Stjarnan - 01.10.1954, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.10.1954, Qupperneq 1
STJARNAN OKTÓBER, 1954 LUNDAR, MANITOBA Hvað hefir þú til hughreystingar? Það var dimt af þoku þennan október- morgun 1952, þegar lestin full af fólki staðnæmdist til að taka með sér fleiri far- þega í Harrow, 14 mílur fyrir utan Lun- dúnaborg. Skyndilega kom hraðlest frá Skotlandi, og rakst á lestina sem fyrir var og olli stórtjóni. Nokkrum mínútum seinna kom önnur hraðlest, sem var á norðurleið og rakst á þær sem fyrir voru, og orsakaði enn meira tjón. Yfir hundrað manns mistu líf sitt og fjöldi annara voru meiddir. Þetta var versta járnbrautarslys, sem fyrir hafði komið síðan í fyrra stríðinu. Slys og stórtjón, hvort sem það er járn- brautarslys, sprenging eða jarðskjálfti, þá leiðir það menn til að hugsa alvarlega. Hvað sem orsakar snögga eyðilegging á lífi fjölda fólks, þjáningar og eignamissir, þá kemur manni ósjálfrátt í hug að spyrja: Hvernig stendur á þessu? Hvers vegna leyfir Guð annað eins? Hvers vegna þurfa saklausir menn, konur og börn að líða þannig? Menn beina slíkum spurningum helzt til þeirra, sem kalla sig kristna og vænta þess að þeir geti svarað þeim, en því miður eru þeir oft ekki færir um að svara. Allir, sem trúa á Guð, ættu að vita ein- hverja úrlausn á þessu máli. Þeir skilja ekki ástæðuna fyrir öllum þeim slysum, sem eiga sér stað, en þeir ættu að treysta forsjón Guðs svo fullkomlega að þeir geti vakið hugrekki og traust hjá öðrum, jafn- vel undir erfiðustu kringumstæðum. Þetta er sérstaklega nauðsynlegt nú, þegar slys og óhöpp eru svo almenn, upp- reisn og óeyrðir svo víða í heiminum og útlit fyrir alheimsstríð ennþá einu sinni. Nú, fremur en nokkru sinni fyr þarf kirkja Krists að leiðbeina mönnum eða hún missir alveg álit sitt. Hvað getur hún sagt mönnum til huggunar og hughreyst- ingar? Vér getum mint menn á að Guð er ei- lífur og óumbreytanlegur. Eins og Jesajas til forna þegar þjóð hans var í hættu og hafði ýmsum erfiðleikum að mæta, þá sagði hann: „Árið sem Ússía konungur andaðist sá ég Drottinn sitjandi á háum og gnæfandi veldisstóli og slóði skikkju hans fylti helgidóminn“. Jes. 6:1. Á þess- um órólegu tímum þarf kirkja Krists að benda mönnum á hið hvíta hásæti, og eins og Daníel minna þá á: „Að hinn hæsti ræður yfir konungdómi mannanna og gefur hann hverjum sem hann vill“. Dan. 4:17. Guð leggur ekki niður stjórnina þó stríð brjótist út, eða jarðskjálfti komi, eða eldur eyðileggi handaverk manna, þó járn- brautarslys svifti menn lífi, eða sprenging eyðileggi heila borg. Hann sér það alt og skilur, það hryggir hann, en hann „Er sá sami í gær, í dag og að eilífu“. Hebr. 13:8. Þetta bendir á þann mikla sannleika, sem Guðs börn geta haldið fram, að eðli Guðs er sannleikur, réttlæti og heilagleiki. „Réttlæti og réttvísi er grundvöllur há- sætis hans“. Sálm. 89:15. Þetta veitir mönnum von, fyrst Guð er réttlátur og eilífur þá geta menn treyst því að hann muni ekki leyfa valdi hins illa í heiminum að halda áfram endalaust. Vér getum auglýst mönnum kærleika Guðs. Lengd, breidd, dýpt og hæð elsku hans til mannanna er langt um meiri en vér getum skilið. Hann elskar oss mitt í þyngstu erfiðleikum vorum. Þetta er fagnaðarboðskapur krossins, að: „Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist heldur hafi eilíft líf“. Jóh. 3:16. Krossdauði Krists var hin mesta skelfing,

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.