Stjarnan - 01.01.1954, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.01.1954, Blaðsíða 7
STJARNAN 7 Fjölda margir menn verða útilokaðir frá Guðs ríki, ekki af því að þeir séu vondir menn, heldur af því þeir hafa van- rækt að tryggja sér borgararétt, þeir hafa ekki meðtekið Jesúm sem Drottinn sinn og frelsara til þess einhuga að fylgja honum og kenningu hans. „Sælir eru þeir, sem breyta eftir hans boðorðum, svo þeir fái aðgang að lífsins tré og megi inn ganga um borgarhliðin inn í borgina“. Op. 22:14. Ungur maður fór út að mæta póstin- um, þegar hann sá hann koma og spurði hvort hann hefði bréf handa sér. Hinn kvað svo vera og afhenti honum bréf með póstmarki Honolulu. Bréfið var frá bróður unga mannsins, sem bjó í Honolulu og var flugríkur maður. Hann sagði bróður sín- um frá, að hann hefði bygt stórt skraut- hýsi handa sér, og skamt þaðan hefði hann bygt annað handa honum, ef hann vildi koma og búa þar, og þá skyldi hann njóta alls auðsins með honum. Ekkert mundi skorta og þeir þyrftu ekki að neita sér um neitt sem þeir óskuðu eftir. Ennfrem- ur skrifaði bróðir hans, að ef hann vildi þiggja boðið, þá hefði hann flugvél til reiðu og mundi sjálfur koma til að sækja hann 'og fjölskyldu hans. Mundir þú ekki hafa þegið boðið? Það hefði ég gjört, og með tilhlökkun beðið eftir að hann kæmi á flugvélinni til að sækja mig. Vinir mínir, yður er boðið upp á miklu dýrðlegra og varanlegra heimkynni. Jesús sagði: „Ég fer burt að tilbúa yður stað . . . ég kem aftur til að taka yður til mín, svo þér séuð þar sém ég er“. í þessu dýrðlega heimkynni, sem yður stendur til boða, eru göturnar af gulli. Borgin þarf hvorki sólar né tungls til að lýsa, því „dýrð Guðs upp- ljómar hana og Lambið er hennar ljós“. Þeir sem þiggja boðið og búa sig undir að dvelja þar verða ummyndaðir eftir Jesús dýrðarmynd, þeir munu ríkja með Jesú í hans hásæti, vera erfingjar Guðs og samarfar Krists. Þar verður engin afturför, ekkert til að skyggja á fullkomna hamingju gegn um öll ár eilífðarinnar. Hefir þú þegið boðið? Hefir þú trygt þér borgararétt í þessari dýrðlegu borg? Trygðu þér strax inngöngu. Þygðu tilboð vors elskandi frelsara, svo þú getir notið eilífðarinnar með honum. —C. A. REEVES Ailir hljótum vér að mæta Bab var aðeins 10 ára gamall. Hann skalf á beinunum og gat varla tára bund- ist þegar hann leit á prófblaðið, sem kenn- arinn rétti að honum. Hann var hryggur yfir því, að hann hafði ekki getað gjört betur og leit nú á kennarann um leið og hann sagði: „Ég vona það verði engin próf á himnum“. Nú komu tárin fram í augun á kennar- anum er hún svaraði: „Nei, Bob, ekki af þeirri tegund, sem þú ert að hugsa um“. Eftir að drengurinn var farinn heim fór hún að hugsa um hver mundi vera vitnis- burður hans á himnum. Bob gjörði það bezta sem hann gat, svo að hún var viss um að hann stóð vel þar, þó skólaskýrsl- urnar hér sýndu, að hann hefði fallið í prófinu. Hún fór líka að hugsa um, hvort hún mundi sjálf standast prófið á himnum eins vel og Róbert. Já, menn verða að ganga undir próf á himnum. Þegar vér afhendum prófblöð vor hér þá eru það ófullkomnir menn, sem meta þau og marka. En þar er það Guð sjálfur, sem aldrei yfirsést, sem metur gildi vort. Vér getum haft þann undir- búning, sem tryggir oss að vér getum staðist prófið á hinum síðasta mikla reikningsskapardegi. Pétur postuli segir: „Gjörið iðrun og snúið yður að syndir yðar verði afmáðar til þess að endurlífg- unartímar komi frá augliti Drottins“. Post. 3:19. Ef vér ekki notum oss tilboð Krists að koma til hans og fá fyrirgefning synda vorra, þá verða þær ekki afmáðar, heldur verða nöfn vor afmáð af lífsins bók. (2. Mós. 32:33.). Það eru tveir vegir, sem vér getum valið um. Það er að játa syndir vorar og senda þær undan oss til dóms, svo þær verði afmáðar og vér megum lifa, eða vér látum syndir vorar standa án þess að við- urkenna þær, þá verða nöfn vor afmáð og afleiðingin eilífur dauði. Það ætti ekki að vera erfitt að velja. Meðtökum Jesúm sem frelsara vorn og Drottinn. „Sá sem hefir Soninn hefir lífið“. —HELEN MARQUARDT

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.