Stjarnan - 01.10.1953, Síða 7

Stjarnan - 01.10.1953, Síða 7
STJARNAN 79 brunninn. Það varð dauðhrætt og jarmaði til að kalla á hjálp. Ég skygði hönd fyrir sólskinið og horfði niður í brunninn. Ó, hvað ég óskaði að ég hefði stiga, eða að hann hefði verið bygð- ur innan í brunninn. Á ýmsum stöðum í einu horninu höfðu trébútar verið negldir innan á borðin. Kaðallinn, sem notaður var til að draga upp vatnið, og þessir tré- snagar voru eina leiðin til að geta klifr- ast niður í brunninn. Skeð gat að trébút- arnir væru farnir að fúna, og skyldi einn eða fleiri bila — Hvað þá? Það voru fleiri mílur til næsta heimilis og ef þessi björg- unartilraun mishepnaðist þá yrðu eflaust fleiri klukkustundir þangað til hjálp fengist. Ég sagði Tip að ég yrði að fara ofan í brunninn til að ná í lambið, svo að hann yrði að passa féð svo fleiri dyttu ekki ofan í brunninn. Hann virtist skilja þetta og gelti ákaft. Eftir að ég hafði fest kaðalinn fyrir ofan brunninn fór ég að klifrast niður svo gætilega sem ég gat. Ég hélt í kaðalinn og létti mig svolítið á trébútunum. Ég var ekki laus við að vera hræddur, en hélt þó áfram þar til ég náði í lambið. Það var skjálfandi af hræðslu og kulda vatnsins. Ég hélt í kaðalinn með annari hendi, en náði í lambið með hinni. Það var kalt, óþægilegt og erfitt verk, en loks gat ég fest kaðlinum utan um lambið. Ég klifraðist upp kaðalinn og trébútarnir héldu svo ég var bráðum aftur uppi í sól- skininu. En nú byrjaði aflraunin fyrst. Lambið var nokkurra mánaða gamalt og ullin á því var rennandi vot, svo það var þeim mun þyngra. Mér fanst alveg eins og bakið mitt ætlaði að brotna, en að lokum var þrautin unnin og lambinu bjargað. Fyrir mörgum öldum síðan varð Hinn Góði Hirðir að taka alvarlega ákvörðun. Einn hinna mörgu hnatta, sem hann hafði skapað, hafði fallið niður í hið voðalega dýpi syndarinnar. Hann var sá eini, sem gat veitt frelsun. Átti hann að láta mann- kynið glatast, eða taka upp á sig að bjarga því? Það var mikið að'leggja í sölurnar og mikið lagt í hættu. Hann varð að gefa upp heiðursstöðu sína á hásætinu með föður sínum og fæðast af syndugu holdi til þess að geta frelsað oss. Hann varð að yfirgefa dýrðarljóma föðursins og í dimmu örvæntingarinnar gefa líf sitt til lausnar- gjalds fyrir synduga menn, og verða negld- ur á kross eins og glæpamaður, Þeir sem hann kom til að frelsa, þeir sviftu hann lífi. En með dauða sínum ávann hann það að „Hver sem á hann trúir glatast ekki heldur hefir eilíft líf.“ Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, upp úr hinni botnlausu leðju og veitti mér fótfestu á kletti, gjörði mig styrkan í gangi. Sálm. 40:3. Hann gjörði þetta fyrir þig og mig. Hann er hinn góði Hirðir. Ó, hvílíkur kærleikur. —LEWIS L. DINWIDDIE ----------------- Það bjargaði lífi hans Joe sat á tröppunum fyrir framan húsið og studdi hönd undir kinn. Honum fanst lífið svo tómlegt. Sólin faldi sig á bak við skýin. Alt virtist ganga öfugt. Hvað var að? Joe vissi það. Faðir hans var veikur. Hlátur hans hljómaði ekki gegn um húsið eins og vant var. Sunnudagurinn, sem nú var liðinn, var lengsti dagurinn sem Joe hafði lifað, því hann hafði ekki getað tekið göngutúr með föður sínum. „Spott, kom þú Spott,“ kallaði Joe. Spott, litli hvolpurinn, leikfélagi Joe’s kom hlaupandi þaðan, sem hann hafði verið að grafa niður í moldina undir runnanum. Joe lagði handlegg sinn um háls hon- um og sagði: „Spott, pabbi er veikur, mamma segir hann hafi njú-mó-nía, það er svo langt orð, ég get varla sagt það.“ Nú sat Joe þegjandi augnablik og bætti svo við: „Spott, ég heyrði læknirinn segja mömmu, að það yrði afgjört í kvöld hvort pabba gæti batnað eða ekki. Við getum ekki lifan án pabba, Spott.“ Það kvöld gat Joe ekki sofnað hvernig sem hann reyndi til þess. Hann hafði að- eins fest blund, þegar hann varð var við fótatak á ganginum og heyrði málróm læknisins og móður sinnar, svo var svefn- herbergisdyrum föður hans lokað með hægð. Joe gat nú ekki legið kyr í rúminu leng- ur. Hann fór fram úr, út á ganginn og sett- ist niður fyrir utan dyrnar á herbergi föður

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.