Stjarnan - 01.09.1952, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.09.1952, Blaðsíða 8
72 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conferénce of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjórn og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can. „Þetta líf er í hans syni. Sá sem hefir soninn hefir lífið, sá sem ekki hefir son- inn hefir ekki lífið.“ lJóh. 5:11.—12. Yður sem trúið er hann dýrmætur.“ lPét. 2:7. Hefir þú meðtekið Guðs gjöf? Ef ekki þá gjör það nú og seg með Páli postula: „Þökk sé Guði fyrir sína óumræðilegu gjöf.“ 2Kor. 9:15. —L. W. SHAW ☆ Smávegis Ungverjaland leyfir íbúum sínum að skrifa aðeins þrjú bréf á ári til ættingja sinna í Vesturheimi. Þessi frétt kom með flóttafólki sem nýlega kom til Vínarborg- ar. Það er ímyndun manna að öll smáríkin undir Rússa stjórn vilji takmarka svo mikið sem unt er bréfaviðskifti fólksins við Vesturheiminn. ☆ ☆ ☆ Lögreglan í Dover, Ohio, skildi ekkert í hvernig smápeningum var stolið, sem Mrs. Staneart hafði látið í pósthólfið fyrir frímerki. Loks fundu þeir að smáfugl einn hafði náð 1 peningana. Póststjórnin ákvað að engin lögsókn skyldi hafin á málinu. ☆ ☆ ☆ Frá Cleveland, Ohio, koma þær fréttir að rakarar ætli að setja upp verðið fyrir vinnu sína. Hér eftir verður maður að borga 75 cent fyrir að láta raka sig, og dollar og fimtíu cent fyrir að klippa hárið. ☆ ☆ ☆ Menn geta vitað aldur fiska með því að telja hringana á hreistrinu. ☆ ☆ ☆ -Fimtán miljón dollara verksmiðja er bygð í Florida til að búa til pappír úr úrgangi sykurreyrsins. ☆ _ ☆ ☆ Þegar Atomsprengja á sér stað, þá stígur skýið sem við það myndast 10 þús- und fet upp í loftið á fjórum fimtu úr mínútu. ☆ ☆ ☆ Blindur maður sem dó nýlega í Perth i Ástralíu ánafnaði hundinum sínum, Toby, 3 dollara á viku lífeyrir, svo hann gæti lifað á steik, fiski og öðru góðgæti. ☆ ☆ ☆ Á þjóðvegum Ameríku eru hér um bil tvö og hálf miljón keyrsluvagnar (trucks), sem eru yfir 10 ára gamlir. ☆ - ☆ ☆ Á veiðilleyfistímanum í Bandaríkjun- um árið 1951 urðu 852 menn óvart fyrir skoti, 173 þeirra dóu af skotinu. ☆ ☆ ☆ Seinast þegar hermenn frá borgara- stríði Bandaríkjanna héldu fund með sér voru aðeins 12 eftir lifandi. 1 lok borgara- stríðsins voru þeir þrjár miljónir. ☆ ☆ ☆ Yfir 5.000 hellar hafa fundist í Banda- ríkjunum. Giskað er á að það sé aðeins einn tíundi af hellum þeim sem þar eru, hinir hafa ekki fundist ennþá. ☆ ☆ ☆ Ein af hinum stærstu úraníum námum hefir fundist í Brezku Vestur-Afríku ný- lendunni, Nigeria. ☆ ☆ ☆ Ein miljón eplatré í Danmörku verða brend í sumar, segir Hans Ch. Madsen, formaður ávaxtaframleiðslufélagsins. Eft- irspurn eftir eplum er svo lítil að bændur hafa ekki fengið framleiðslukostnaðinn. Italir auglýsa að þeir hafi selt 37 miljón bækur til landsmanna sinna árið sem leið. Mannfjöldinn er 48 miljónir. Fólkið í Lombardy héraðinu er það bókhneigðasta meðal ítala.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.