Stjarnan - 01.05.1955, Side 7
STJARNAN
39
nær, sem ég hugsa um loforð Guðs í sam-
bandi við tíundina.
Hefir þú reynt Guð, þú, vinur minn,
sem lest þessar línur? „Færið alla tíund-
ina í forðabúrið . ... og reynið mig einu
sinni á þennan hátt, segir Drottinn her-
sveitanna, hvort ég lýk ekki upp fyrir
yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir
yður yfirgnæfanlegri blessun.11 Malakia
3:10.
Sú blessun bíður þess að þú hlýðir hon-
um í því að borga tíund. Eins og Guð
reyndist Miss Clansy trúfastur, eins mun
hann reynast þér.
—C. B. HAYNES
------------☆------------
Endurfæðing
„Enginn getur séð Guðs ríki nema hann
endurfæðist.“ Jóh. 3: 3.
Ert þú endurfæddur? Ég spyr ekki hvort
þú sért vingjarnlegur, ráðvandur eða sið-
ferðisgóður og ekki hvort þú kannist við að
Jesús sé frelsari heimsins, heldur hitt:
„Þekkir þú Jesúm sem þinn eigin frels-
ara?“ Hefir þú lofað honum að frelsa þig?
Til þess kom hann í heiminn að frelsa þig
frá synd og dauða, frá yfirtroðslu Guðs
boðorða og frá afleiðingu syndarinnar,
dauðanum.
Hefir þú fullvissu um að þú sért endur-
fæddur maður? Hefir þú stigið yfir frá
dauðanum til lífsins?
Ert þú svo innilega sameinaður Jesú að
Guðs heilagi andi geti vitnað með þínum
anda að þú, sért Guðs barn? Eða ert þú
ennþá heimsins barn sem reynir að halda
í Guð með annari hendinni en í heiminn
með hinni? Það er hættulegt ástand, því
„enginn getur tveimur herrum þjónað.“
„Elskið ekki heiminn, ekki heldur þá
hluti sem í heiminum eru. Ef einhver
elskar heiminn, þá er kærleiki til föðursins
ekki í honum. Því að alt sem í heiminum
er, fýsn holdsins og fýsn auganna og auð-
æfa oflæti, það er ekki frá föðurnum
heldur frá heiminum. Og heimurinn ferst
og fýsn hans, en sá, sem gjörir Guðs vilja
varir að eilífu.“ Jóh. 2: 15-17.
Hefur þú þann frið í sálu þinni sem yfir-
gengur allan skilning? Ert þú þekkjan-
legur frá heimsins börnum?
Þess vegna farið burt frá þeim og skiljið
yður frá þeim, segir Drottinn, og snertið
ekki neitt óhreint, og ég mun taka yður að
mér, og ég mun vera yður faðir, og þér
munuð vera mér synir og dætur, segir
Drottinn alvaldur.“ 2 Kor. 6: 17. 18.
„Af þeirra ávöxtum skuluð þér þekkja
þá.“ Þegar þú leitaðir Krists, snerir þú þá
frá allri synd? Varst þú ummyndaður?
„Ef einhver er í samfélagi við Krist, er
hann ný skepna, hið gamla varð að engu,
sjá, það er orðið nýtt.“ 2 Kor. 5: 17.
Hefir þú nýjan tilgang, nýjan ásetning,
og nýjan skilning á lífinu? Er Kristur og
náðarboðskapur hans nú það eina áríðandi
í lífi þínu, sem alt annað verður að lúta?
Klæðir þú þig, neytir matar og drykkjar,
hvílir, vinnur og leikur þér, alt þetta Guði
til dýrðar? 1. Kor. 10: 31.
Það er áreiðanlegur sannleikur, vinur
minn, að það er gagngjör breyting á innra
lífi þess manns sem er endurfæddur.
„Ekki mun hver sá er við mig segir
Herra, herra, ganga inn í himnaríki, held-
ur sá er gjörir vilja föður míns, sem er í
himnunum.“ Matt. 7: 21.
„Gangið inn um þrönga hliðið, því að vítt
er hliðið og breiður vegurinn er liggur til
glötunar, og margir eru þeir sem ganga
inn um það, því að þröngt er hliðið og
mjór er vegurinn, er liggur til lífsins, og
fáir eru þeir sem finna hann.“ Matt.
7: 13. 14.
Þegar alt er athugað og vér mætum
Jesú í einrúmi, þá er það endurfædda líf-
erni sem Biblían bendir á sú eina reynsla
sem getur staðist.
„Prófa mig Guð og þektu hjarta mitt,
rannsaka mig og þektu hugsanir mínar og
sjá þú hvort ég geng á glötunarvegi, og
leið mig hinn eilífa veg.“ Sálm. 139: 24.
Ó Jesús gefðu mér nýtt hjarta, sem
endurspegli þitt heilaga hugarfar.
— M. K. J.
•-----------☆------------
Fyrirgefning og friður
Ef það væri satt sem Oliver Lodge sagði
einu sinni „að enginn nú á dögum væri
áhyggjufullur út af syndum sínum,“ þá er
það sorglegt tákn tímanna og boðar ilt
fyrir framtíð mannkynsins, því á öllum
öldum hafa beztu menn og konur verið
áhyggjufull út af syndum sínum.