef þeir eru
notaðir fyrir Krist og tapaðar sálir, hafa
þeir ómetanlegt verðmæti. Hvers vegna
ekki að nota þá í starfið fyrir Guð? í hendi
hans munu þeir aldrei tapa verðmæti
sínu.
—D. A. DELAFIELD
---------------------
Hefjið upp augu yðar
„Heimskinginn segir í hjarta sínu,
enginn Guð.“ Sálm. 14:1.
Það eru til margar dásamlegar upp-
götvanir, sem framkvæma ýmislegt svo
nákvæmlega og fullkomlega, að þær virð-
ast næstum vera eins og vitsmunagæddar
verur. Þegar við virðum fyrir okkur þess-
ar vélar, nákvæmar hreyfingar þeirra og
fullkomna vinnu, hverfur hugur okkar til
þeirra sem fundu þær upp, og hagleika
verkamannanna sem bjuggu þær til. T. d.
Henry Ford og annara sem fullgjörðu bíl-
ana, einnig metum við bræðurna Wright
mikið, en þeir gjörðu flugferðirnar mögu-
lega, ennfremur Gutenberg, uppgötvara
prentlistarinnar, og þeirra sem fullkomn-
uðu prentlistina.
Það var ekki af tilviljun að þessir hlutir
urðu til. Við vitum að heilafrumur gáf-
aðra manna störfuðu og fundu þá upp,
og starfssamar hendur bjuggu þá til. Þess-
ar vélar framleiddu sig ekki sjálfar og geta
ekki haldið áfram vinnu sinni án um-
hyggju og eftirlits duglegs framkvæmda-
stjóra. Hver gæti verið svo heimskur að
haida því fram, að mismunandi hlutar
prentvélarinnar flyttu sig saman og settu
sig á hreyfingu án utanaðkomandi krafta.
Og þó eru til menn á vorum dögum, já,
jafnvel menn sem álitnir eru vitrir, sem
halda því fram að alheimurinn hafi orðið
til af sjálfum sér. Þeir sjá sólirnar og
stjörnurnar hreyfast reglubundið á him-
inhvolfinu, án núnings eða árekstra. Okkur
er sagt, að við séum í 93,000.000 mílna
fjarlægð frá sólinni, og þó við förum í
kringum hana einu sinni á ári, snertum
við hana aldrei eða aðra hluta sólarkerfis-
ins. Vélasamsetningar manna bregðast,
hlutir brotna eða slitna og það verða á-
rekstrar og eyðileggingar. En þessar sólir
og reikistjörnur halda áfram reglubundið
öld eftir öld og bregðast aldrei eða slitna.
Hvað veldur, hvað viðheldur öllu þessu í
fullkominni reglu? Lýsir þetta ekki allt
voldugu stjórnarvaldi, sem skarar fram
úr öllu sem menn nokkru sinni geta gjört?
Orð sálmaskáldsins eru áþreifanlega sönn
í Sálm. 19.1.—3. „Himnarnir segja frá Guðs
dýrð og festingin kunngjörir verkin hans
handa. Hver dagurinn af öðrum mælir orð,
hver nóttin af annari tala speki.“
Já, himnarnir segja ekki aðeins frá til-
verið Guðs, en einnig dýrð hans. Dag og
nótt talar Guð til okkar um vísdóm sinn
og vald, og hann talar til okkar á því máli,
sem við skiljum. Guð viðheldur alheimin-
um, en hann talar einnig til allra manna
í gegnum máttarverk sín, og hann segir
við hvern og einn á hans máli: „Hefjið upp
augu ykkar.“ Jes. 40:26.
Já, Guð talar til allra manna með dá-
semdarverkum sínum. Hvernig getur þá
nokkur verið svo blindur að viðurkenna
verk vesæls manns, en vilja ekki kannast
við skaparann, hann sem viðheldur al-
heiminum. lRóm. 1:19.—20. stendur: „Með
því að það sem vitað verður um Guð, er
augljóst meðal þeirra, því að Guð hefir
birt þeim það. Því að hið ósýnilega eðli
hans, bæði hans eilífi kraftur og Guðdóm-
leiki, er sýnileg frá sköpun heimsins, með
því að það verður skilið af verkunum.
Mennirnir eru því án afsökunar.“ Með öll-
um þessum vitnisburðum verður vantrúar-
maðurinn án afsökunar og orð sálma-
skáldsins reynast sönn.
—I. A. CRANE