Stjarnan - 01.05.1955, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.05.1955, Qupperneq 2
34 STJARNAN og sagði: „Haltu í bókina þína,“ svo gekk hann sneyptur í burt. í sjö mánuði höfðum við ekki haft neitt að borða í fangabúðunum nema fisk, hrís- grjón og súpu, svo einn dag komu pakkar af matvælum sendir gegnum Rauða kross félagið. Daginn, sem þeir voru afhentir, opnuðu menn aðeins einn í einu. í þeim var alskonar góðgæti, brjóstsykur, hnetur, smákökur, ávextir og sápa. Alt í einu tók einn maður upp úr sínum pakka stóra Biblíu. Allir voru þögulir auknablik. „Andleg fæða,“ sagði einn fanginn. „Ég skal gefa þér þrjú stykki af súkkulaði, ef þú vilt lofa mér að lesa í henni fimm mínútur á dag í heila viku.“ „Tvær tinkönnur af súpu fyrir að lesa hana í einn klukkutíma.“ „Ég skal gefa þér þrjú sápustykki fyrir að lofa mér að lesa hana 5 mínútur á dag í einn mánuð.“ „Bókin er öllum velkomin borgunar- laust,“ sagði maðurinn, sem fékk hana. „Við skulum skiptast á um að lesa hana upphátt.“ Matvælin voru öll uppétin innan tveggja daga, en andlega fæðan varaði svo lengi sem þeir voru í fangabúðunum. Menn höfðu lesið bókina upphátt þar til þeir urðu þreyttir. Hún var orðin slitin og rifin af brúkun, þegar mennirnir að lokum fengu frelsi sitt. Bókin var bezt af öllum gjöfunum. - 1 Guðs orði er kraftur, ekki einungis til að endurskapa mannætur, heldur til þess að mæta öllum þörfum vorum. „Þau orð, sem ég tala til yðar eru andi og líf “ Jóh. 6:63. —C. E. MOSELEY -----------☆----------- Chai og Sung læðru að brosa Morguninn var kaldur, en það hlýnaði er sól hækkaði á lofti. Ekkert sérstakt kom fyrir allan fyrri hluta dagsins, svo klukkan fjögur var ég kölluð og beðin að koma út að framhliði’nu til að tala við tvo drengi sem þar voru. Ég bað Kim, túlkinn okkar, að koma með mér. Við hliðið stóðu tveir Kóreu-drengir, tötralega búnir, grannleitir og alvarlegir. Hungur og vonleysi lýsti sér í andliti þeirra. Þeir líktust litlum gamalmennum, er þeir litu á mig. Ég brosti til þeirra, en þeir brostu ekki á móti. Ég spurði um nöfn þeirra. Þeir hétu Chai og Sung. Chai var átta en hinn tíu ára að aldri. Her- menn höfðu fundið þá vera að leita sér að mat í kring um herbúðirnar og komu með þá hingað í von um að vér gætum tekið þá inn á munaðarleysingjahælið. Vér höfðum þegar 280 börn á hælinu, sem í fyrstu var bygt handa 75. En hver getur neitað aðgöngu, þar sem þörfin er svo tilfinnanleg. Ég fór með drengina inn að ofninum og gaf þeim smurt brauð og appelsínu. Þeir sögðu á Kóreumáli: „Hjartans þakklæti fyrir matinn.“ Þegar þeir höfðu borðað og var orðið hlýtt, þá lifnaði yfir þeirn og Chai fór að tala. Þetta var það, sem hann sagði: „Ég átti heima í litlu þorpi nálægt breiddarlínu 38, ég man ekki vel nafnið á þorpinu, eitthvað líkt Kangvar-do. Faðir minn vann á skrifstofu héraðsins. Ég átti líka litla systur. Fyrir hér um bil tveimur árum fóru foreldrar mínir með okkur lengra suður til að flýja Kínverja. Pabbi bar mig á bakinu, en mamma bar litlu systur mína. Ég veit ekki hvar við vorum. Tveimur dögum eftir að við fórum heimanað var fjöldi af fólki á brautinni og fyrir utan hana. Allir voru að flýta sér suður, því Kínverjar voru á eftir okkur. Þegar nóttin féll á vorum við á lítilli járn- brautarstöð. Flugvél kom og skaut á okk- ur. Margir voru drepnir þá nótt, þar á meðal móðir mín og litla systir, en pabbi týndist. Síðan hef ég verið foreldralaus og gengið úr einu þorpinu til annars til að leita að föður mínum. Um nætur hef ég haldist við í tómum húsum; fólkið, sem ég hef komið til, hefir gefið mér mat. Um tíma var ég hjá U.N. hermönnum, það var á vígstöðvunum. Eina nótt um sumarið var alt kyrt, og allir sváfu, það var indæl nótt. Ég hafði hita, svo ég gat ekki sofið. Ég heyrði einhvern hávaða fyrir neðan okkur í hlíðinni, svo ég vakti hermanninn, sem svaf hjá mér, og sagði: „Chinese, Chinese!“ Hann vaknaði og vakti stráx félaga sína; þeir fóru að skjóta. Einn af okkar hermönnum meiddist af vopni, sem kastað var að honum. Þrír kínverjar

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.