Stjarnan - 01.03.1954, Síða 7
STJARNAN
23
hátturinn breytist og ummyndast meir og
meir í líking við Jesú heilaga hugarfar.
„Styrk þú bræður þína þegar þú síðar
ert snúinn við“, sagði Jesús við Pétur.
Pétur var kristinn maður þegar Jesús á-
varpaði hann þannig. Hann hélt sjálfan
sig öruggan og sterkan, hann þekti ekki
veikleika sinn. Hann gat ekki styrkt bræð-
ur sína eða söfnuðinn fyr en hann sjálfur
var fullkomlega umventur.
Litlu-seinna afneitaði Pétur Drotni sín-
um með slíkum orðum sem hann hefði al-
drei getað ímyndað sér, að hann mundi
nota. Þetta sannfærði hann um að hann
þurfti almættiskraft Guðs náðar til að
breyta sínu mannlega eðli. Hann iðraðist,
auðmýkti sig og varð endurfæddur, nýr
maður.
Flestir vor á meðal líkjast Pétri. Vér
þekkjum ekki vorn eigin veikleika fyr en
vér föllum fyrir einhverri freistingu, þá
sannfærumst vér um að vér þurfum Guðs
náðarkraft til að ummynda líf vort.
Háttstandandi ríkur maður kom til
Jesú um nótt til að fá andlega leiðbein-
ingu. Jesús sagði: „Yður ber að endur-
fæðast.“ „Maðurinn getur ekki séð Guðs
ríki nema hann endurfæðist.“ Jóh. 3:7.—3.
Nikódemus var einn af leiðtogum Gyð-
inga. Hann fann enga þörf fyrir endur-
fæðingu. Hann skildi ekki hvað það meinti
og spurði því: „Hvernig getur nokkur
fæðst þegar hann er orðinn gamall?“ Jesús
svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég þér, ef
maðurinn fæðist ekki af vatni og anda, get-
ur hann ekki komist inn í Guðs ríki.“ Jóh.
3:4.—5. Jesús útskýrði að það var nauð-
synlegt að verða ummyndaður í hugsunar-
hætti og líferni fyrir áhrif heilags anda
til þess maðurinn gæti orðið borgari Guðs
náðar ríkis og svo fengið inngöngu í hans
dýrðarríki.
Vér öðlumst líkamlegt líf og fæðumst
af holdi, eins verðum vér að öðlast and-
legt líf með því að fæðast af vatni og anda.
Jesús sagði: „Það sem af holdinu er fætt
er hold, það sem af andanum er fætt er
andi .... Vindurinn blæs hvar sem hann
vill og þú heyrir þytinn í honum, en ekki
veistu hvaðan hann kemur eða hvert hann
fer, eins er því farið hverjum sem af and-
anum er fæddur.“ Jóh. 3:6.—8.
Þegar maðurinn finnur til þess hve
syndugur hann er og snýr sér til Krists,
þá byrjar kraftaverk endurfæðingarinnar
í hjarta hans. Afturhvarfið er verk heilags
anda, er hann sannfærir manninn um hve
syndugur hann er, og að Guð er bæði full-
kominn og heilagur, en elskar þó syndar-
ann svo, að hann er reiðubúinn að hjálpa
honum og frelsa hann.
Eftir að maðurinn er umventur og end-
urfæddur lítur hann alt öðrum augum á
lífið og alt umhverfis, sjálfstraustið er
horfið, og glaumur heimsins hefir ekkert
aðdráttarafl fyrir hann lengur. Hann hefir
augun á Jesú hinum náðuga frelsara sín-
um. Hans eina áhugamál nú er að þjóna
og þóknast honum. Eins og maðurinn x
dæmisögunni sem leitaði að dýrmætum
perlum, er hann nú fús til að selja alt
sem hann á til að eignast hana. Jesús sagði:
„Enn er himnaríki líkt kaupmanni einum
sem leitaði að fögrum perlum; er hann
hafði fundið eina dýra perlu fór hann og
seldi alt sem hann átti og keypti perluna.11
Matt. 13:45—46. J^sús reyndi líka að út-
mála fyllingu Guðs 'náðar og kærleika, er
hann sagði: „Líkt er himnaríki fjársjóði,
sem falinn var í akri, en maður nokkur
fann og faldi, í gleði sinni fer hann burt
og selur alt sem hann á og kaupir akur-
inn.“ Matt. 13:44.
Þegar syndarinn horfir á Jesúm verður
hann hrifinn af fegurð hans guðdómlega
lífs, og fer þá að skilja kærleika föðursins,
sem gaf oss soninn, svo vér mættum
öðlast fyrirgefning syndanna og kraft til
að lifa nýju lífi. Hann gefur nú Guði hjarta
sitt og heilagur andi ummyndar hann, svo
hann verður nýr maður í Jesú Kristi. Þetta
er reynsla allra sem í sannleika eru endur-
fæddir.
Afturhvarf eða endurfæðing meinar
það, að í stað þess að tilheyra þessum
heimi verður maðurinn borgari Guðs náð-
ar og dýrðarríkis .... Þegar maðurinn
gefur Guði hjarta sitt, þá öðlast hann
fögnuð og frið heilags anda, hefir hreina
samvizku, allar syndir hans eru fyrirgefn-
ar og afmáðar. Hann hefir ný áhugamál
og kraftur hins nýja lífs gagntekur sálu
hans.
Hellen Keller sagði einu sínni: „Aftur-
hvarf eða endurfæðing er ekki það að með-
taka nýjar trúarsetningar, heldur er það