Stjarnan - 01.06.1955, Blaðsíða 7
STJARNAN
47
lögmáli Guðs. Þeir eru það hvort sem vér
sjáum þá eða ekki. Eigum vér ekki með
einlægni og alvöru að biðja með sálma-
skáldinu: „Ljúk upp augum mínum, að
ég megi skoða dásemdirnar í lömáli þínu“.
Hvað það mun kosta er sem ekkert í
samanburði við fegurðina sem opinberast
fyrir oss og umbun réttlætisins, ef vér
hlýðum boðorðum hans.
—NICHOLAS ROCHEMONT
-----------☆------------
Starf Sjöunda dags Aðventista
Meðlimatala þeirra nú út um heiminn
er 924,822. Sjúkrahús, skólar, prentsmiðj-
ur, forlagshús og heilsuhæli í 197 löndum
eru 550.
Safnaðarmeðlimir í Norður-Ameríku
gáfu að meðaltali 174,70 dollara til starfs-
ins heima og erlendis.
Yfir tvær miljónir, menn, konur og
börn, fengu læknishjálp á 181 sjúkrahúsi
víðs vegar um heiminn.
Læknar, hjúkrunarkonur, trúboðar og
kennarar, útlendir og innlendir, sem
vinna fyrir kaupi hjá Sjöunda dags Að-
ventistum annars staðar en í Norður-
Ameríku eru að tölu 24,374.
Yfir þrjár og hálf miljón stykki af íveru-
fatnaði og rúmfötum, og yfir ein og hálf
miljón körfur af matvælum var gefið hin-
um þurfandi.
☆ ☆ ☆
1600 dollara þarf til að kaupa Auto eða
lítinn flutningsvagn fyrir starfið í fjall-
bygðum Boliviu.
135 dollarar nægja til að mæta þörfum
sjúklinga og starfsmanna við Ngoma
sjúkrahúsið í Belgían Congo fyrir einn dag.
112 dollarar nægja til að byggja 12 íveru-
kofa fyrir holdsveika í Malamulo, þar sem
þeir geta dvalið meðan Verið er að lækna
þá.
67.20 dollarar borga kostnaðinn við að
kenna innfæddri stúlku hjúkrun í 18
mánuði á Zaudita hjúkrunarskólanum í
Ethiopiu.
11.20 dollarar nægja til að kaupa meðul
fyrir eina lækningatilraun handa einum
holdsveikum sjúklingi á hálendi Nýju-
Guineu.
52 cent borga fyrir gallón af gasolíni á
Gold Coast trúboðsstöðinni.
Trúboðssvæðið í Belgían Congo tekur
yfir 900,000 ferhyrnings-mílur. 46,700
manns fengu hjálp þar á sjúkrahúsinu og'
í holdsveikra nýlendunni, en þeir eru
margfalt fleiri meðal hinna 14 miljón íbúa,
sem þurfa hjálp en geta ekki fengið hana
vegna skorts á fé og útbúnaði.
☆ ☆ ☆
Þessar skýrslur eru fyrir árið 1953 vegna
þess að þetta kom á prent áður en allar
skýrslur voru komnar inn fyrir árið 1954.
Hversu þakklát vér ættum að vera sem
búum í Norður-Ameríku. Hér er nokkurs
konar Paradís í samanburði við mörg
önnur lönd í heiminum. —S. J.
-----------☆------------
Leiðarljósið
Hvað hefðir þú gjört, ef þú hefðir keyrt
flutningsvagninn þann morgun á hæðum
Pennsylvania-ríkis? 1 vagninum voru 40
ungar stúlkur á leið til skólans. Þegar
keyrslumaðurinn var að keyra niður hæð
eina fann hann sér til skelfingar, að hann
gat ekki stöðvað vagninn. Nú nálgaðist
hann næsta viðkomustað, þar sem mörg
börn biðu þess að komast á vagninn. Hann
blés ákaft til þess að börnin vissu, að
hann réð ekkert við vagninn. Þau þutu
öll í burt nema ein stúlka, sem virtist frá
sér af hræðslu. Keyrslumaðurinn varð nú
á augnabliki að ráða með sér, hvort hann
ætti að eiga á hættu að hitta stúlkuna
eða stýra vagninum til að steypast yfir
bakkann. Hann réð af að vernda barna-
hópinn í vagnirium.
Fáir meðal vor þurfa að ákveða sig með
svo alvarlegt atvik, en margir verða að
taka ákvörðun sína þegar þeir gjarnan
vildu komast hjá því. Lífið ber með sér
kringumstæður, þar sem vér stöðugt verð-
um að taka ákvörðun vora, og vér vitum
aldrei hve mikilvægar afleiðingar geta
orðið af vali voru bæði fyrir sjálfa oss og
aðra.
Skynsamt ungt fólk, sem les Biblíuna,
biður til Guðs og óskar eftir að gjöra hans
vilja, fær skilning á mismuninum á réttu
og röngu. Líferni Krists, lögmál Guðs, 10
boðorðin og Biblían í heild sinni er áreið-
anlegur leiðarvísir fyrir vegfarandann á
hinum m|óa vegi, sem liggur til vors him-