Stjarnan - 01.10.1953, Page 2
74
STJARNAN
Á þessum tíma dómsins eru menn
hvattir til að „Óttast Guð og gefa honum
dýrð.“ En menn virðast óttast alt í dag,
nema Guð. Vér verðum að snúa aftur til
föðurhúsanna, því vér sem kynslóð líkj-
umst týnda syninum. „Vér höfum van-
rækt Guð og lögmál hans,“ segir erki-
biskupinn af York.
Ef augu vor gætu opnast til að sjá og
skilja kærleika Guðs til vor, þá mundum
vér sýna honum heiður og lotningu. Allir
hafa einhvern tíma á æfinni snúið baki
við föðurhúsunum. En þrátt fyrir það hefir
faðirinn ekki reiðst oss heldur „eins og
faðirinn er börnunum líknsamur, eins hefir
Drottinn sýnt miskunn þeim sem óttast
hann.“
Þegar vér snúum aftur til Guðs þá lát-
um vér vilja hans stjórna lífi voru. Vér
verðum að hlýða sannleiksorði Guðs. Eitt-
hvað áríðandi skortir í mörgum söfnuðum,
sem þó bera kristið nafn. Það er skortur
á þrédikun Guðs orðs. Páll postuli sá þetta
fyrir, þegar hann skrifaði: „Þann tíma mun
að bera er menn ekki þola hina heilnæmu
kenningu, heldur kitlar þá ^á eyrunum, og
þeir hópa að sér kennurum eftir eigin
fýsnum sínum, og þeir munu snúa eyrum
sínum burt frá sannleikanum, og snúa sér
að æfintýrum.“ 2 Tím. 4:3.—4. Postulinn
gefur beina skipun um að „prédika orðið.“
2. vers.
Eftir að fyrsti engillinn hafði flutt boð-
skap sinn, þá sá Jóhannes annan engil
fljúga gegn um loftið, hann sagði: „Fallinn
er, fallin er Babýlon hin mikla, sem byrlað
hefir öllum þjóðum af reiðivíni saurlifn-
aðar síns.“ Op. 14:8. Boðskapur annars
engilsins hvetur menn og konur til að
skilja sig frá spilling heimsins og frá
söfnuðum þeim, sem flytja falskenningar.
Þeir sem elska Jesúm og eru fúsir til
að hlýða grundvallarreglum Biblíunnar
munu ganga út úr myrkri syndarinnar inn
í Guðs aðdáanlega ljós. Guðs orð er hið
eina áreiðanlega vegabréf því „Öll Ritn-
ing er innblásin af Guði og er nytsöm til
fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar,
til mentunar í réttlæti, til þess að Guðs
maður sé algjör, og hæfur til sérhvers góðs
verks.“ 2 Tím. 3:16.—17. „Jesús tók því
skýrt fram, að Guðs orð vitnaði um hann
og boðskap hans.“ Jóh. 5:39.
Fagnaðarerindið „Kraftur Guðs til
sáluhjálpar,“ á að vera prédikað út um
allan heim. Jesús bauð söfnuði sínum að
flytja öllum þjóðum gleðiboðskapinn.
Matt. 28:19.—20. Þegar þessu starfi er lok-
ið kemur endir heimsins. Matt. 24:14. Hvað
er innihald þessa boðskapar, sem er svo
nauðsynlegur til sáluhjálpar? Það er í
stuttu máli þetta:
Guð er almáttugur elskandi faðir, sem
gaf son sinn til að deyja, svo allir sem
vildu viðurkenna fórn hans og trúa á hann
gætu öðlast eilíft líf. Jóh. 3:16. og 1 Jóh. 4:9.
Guð er skapari alheimsins og alls sem
í honum er. Maðurinn var skapaður full-
kominn og í Guðs mynd, en syndin eyði-
lagði dýrð hans og fullkomleika. Jesús,
eingetni Guðs sonur kom í þennan heim
fæddur af meyju, og eftir að hafa lifað
syndlausu lífi gaf hann sig til að deyja
fyrir syndir mannkynsins. Maðurinn öðlast
fyrirgefning og frelsun fyrir trú á Jesúm
og fórn hans. Jesús reis upp frá dauðum
og sté upp til himna, þar talar hann máli
syndara og biður fyrir þeim. Lúk. 1:27,
Jóh. 3:16., Róm. 5:10., Heb. 2:17.
Það er nauðsynlegt einmitt nú að pré-
dika um dómsdag því „Komin er stund
dóms hans,“ og hver einasti maður verður
dæmdur samkvæmt Guðs heilaga lögmáli.
Tíu boðorðin eru Guðs eilífa óumbreyt-
anlega lögmál, gefið manninum til að laga
líf sitt eftir því. Það er nauðsynlegt fyrir
Guð kærleikans og réttlætisins að gefa út
slíkar reglur, sem sýna hvað er rétt og
rangt. Kristnir menn varðveita boðorð
Guðs af því þeir elska hann og hafa löngun
til að hlýða honum. L. Jóh. 5:2.—4.
Endurkoma Krists er huggun og von
allra Guðs barna. Jesús mun koma aftur í
dýrð og veldi, og „hvert auga mun sjá
hann.“ Jafnvel þeir menn sem áður hafa
gert gys að loforðinu um endurkomu
Krists, eru nú farnir að kannast við að það
er hin eina von heimsins.
Maðurinn hefir ekki ódauðlegt eðli-
Ódauðleiki er náðargjöf Guðs fyrir Jesúm
Krist. Síðan maðurinn syndgaði hefir hann
verið undir dauðadómi. Guð einn heíir
ódauðleika. Þegar Jesús sigraði dauðann,
þá fékst trygging fyrir eilífu lífi handa
öllum, sem vildu meðtaka frelsið í Kristi.
Ódauðleiki verður ekki veittur manninum