Stjarnan - 01.05.1955, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.05.1955, Blaðsíða 8
40 STJARNAN JARNAN A-uthorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa Ontario. Ritstjórn og afgreiBslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can. Hvernig gat heilög Ritning talað um Davíð konung ísraelsmanna sem „mann eftir Guðs hjarta“, ef hann hefði ekki verið áhyggjufullur út af syndum sínum? Frásagan um líf hans ber það með sér að hann hafði syndir á samvizku sinni, sem ollu honum áhyggju. Ef hann hefði ekki verið hugsjúkur út af syndum sínum, þá hefði hann vissulega ekki svo alvarlega leitað náðar og fyrirgefningar. Það virðist sem Davíð hafi reynt að gleyma syndum sínum, en því meir sem hann reyndi það því ver leið honum. Hann fann það, að tilraun til að þagga niður rödd samvizkunnar hafði ill áhrif á líf hans svo hann eltist fyrir tímann. „Meðan ég þagði tærðust bein mín og ég kveinaði liðlangan daginn, því að dag og nótt lá hönd mín þungt á mér, lífsvökvi minn þvarr eins og í sumarbreiskju.“ Sálm.“ 32:34. 1 neyð sinni sneri hann sér til Guðs og játaði syndir sínar. „Guð vertu mér náð- ugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi. Þvo vandlega af mér misgjörð mína og hreinsa mig af synd minni, því að ég þekki sjálfur afbrot mín og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.“ Sálm. 51:3,—5. Þetta létti syndabyrðinni af honum. Hann yarð nýr maður og naut dýrðlegs frelsis er hann vissi að syndir hans voru fyrirgefnar og afmáðar fyrir náð Guðs, hans, sem einn hefir vald til að fyrirgefa. Með því að iðrast synda og játa þær vann hann sigur yfir synd fyrir Guðs kraft, sem stendur öllum til boða, er í einlægni leita hans. „Sæll er sá, er afbrotin eru fyrirgefin, synd hans hulin, sæll er sá maður, er Drottinn tilreiknar ekki mis- gjörð, sá er eigi geymir svik í anda .... Þú ert skjól mitt, þú leystir mig úr nauð- um. Með frelsisfögnuði umkringir þú mig.“ Sálm. 32:1,—7. Þessi dýrmæta reynsla, sem hér er lýst, getur orðið hlutskifti allra syndara, sem fúslega játa syndir sínar og snúa frá þeim. —H. F. DE ATH ----------☆------------- Sá sem drepur tígrisdýr í Pakistan fær 50 dollara fyrir. Menn héldu að þessi villi- dýr væru að fækka eftir margra ára til- raun til að útrýma þeim, en þvert á móti, það virðist sem þeim sé að fjölga. Menn geta jafnvel fengið 100 dollara verðlaun fyrir að drepa mannskæðu tígrisdýrin. .. ☆ ☆ ☆ Nú eru 13 og hálf miljón manna og kvenna í Bandaríkjunum um eða yfir 65 ára að aldri, þeim hefir fjölgað um 50 af hundraði síðan 1940. ☆ ☆ ☆ Nú eru nær því sjö og hálf miljón ekkjur í Bandaríkjunum, þeim fjölgar um alt að hundrað þúsund á ári. Ein af hverj- um tíu meðal þeirra er innan 45 ára aldurs. ☆ ☆ ☆ Leiðtogar sambandsþjóðanna segja, að nálægt 350 þúsund manns séu ennþá heimilislausir í Evrópu. Um 90 þúsimdir búa í tjaldbúðum, en hinir í skýlum, sem hróflað er upp. Alls í heiminum er talið, að tvær miljónir manna séu heimilislausir. ☆ ☆ ☆ Fólksfjöldinn í Suður-Afríku er 13,150,- 000 samkvæmt manntalsskýrslum þaðan. Þar af eru 2,750,000 Evrópumenn, 8,840,000 innfæddir menn, negrar, 1,170,000 negrar, sem ekki eru fæddir þar og 388,000 annara þjóða. ☆ ☆ ☆ Sjötíu og tvær miljónir manna búa innan 215 mílna í allar áttir umhverfis Brussel í Belgíu. Það er býsna þéttbýlt þar og í nágrannalöndunum. ☆ ☆ ☆ í Stóra-Bretlandi eru 43 hundruðustu af sjúklingum í sjúkrahúsunum sinnisveikir, en í Bandaríkjunum þjáir sá sjúkdómur nær því 50 af hundraði sjúklinganna, eftir því sem Dr. W. C. Alvarez í Rochester skýrir frá. Sinnisveiki er almennasti sjúk- dómur heimsins nú á dögum. Fleiri menn voru ófærir til herþjónustu vegna þessa kvilla heldur en fyrir nokkra aðra ástæðu.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.