Stjarnan - 01.06.1955, Side 4
44
STJARNAN
til annars sigraði allar hindranir. Þau
giftust. Einu sinni spurði vinur blinda
mannsins hvað það væri í heiminum, sem
hann langaði mest til að sjá.
„Mig langar mest af öllu til að geta séð
andlit konunnar minnar“, svaraði hann
strax.
Frægur augnlæknir heimsótti nokkru
seinna borgina, þar sem þessi hjón bjuggu.
Hann rannsakaði augu blinda mannsins
og bauðst svo til að skera upp augu hans í
von um að hann fengi sjónina. Þetta var
gjört og nú rann upp dagurinn, þegar taka
átti umbúðirnar frá augunum. Aðeins
læknirinn og hjónin voru í herberginu á
meðan það var gjört. Þegar maðurinn sá
birtuna varð hann frá sér numinn. Hann
sneri sér að konu sinni og horfði á andlit
hennar, svo gekk hann nær til að snerta
kinn hennar með hendinni um leið og
hann sagði: „Elskan mín, þú ert svo miklu
fallegri, heldur en ég gat ímyndað mér
meðan ég var blindur. Ég elska þig meir
en nokkru sinni fyr“.
Vér höfum líka gengið eins og blindir í
dimmu þessa syndspilta heims. Vér höf-
um hugsað um Jesúm í allri hans dýrð,
en gátum ekki séð hann. Vér höfum notið
ástar hans og ákallað hann í trú. En hvað
verður það þá, þegar vér fáum að sjá
hann eins og hann er. „Því nú sjáum vér
svo sem í skuggsjá í óljósri mynd, en þá
augliti til auglitis. Nú er þekking mín í
molum, en þá mun ég gjörþekkja eins og
ég er sjálfur gjörþekktur“.
Með alla dýrð og auðlegð alheimsins
frammi fyrir okkur, þá munum vér fyrst
geta skilið til fulls kærleika vors him-
neska föður og frelsara, er hann lagði allt
í sölurnar, svo vér mættum njóta dýrðar
alheimsins eilíflega með honum.
—MERLIN L. NEFF
------------------------
Páll postuli spurði, þegar Jesús birtist
honum á leiðinni til Damaskus: „Herra,
hvað vilt þú ég gjöri?“ Hann fékk ákveðið
svar. Vér getum líka verið vissir um að
Guð gjörir það fullkomlega skýrt fyrir
okkur hvað hann vill vér gjörum, ef vér í
einlægni og alvöru óskum eftir að gjöra
vilja hans. Ég hef eigin reynslu fyrir þessu.
—S. J.
Einhuga með Kristi
Kristinn maður á að lifa í fullkominni.
skilyrðislausri hlýðni við Guð. Hann fylg-
ir ekki sínum eigin óskum eða tilhneig-
ingum. Hann gengur á lífsins vegi. Guðs
orð og andi leiðir hann í öllu, sem hann
tekur sér fyrir hendur.
Jesús bendir á tvo mismunandi vegi
og hvert þeir leiða. „Gangið inn um
þrönga hliðið, því að vítt er hliðið og
breiður vegurinn, sem liggur til glötunar-
innar, og margir eru þeir, sem ganga inn
um það, því að þröngt er hliðið og mjór
vegurinn, er liggur til lífsins, og fáir eru
þeir, sem finna hann.“ Matt. 7:13.—14.
Jesús tekur það skýrt fram, að þeir séu
ekki allir á hinum mjóa vegi, er til lífsins
leiðir, sem þó játa trú á Krist. „Ekki mun
hver sá, er við mig segir: Herra, herra,
ganga inn í himnaríki, heldur sá, er gjörir
vilja föður míns, sem er á himnum. Margir
munu segja við mig á þeim degi: Herra,
herra, höfum vér ekki spáð með þínu nafni,
og höfum vér ekki rekið út illa anda með
þínu nafni, og höfum vér ekki gjört mörg
kraftaverk með þínu nafni? Og þá mun
ég segja þeim afdráttarlaust: Aldrei þekti
ég yður, farið frá mér, þér, sem fremjið
lögmálsbrot.“ Matt. 7:21.—23.
Það er ekki nóg að kannast við Jesúm
með vörunum og kalla hann herra eða
þó gjörð séu undraverk í hans nafni. Að-
gönguskilyrði inn í Guðs ríki er að gjöra
Föðursins vilja.
Hversu alvarlega ættum vér því að
rannsaka vort eigið líferni og spyrja oss
sjálfa: „Gjöri ég vilja míns himneska föður
ætíð og í öllum greinum?“
Jesús leggur áherzlu á þetta með dæmi-
sögunni um mennina, sem bygðu á mis-
munandi grundvelli. „Hver sem því heyrir
þessi orð mín og breytir eftir þeim, honum
má líkja við hygginn mann, sem bygði
hús sitt á bjargi; og steypiregn kom ofan,
og beljandi lækir komu, og stormar blésu
og skullu á því húsi, en það féll ekki því
það var grundvallað á bjargi. Og hverjum
sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki
eftir þeim, honum má líkja við heimskan
mann, er bygði hús sitt á sandi, og steypi-
regn kom, og beljandi lækir komu, og
stormar blésu og buldu á því húsi, og það