Stjarnan - 01.11.1956, Page 1

Stjarnan - 01.11.1956, Page 1
STJARNAN NÓVEMBER, 1956 LUNDAR, MANITOBA Ótæmandi uppspretta sannrar hamingju I. E. Allenby, yfirforingi brezka hersins í Austurlöndum, var að leggja fram fyrir undirforingja sína hvernig bezt væri að ráðast á þorpið Michmash, sem var í hönd- um Tyrkja. Þetta var 13. febrúar 1918, áður en fyrra heimssríðinu var lokið. Einn af undirforingjum hans fór að rifja upp með sér að hann hefði fyr heyrt nafnið á þessu þorpi, en hann mundi ekki hvar, eða nær. .Hann gat ekki sofnað og hélt áfram að hugsa um þetta. Alt í einu datt honum í hug að þetta væri pláss talað um í Biblíunni. Brátt fann hann greinar þar sem þorpið er nefnt í 1. Sam. 13. og 14. kapítula. Hann flýtti sér nú til yfirforingjans, vakti hann og benti honum á bardaga, sem þar hafði átt sér stað þrjú þúsund árurri áður. Biblían segir að Jónatan og skjaldsveinn hans hafi klifrað upp milli tveggja kletta, Boles og Sene, og hefðu sigrað her Filistea. Yfirforinginn hélt það væri þess vert að rannsaka, og sendi menn til að kanna plássið. Þeir fundu klettana og önnur landamerki og sögðu frá. Nú rannsökuðu foringjarnir nákvæmlega frásögn Biblí- unnar og breyttu áformi sínu hvernig að ráðast á þorpið. Næsta morgun sendu þeir fáeina brezka hermenn sömu leið og Jónatan hafði farið. Þeir komu Tyrkjum á óvart og 'gekk létt að reka þá í burtu. Þetta er að líkindum í eina skiptið í mannkynssögunni þar sem nákvæmlega var farið eftir stríðsaðferð Biblíunnar til að ná sigri á verulegum bardagavelli. Ég veit það ekki. En hitt er víst, að fylgja Biblíunni hefir veitt mönnum kraft til að lifa sigursælu lífi og njóta innri friðar á erfiðleikatímum, styrk til að standa móti freistingum, örugga von fyrir ókomna tím- ann og miklu meira fyrir miljónir manna. Eilífðin ein getur leitt í ljós, hversu oft Biblían hefir veitt mönnum sigur yfir synd og freistingum. Ég hef svo árum skiptir safnað vitnis- burðum merkra manna og kvenna út um heiminn viðvíkjandi skoðun þeirra á Biblí- unni. Þar á meðal Georg Washington, Thomas Jefferson, Abraham Lincoln, Theodore Roosevelt, Franklin Roosevelt, Daniel Webster, Sir Isak Newton, Victoría drotning, Martin Luther, John Wesley og fjölda annara. En nú, í stað þess að bera fram þeirra vitnisburð, ætla ég að segja frá hvers vegna ég les Biblíuna, og hvaða gagn ég hef af því. Fyrst og fremst finn ég, að það er kraft- ur í orðum bókarinnar. Hún veitir mér kraft og hugrekki til að framkvæma það, sem ég annars hefði ekki getað gjört. Sumir textar styrkja trú mína, t. d.: „Alt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið þess vegna og kennið.“ „Fafnaðarerindi Krists er kraftur Guðs til sáluhjálpar.“ ■ „Alt megna ég fyrir Krist, sem mig styrkan gjörir.“ „Honum sem megnar að gjöra langt fram yfir alt sem vér biðjum c.3a skynjum, eftir þeim krafti sem í oss verkar.“ Nýlega ferðaðist ég til að heimsækja fjölskyldu, sem hafði tekið Biblíu-lexíur með pósti, og hafði nú óskað eftir að ein- hver kæmi í heimsókn. Fyrst varð ég að ferðast alla nóttina á hlöðnu litlu skipi. Það var svo fult af pokum, kössum og skepnum og farþegum, að varla var pláss til að setjast niður, því síður til að leggjast út af. Eftir svefnlausa nótt og erfiðan dag komum vér loks að litlu þorpi á sjávar-

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.