Stjarnan - 01.09.1953, Page 7

Stjarnan - 01.09.1953, Page 7
STJARNAN 71 Jóhannes postuli segir: „Og á því vit- um vér að vér þekkjum hann, ef vér höld- um hans boðorð.“ lJóh. 2:4. Og frelsarinn segir sjálfur: „Ef þér elskið mig þá haldið þér mín boðorð.“ Það innifelur öll 10 boð- orðin því Jesús er skaparinn ásamt föð- urnum. „Allir hlutir eru fyrir hann gjörðir og án hans er ekkert til orðið sem til er.“ Jóh. 1:3. Hann er líka herra hvíldar- dagsins. Grundvallaratriðið í kenningu Lúthers var að Guðs orð ætti að vera reglan fyrir trú og líferni manna. Hann lifði ekki nógu lengi til að geta hreinsað burt úr kristninni alt sem katólska kirkjan hafi innsett af sínum eigin reglum, en það er engin af- sökun fyrir nokkurn kristinn mann að óhlýðnast skýru Guðs boði af því einhver annar maður hefir ekki fylgt því. Öll Guðs 10 boðorð hafa eilífðar gildi: „Þangað til hin og jörð forgengur, mun ekki hinn minsti titill eða bókstafur lög- málsins líða undir lok.“ Það er ómögulegt að afsaka sig með því að hann eða hún geti ekki haldið Guðs heilaga hvíldardag eins vel og öll hin boðorðin, það sýnir aðeins skort á trú á Guðs fyrirheitum. Jesús hefir alt vald á himni og jörðu. Hann býður lærisveinum sínum: „Leitið fyrst Guðs ríkis og hans réttlætis,“ og samtímis fullvissar hann þá um að þeir muni fá „hitt alt,“ það er nauðsynjar lífsins í við- bót. Lesið Matt. 6. kap. 28.—33. vers. Ef vér í sannleika erum lærisveinar Jesú, þá hlýðum vér honum og fylgjum kenningum hans. Jesús sagði: „Ef þér haldið mín boðorð munuð þér standa stöð- ugir í minni elsku, eins og ég hélt boðorð föður míns og stend stöðugur í elsku hans.“ Guð ábyrgist framtíð vora ef vér fylgjum honum og hlýðum í öllu. Sumir afsaka sig með því að þeir haldi Sunnudaginn, fyrsta dag vikunnar til minningar um upprisu Krists. Hann hefir aldrei boðið það, heldur segir hann: „Til einskis dýrka þeir mig með því þeir kenna þá lærdóma sem eru manna boðorð.“ Matt. 15:9. Aftur á móti er það skýrt tekið fram í hvíldardags boðorðinu: „Sex daga skaltu erfiða og gjöra alla vinnu þína, en sjöundi dagurinn er hvíldardagur Drottins Guðs þíns, þá skaltu ekkert verk vinna.“ Þarna er beint skipað að vinna 6 fyrstu daga vikunnar, það meinar að sunnudag- urinn er fyrirskipaður sem vinnudagur. Guð hefir af miskunn sinni annast oss og uppfylt þarfir vorar meðan vér af ógáti og vanþekkingu brutum boðorð hans, get- um vér þá ímyndað oss, að hann muni sleppa af oss hendinni ef vér hlýddum öllum hans boðorðum og fylgdum honum með óskiftu hjarta? Það er óhugsandi. Ég hef persónulega þekt marga, sem fyrir lifandi trú á Guðs fyrirheit og elsku til hans hafa kosið að hlýða öllum hans boðorðum er þeir fengu meiri þekkingu, sumir urðu að skifta um atvinnu, en sumir ekki, en allir þessir hafa með fögnuði fylgt frelsara sínum og um leið notið þess friðar og fagnaðar, sem heimurinn getur hvorki tekið né gefið, og Guð hefir upp- íylt allar þeirra þarfir eftir ríkidómi sinn- ar dýrðar í Drotni vorum Jesú Kristi. Hvað því viðvíkur að minnast upprisu Krists, þá gjörum vér það bezt með því að fylgja Guðs orði. Jesús kom til að frelsa sitt fólk frá þess syndum, og synd er yfir- troðsla Guðs boðorða. Hann kom til að frelsa oss frá að brjóta Guðs boðorð. Hann dó fyrir vorar syndir, fórnardauði hans kemur þeim til góða, sem á hann trúa og sýna trú sína í verkinu. Þeir sem í sann- leika trúa á Jesúm snúa frá syndinni. Vér erum greftraðir með Kristi fyrir skírnina til dauðans, svo að eins og Kristur uppreis frá dauðum fyrir dýrð föðursins, svo eigum vér einnig að ganga í endur- nýjungu lífsins. Þegar vér erum skírðir eins og Jesús var skírður, með niðurdýf- ingarskírn, þá minnumst vér dauða hans, greftrunar og upprisu. Er það riokkur verulegur kristindómur ef vér viljum aðeins fylgja Guðs orði þegar það kostar litla eða enga sjálfsaf- neitun, eða ef vér tökum tillit til þess, hvað fjöldinn segir eða gjörir. Það er himneskt að lifa, þrátt fyrir útlit og ástand heimsins, ef vér erum eitt með Jesú, hlýðum honum í öllu og fetum í fót- spor hans, þá veitir hann oss hér og nú óútmálanlega dýrðlega gleði og þann ör- uggleik fyrir tíma og eilífð, sem ekkert getur raskað. „Hvað sem vér biðjum hann um fáum vér af því vér höldum hans boðorð og gjörum það, sem er þóknanlegt fyrir hans augliti" lJóh. 3:22. —S. JOHNSON

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.