Stjarnan - 01.09.1953, Side 5

Stjarnan - 01.09.1953, Side 5
STJARNAN 69 inu Nazaret. Hann var samvizkusamur 1 öllu, sem hann gjörði. Jesús gjörði alt Guði til dýrðar. Söngur hjarta hans var: „Að gjöra þinn vilja, minn Guð, er mér yndi.“ Elska hans til Föðursins breytti ekki afstöðu hans gagn- vart skyldum lífsins, heldur leiddi hann til að gjöra alt trúlega, eins og fyrir Guð, en ekki fyrir menn. Sannur kristindómur er nothæfur mjög, aðeins ef hann sýnir sig í allri framkomu mannsins, þá er hann verulegur. Dr. James Hastings segir: „Vér verðum að taka boðorðin frá dýrð Sinai fjalls, halda þeim fram og sýna gildi þeirra á rykugum strætum jarðneskrar baráttu og erfiðleika. Vér þurfum að endurrita þau frá steintöflunni yfir á holdspjöld hjarta vors. Vér verðum að breyta eftir þeim í voru daglega lífi. Það er að taka Guð fyrst.“ John Ruskin sagði: „Lögmál Guðs manninum viðvíkjandi er það, að ef hann er trúr og hlýðinn þjónn Guðs, þá fær hann til endurgjalds þann fögnuð, sem aðrir geta ekki skilið og engin tunga getur útmálað. Hann fær endurgjald sitt hér ekki síður en hér eftir. Hann fær fljótt reynslu fyrir því „Að gjöra alt Guði til dýrðar,“ veitir sannan fögnuð og frið hér og nú. Vér njótum sannrar ánægju af því að vinna og syngja fyrir Guð. Að vinna með Guði og fyfir hann gjörir erfiðis- verkin létt og skemtileg. Það sem Guð heimtar er trúmenska, en engin framúrskarandi afreksverk, sem hrósað verði í blöðunum, heldur rólega, stöðugt og trúlega að rækja hinar dag- legu skyldur „Guði til dýrðar.“ Minnumst þess, að þó vér höfum aldrei tækifæri til að vinna stórvirki þá höfum vér þó dag- lega tækifæri til að gjöra gott. Mann- gæzka er það, sem vér eigum að kapp- kosta og æfa, en ekki sækjast eftir heiðri. Guð mun minnast trúmensku þinnar og gefa þér sanna gleði dag frá degi er þú vinnur fyrir hann, og síðan kalla þig heim og gefa þér hlutdeild í sínu dýrðarríki ásamt öllum hans trúföstu lærisveinum. —ERNEST LLOYD Heilbrigði og hamingja Góð heilsa er dýrmætust allra jarð- neskra gæða. Án hennar er lítil ánægja í lífinu. Heilbrigði er kraftur sem veitir manni ánægju af félagsskap trúaðra, gjör- ir mann færan um að leysa vel af hendi skyldur lífsins og hafa skemtun af vinn- unni. Þegar Jesús var hér á jörðinni gaf hann í skyn að synd orsakar sjúkdóma. Hann gaf oss dæmi upp á þetta í Guðspjöllun- um, vér skulum athuga nokkur þeirra. Vinir færðu Jesú mann sem hafði mátt- leysisveiki. Allir sem séð hafa sjúkling, sem þjáist af þessari veiki vita, að hann er ólæknandi. Það er hrygðarsjón að sjá slíkan sjúkling, hvort heldur sitjandi eða standandi, hristast eins og lauf fyrir vindi. Ef hann reynir að bera bolla að munni sér hellist hann niður, og sífeldur ótti sést á andliti mannsins. Þegar Jesús sá þennan mann kendi hann í brjósti um hann og sagði: „Vertu hughraustur, sonur, syndir þínar eru fyrirgefnar.“ Matt. 9:2. Hinir skriftlærðu hvísluðust á sín á milli og sögðu: „Þessi maður guðlastar." Þeir vissu ekki að hinn mikli læknir var sonur Guðs. „En til þess að þér vitið að mannsins sonur hefir vald á jörðu til að fyrirgefa syndir — þá segir hann við lam- aða manninn: — Statt upp tak rekkju þína og far heim til þín.“ Maðurinn stóð strax upp og fór heim. Hér virðist sem synd hafi orsakað mátt- leysið. Þegar syndin var fyrirgefin þá var maðurinn læknaður. Annað dæmi höfum vér hjá manninum, sem lá við laugina Bethesda og hafði verið veikur í 38 ár. Svo er frá sagt að á vissum tíma kom engill og hrærði upp vatnið í lauginni, og sá sem fyrstur fór ofan í laugina eftir að hrært var í henni læknaðist af hvaða sjúkdómi sem þjáði hann. Þessi maður gat ekki gengið og hann hafði enga vini, sem gátu lyft honum og látið hann ofan í laugina. En er Jesús kom og sá hann liggja þarna aumkvaðist hann yfir hann og spurði: „Viltu verða heill?“ Enginn getur ímyndað sér að maðurinn hafi neitað því. Jesús sagði við hann: „Statt upp, tak sæng þína og gakk.“ Seinna þegar Jesús mætti þessum manni sagði hann: „Sjá, nú ert þú heill

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.