Stjarnan - 01.05.1955, Page 4

Stjarnan - 01.05.1955, Page 4
36 STJARNAN fætta skó á fæturnar, hinum sjúka læknis- lyf, hækjur eða annað, sem hann þarfnast mest. Peningar þínir bera vott um kær- leika þinn og manngæzku. Vér erum sendiboðar þínir til að útbýta - gjöfum þínum þar sem þörfin er mest, bæði nær og fjær. Guð hefir trúað oss fyrir fjármunum, ekki til að nota einungis fyrir sjálfa oss, heldur til að hjálpa þeim, sem ver eru staddir. Fríviljugar gjafir hafa meiri blessun í för með sér heldur en menn geta öðlast með því að borga tolla og annað, sem þó er ætlað til velferðar almennings. Frjáls- ræði til að gefa er mikils virði, það opnar hjörtu vor fyrir annara neyð og verndar oss frá eigingirninni, sem er rót að erfið- ustu viðfangsefnum einstaklingsins og mannkynsins yfirleitt. Þér hafið tækifæri nú til að gefa eins og þér vilduð óska að aðrir gæfu, ef þér væruð þeir, sem þyrftu hjálpar. Þeir fátæku og þjáðu líta vonaraugum til þín. Afríka þarfnast hjálpar frá þér. Indland þarf að fá bæði mat og læknis- hjálp. Þeir treysta veglyndi þínu. Vér þökkum yður fyrir gjafirnar. Og er vér útbýtum þeim óskum vér, að þér finnið yður nær Guðs ríki heldur en nokkru sinni fyr. Að lokum skulum vér veita yður hlut í þessu heilræði: „Afla fjár á ærlegan hátt . . . mikils fjár. Nota það skynsam- lega . . . alt saman. Helga það Guði . . . hvert einasta cent af því.“ Þetta er leyndardómur þess lífs, sem vert er að lifa. —D. E. REBOK -----------☆------------ Miss Ciansy fann það borgaði sig Það var árið 1919, sem ég hélt kristilega fyrirlestra í stóru tjaldi á 95. stræti og Broadway í New York. Á meðal áheyr- endanna var eldri kona, Miss Clansy að nafni. Hún var frá Norður-írlandi, mót- mælendatrúar og hallaðist mjög að kenn- ingum Calvins. Ég man ekki eftir að hafa mætt neinum, sem ákveðnara trúði kenningum Biblíunn- ar en hún. Hún þurfti aðeins skýrt Guðs orð fyrir því, sem fram var borið, þá trúði hún og hlýddi undir eins. Þegar hún heyrði að Biblían kendi, að „Sjöundi dagurinn er hvíldardagur Drott- ins Guðs þíns, þá skalt þú ekkert verk vinna,“ o. s. frv. Þá fór hún strax og mót- mælalaust að halda heilagan sjöunda dag vikunnar, þó hún alla æfi hefði samvizku- samlega haldið sunnudaginn. Strax er hún heyrði um skírnaraðferð Biblíunnar væri niðurdýfing, þá bað hún um að verða skírð. Ef henni var aðeins sýnt hvað Biblían segði þá fylgdi hún því strax og hiklaust. Á þessum samkomum hélt ég tvær ræður um tíundarskylduna og sýndi með rökum frá Biblíunni, að Guð skipar fyrir að allir lærisveinar hans borgi tíund. Miss Clansy fylgdi sömu reglu og áður með að skrifa niður alla textana. Þetta var það, sem hún skrifaði niður: Tíundarskyldan útskýrð. 3. Mós. 27: 30,—32. Tíundin notuð til lífsuppeldis þeim, sem vinna að guðsþjónustunni. 4. Mós. 18: 20.—24. í Nýja testamentinu er því haldið fram, að tíundin sé til uppeldis þeim, sem flytja fagnaðarerindið. 1. Kor. 9:13.—14. Jesús mælti með tíundargreiðslu. Matt. 23:23. Guð lofar þeim sérstakri blessun, sem borga tíund. Mal. 3:10.—12. Þeir, sem ekki hlýða skipunum Guðs, fara á mis við blessun hans. Hagga 1:5.—11. Það hvílir bölvun yfir mönnum og eign- um þeirra, sem ekki heiðra Guð og hlýða honum. Mal. 3:8.—9. Nú leyndi sér ekki að Miss Clansy var óróleg. Glaðlyndi hennar var horfið og skuggi hvíldi yfir andliti hennar. Hún kom og bað um að fá að tala við mig. Það var henni velkomið. Þetta er samtal okkar, svo nákvæmlega sem hægt er að gefa það án þess það væri hraðritað: „Prestur minn, það er viðvíkjandi ræðu þinni um tíundargjaldið, sem ég þarf að tala við þig. Þú hefir truflað mig og ég þarf leiðbeiningar með hvað ég á að gjöra. „Er nokkuð í kenningum Biblíunnar um tíundargjaldið, sem ekki er skýrt fyrir þér?“

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.