Stjarnan - 01.03.1954, Side 1

Stjarnan - 01.03.1954, Side 1
STJARNAN MARZ, 1954 LUNDAR, MANITOBA Áform Guðs með heiminn Dr. John Kelman frá Englandi var að fara yfir Atlantshafið á gufuskipi. Einu sinni seint um kvöld sá hann mann standa einsamlan á þilfarinu, langt frá hinum ýmsu farþegum, sem stóðu þar í hópum. Þegar hann fór að tala við þennan mann fann hann að maðurinn var nafnfrægur amerískur borgari. Brátt snerist samtal þeirra að ástandinu í stórborgunum. Dr. Kelman hlustaði á hina alvarlegu, sorglegu lýsingu á fátækt og eymdarlífi sem ætti sér stað í sumum þeirra, svo sagði hann við þennan vin sinn: „Ég hélt þér væruð lausir við allt þess háttar og gætuð kent okkur hvernig á að sigrast á öllu slíku.“ „Vér vitum,“ svaraði vinur hans, „hvað er eina hjálparvonin fyrir Ameríku.“ „Hvað er það?“ spurði Dr. Kelman. „Keisaraveldi.“ „Keisaraveldi? Aldrei hef ég heyrt Ameríkumann segja neitt slíkt. Hafið þið útnefnt keisarann? Það yrði að vera fyrir- myndarmaður, sem ekki gæti yfirsést, og afbragðs leiðtogi.11 „Það er rétt,“ svaraði hinn. „Við þekkj- um manninn og erum að bíða eftir honum. Hann kemur bráðum. Nafn hans er Jesús.“ „Hrifningin sem ég öðlaðist við þetta svar hefir haldist við hjá mér ávalt síðan,“ skrifar Dr. Kelman. Það er sannleikur að löngun mann- kynsins eftir nýrri stjórn, þar sem réttlæti, íriður og öryggi ríkir verður uppfyllt innan skamms. Vonin um að ná þessu dýrðlega takmarki er ekki bygð á upp fyndingum né áformum manna, því þá myndi hún bregðast, eins og reynsla liðinna tíma hefir sýnt: Það er áform Guðs opinberað í heilagri Ritningu, sem vér viljum benda yður á, og það getur ekki brugðist, því Guðs áform stendur stöðugt eilíflega eins og hann sjálfur. Mikið af þessu áformi sínu hefir Guð þegar framkvæmt. Jesús kom íklæddur mannlegu holdi, fæddist í Betlehem, dó á krossinum, reis frá dauðum og sté til himna til að birtast fyrir augliti Föðursins, sem æðsti prestur vor, alt þetta eru þættir í áformi Guðs til að stofna hér varanlegt friðarríki. Endurkoma Krists er næsti þátturinn í áformi hans. Það sem Guð hefir opinberað oss, og þegar er fram komið, er trygging fyrir því að það sem ennþá er eftir muni áreiðanlega koma fram. Þetta guðdómlega áform um réttláta alheimsstjórn er hin eina von heimsins. Atomsprengjan og hydrogen sprengjan benda á að það er tvent um að velja, al- heimsstjórn eða alheims eyðileggingu. Bernard M. Baruch, gamall stjórnvitring- ur, sagði: „Vér verðum að kjósa annað hvort alheimsfrið eða alheims eyðilegg- ingu.“ Vísindamaðurinn Dr. Harold C. Urey sagði: „Ef hydrogen sprengjan verður full- komnuð, þá verður hvergi skýli til vernd- ar.“ Það er alment viðurkent að eini veg- urinn til varnar gegn hættu atomsprengj- unnar er alheimsstjórn, sem getur stofnað og haldið viðyalheimsfriði. Vér þurfum að vita frá Guðs orði hvert er áform hans með hið komandi ríki rétt- lætis, friðar og hamingju, einnig hvernig og hvenær það verður stofnsett. En það sem oss er mest áríðandi að vita er, hvernig vér sem einstaklingar getum orðið borgar- ar Guðs friðarríkis og notið þar eilífrar hamingju. Vér megum ekki gleyma því að valdhafi þessa heims, satan, hefir táldrægt áform með framtíðarstjórn heimsins, sem ekki rnun leiða til hamingju. Hann reynir að blinda menn með falskenningum sínum,

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.