Stjarnan - 01.11.1956, Síða 2
82
STJARNAN
ströndinni klukkan 4 um eftirmiðdaginn,
þar sem ég vænti að finna þetta fólk. Mér
til mestu hugraunar frétti ég nú að fólk
þetta hefði flutt 7 kílómetra inn í landið,
og að það tæki að minsta kosti tvo og
hálfan klukkutíma að vaða gegnum mýr-
lendi og lítt færa vegi til að'komast þangað.
Hitabeltisrigningar höfðu gjört þessa götu
að forarsvæði, annars var hún venjulega
farin á hestum. Þetta var alt annað en
hughreystandi. Hér við bættist að sólsetur
yrði eftir einn og hálfan klukkutíma. Ég
var freistaður til að snúa við ofan að bátn-
um og hætta við heimsóknina. En þá datt
mér í hug Biblíuversið: „Hver á meðal
yðár, sem hefði hundrað ^auði og týndi
einum þeirra, mundi hann ekki skilja eftir
þá 99 og fara út á eyðimörkina til að leita
þess, sem tapað var þar til hann fyndi
það?“
Þessi texti réð úrslitunum fyrir mig. Ég
tók af mér skóna og óð í gegn um bleytuna,
sumstaðar voru pollarnir upp fyrir hné,
með sand og þyrna inn á milli. Seinasta
klukkutímann notaði ég vasaljós og öslaði
gegn um bleytuna í tunglskininu, komst
loks áfram og fann fólkið, sem ég var að
leita uppi. Ég fékk ríkuleg verðlaun fyrir
ómakið, því ég fann ekki einn heldur fimm
sem óskuðu eftir að finna hinn góða hirðir
og tilheyra hjörð hans.
Það er sönn fegurð í Biblíunni. Hilaire
Belloc sagði einu sinni að hvaða rithöf-
undur sem væri mundi fúslega gefa sitt
hægra auga til að geta ritað annað eins og
þetta: „Þótt ég tæki vængi morgunroðans
og byggi við hið yzta haf, jafnvel þar
mundi þín hönd leiða mig og þín hægri
hönd halda mér föstum.“ Sálm. 139:9.—10,-
Hvaða skáld mundi ekki óska að geta
skrifað eins og Jesajas: „Já, með gleði
skuluð þér út fara og í friði leiddir verða,
fjöll og hálsar skulu upphefja fagnaðar-
söng yfir yður og öll skógartrén klappa
lof í lófa. í stað þyrna skal fura upp vaxa,
í stað þyrna myrtuviður.“
Hefir þú nokkurn tíma staðið við
krystalskæran foss, sem kom niður af
fjalli, er minti þig á sönginn: „Áin mun
samt og hennar rennur gleðja Guðs stað,
hinn heilaga bústað hins hæsta.“ Hefir þú
staðið þar sem þú gast alt umhverfis
séð, himinhá fjöll er mintu þig á að: „Þú
Drottinn varst vort athvarf frá kyni til
kyns. Áður en fjöllin fæddust og þú til-
bjóst jörðina og heiminn, já, frá eilífð til
eilífðar ert þú Guð.“
Biblían veitir mér líka innri frið. Hver
einasti maður sem trúir Biblíunni finnur
frið og hugrekki í þessum dýrmætu lof-
orðum: „Frið' læt ég eftir hjá yður, minn
frið gef ég yður, ekki eins og heimurinn
gefur gef ég yður. Hjarta yðar skelfist
ekki né hræðist." Jóh. 14:27. „Þá mun frið-
ur Guðs sem er æðri öllum skilningi halda
yðar hjörtum og hugsunum stöðuglega við
Jesúm Krist.“ Fil. 4:7.
Einn af uppáhalds textum mínum er
Jes. 40:15. „Sjá, þjóðirnar fyrir honum eru
sem dropi í vatnsskjólunni og sem gróm á
metaskálinni. Sjá, hann sveipar burtu
fjarlægum landsálfum eins og ryki.“ Það
er gott að vita, að bak við þjóðirnar er
leiðandi hönd, miklú sterkari en nokkur
þeirra eða þær allar samanlagðar. Ekkert
getur komið fyrir þjóðir né einstaklinga
nema hann leyfi það. Þetta leiðir oss til
að taka undir með Davíð og segja: „Því
hræðumst vér ekkert þó jörðin fari úr lagi
og fjöllin flytjist mitt út í hafið.“
Biblían hefir boðskap fyrir oss alla. Þau
vers, sem hjálpa mér mest eru ekki ef til
vill þau, sem þú þarfnast mest. Það er
hrífandi að rannsaka Biblíuna og finna
það, sem bezt mætir vorri eigin þörf. Vér
getum líkt Biblíunni við námu. Þú leitar
að gulli í henni, svo fer þú yfir það sama
aftur og finnur enn dýrmætan fjársjóð.
Ég er á sama máli og Abraham Lincoln,
er hann sagði: „Biblían er sú bezta gjöf,
sem Guð hefir veitt mönnunum. í henni
hef ég fundið kraft, fegurð, frið og von,
og góðan leiðarvísir fyrir hversdagslífið.“
í nærri 25 ár, síðan ég fyrst var fær um
að lesa, hef ég leitað uppi hina fólgnu fjár-
sjóði Biblíunnar. En ég er viss um að það
er margfalt meira að finna. Vilt þú ekki
leita að þessum fólgnu fjársjóðum með
mér?
—RICHARD H. UTT
-------------------------
Tuttugu og tvær miljónir amerískra
heimila nota náttúrlegt gas, auk þess eru
tvær miljónir iðnaðarhúsa sem nota
náttúrlegt gas, og helmingurinn af öllu
þessu gasi er framleiddur í Texas-ríkinu.