Stjarnan - 01.10.1953, Qupperneq 8
80
STJARNAN
síns. Hann varð að vera hugrakkur, því
faðir hans var hugrakkastur allra raanna.
Snemma um morguninn vaknaði Joe
við að sólin skein rétt í andlit honum, og
samtímis kom móðir hans út úr herberginu.
„Ó, Joe, vesalings barn, hefir þú sofið
hér á gólfinu alla nóttina,“ sagði hún.
Móðirin tók hálfsofandi litla drenginn
í fang sér og hvíslaði að honum: „Pabbi
verður frískur aftur.“
Joe og mamma hans föðmuðu hvort
annað og hlógu af gleði. Eftir að Joe var
kominn í rúmið sagði mamma hans honum
hvers vegna pabba gæti batnað. „Hann
hefir lifað svo reglubundnu, góðu lífi og
aldrei bragðað áfengi.“ Móðirin þagði
augnablik og horfði í augu Joe og hélt svo
áfram: „Pabbi var rétt við dauðans dyr,
og læknirinn sagði, að ef hann hefði nokk-
urn tíma drukkið áfengi, þá hefði hann
orðið undir í baráttunni. En nú gæti hann
orðið fullhraustur aftur.“
„Ó, mamma, getum vér þá tekið g'öngu-
túra aftur?“
„Já, og það innan skamms,“ svaraði
móðir hans. „Þú skilur, sonur, að þegar
pabbi var lítill drengur og sá hvaða sorg
og' slys leiddu af drykkjuskap, þá ásetti
hann sér að bragða aldrei áfengi, því það er
bæði rangt og hættulegt.“
„Já, mamma, af því pgbbi drakk aldrei
verður hann nú frískur aftur, er ekki svo?“
„Það bjargaði lífi hans, sonur minn, og'
af því hann hefir aldrei drukkið hefir hann
alltaf verið góður maður.“
Þegar nú móðirin þrýsti fötunum að
Joe, svo hann gæti sofnað aftur, sagði
hann: „Ég ætla heldur aldíei að bragða
áfengi. Ég ætla að segja hinum drengjun-
um frá pabba.“
„Ég veit þú heldur loforð þitt, Joe,“
sagði móðir hans glaðlega, „en farðu nú
að sofa því alt gengur vel.“
Joe sneri sér við, lokaði augunum og
var þegar sofnaður.
—E. J. ELDRIDGE —O L F.
--------☆---------
Spænskumælandi fólk í Mið-Ameríku
og Suður-Ameríku getur nú fengið ókeypis
kenslu í ensku yfir útvarpsstöðina WRUL
í Boston. Til að hjálpa nemendunum frek-
ar sendir stöðin út smá kenslurit til þeirra
sem óska eftir þeim.
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjórn og afgreiðslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man„ Can.
Sex feta langur hákarl var nýlega
veiddur í Perú. Hann hefir synt 2300
mílur upp eftir Amazon fljótinu frá At-
lantshafinu og var veiddur skamt frá
Iquitos. Það hafði áður heyrst að hákarl
hefði sést í Amazon héraðinu 1000 mílur
frá sjávarströndinni. En þetta er fyrsta
frásögn, sem menn hafa fulla sönnun fyrir
að hákarl hafi synt svo langt upp frá
hafinu.
☆ ☆ ☆•
Herculus og Betelgeuse, tvær stærstu
stjörnur sem ennþá hafa verið mældar eru
um 400 og 300 sinnum stærri heldur en
sólin.
☆ ☆ ☆
Fyrir hvern pott af máli af gasólíni, sem
bifreiðar nota þurfa þær 9000 sinnum
meira að máli af lofti.
☆ ☆ , ☆
Þegar ísraelsmenn voru á leið til fyrir-
heitna landsins leiddi Guð þá með ský-
stólpa á daginn, en eldstólpa á nóttunni.
Hann annaðist þá og uppfylti allar þarfir
þeirra". „Hann er sá sami í gær, í dag og
að eilífu." Reynsla þeirra er skráð oss til
uppörfunar og trúarstyrkingár.
—S. J.
☆ ☆ ☆
„Vertu trúr alt til dauðans þá mun ég
gefa þér lífsins kórónu.“ Op. 2:10.
☆ ☆ ☆
„Sá sem stöðugur stendur alt til enda
hann mun hólpinn verða.“ JVLatt. 24:13.
☆ ☆ ☆
„Þeim sem sigrar og heldur til enda
mín boðorð, mun ég gefa vald yfir heiðnum
þjóðum ..... og ég skal gefa honum
morgunstjörnuna.“ Op. 2:26.
☆ ☆ ☆
„Ég Jesús, sendi minn engil til að votta
yður þetta í söfnuðunum. Ég em rót og
kynstafur Davíðs, morgunstjarnan sú hin
skæra.“ Op. 22:16.