Stjarnan - 01.11.1956, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.11.1956, Blaðsíða 5
STJARNAN 85 einn vindlinginn upp að munni sér, en alt í einu féll hendin niður og hann blóð- roðnaði. „Fyrirgefðu mér,“ bað hann og faldi vindlinginn. „Þetta er eitt af því, sem ég hef byrjað á og verð að leggja niður, ef ég á nokkurn tíma að verða maður. Ég skal segja þér, Mrs. Grant, ungur maður ætti fyrir fram að fullvissa sig um að það sem hann hefir í hyggju sé þess vert að byrja það og halda því áfram.“ Endir sögunnar er sá, að ungi maðurinn -fann trúa vini á þessu heimili þar sem hann fyrst bað um vinnu. Hann var hvattur til að hjálpa sér sjálfur, koma fram sem sannur maður og byrja aðeins á því, sem vert var að halda áfram með. Þennan sama dag .kastaði hann burtu vindlingunum og tötralegu fötunum, sem hann hafði notað á flækingi sínum. Hann hafði langa leið að fara, en hann gafst ekki upp. Hvílíkur fagnaðarfundur það var þegar hann kom heim aftur. Ást- vinir hans vissu ekki hve langt hann hefði vilst af þeim vegi sannleika og réttlætis, sem honum var kenndur á æskuárunum. Síðastliðinn vetur var hann á College, hafði unnið sér inn skólagjaldið sjálfur sumarið áður. Þetta sumar er hann úti aftur að selja bækur og væntir að fara aftur á skólann næsta september. Hann segir: „Að afla mér mentunar er nokkuð, sem ég hef byrjað og er þess vert að halda áfram þar til takmarkinu er náð. En því er nú í rauninni aldrei lokið, því maður getur aflað sér þekkingar og tekið fram- förum svo lengi sem maður lifir.“ Vinur minn, er það sem þú tekur þér fyrir þess vert að keppa við það? Verður það þér og ástvinum þínum til gagns og ánægju? Ákveður þú í flýti hvað þú skulir gjöra, eða athugar þú rólega með sjálfum þér hver verði áhrifin og afleiðingarnar? Orsök og afleiðing fylgja hver annari, ekki verður hjá því komist. Sérhvert orð og verk ber ávöxt, hvort sem oss geðjast það eða ekki. Ungi maðurinn, sem vér þegar höfum lesið um, reykti svo mikið þessi ár, sem hann var á flækingi, að hann veikti hjarta sitt, sem áður var ekki hið hraustasta. Nú verður hann að gæta sín við of mikilli áreynslu því hann veit að ofraun eða ógæzla einu sinni gæti orðið til þess að hann alveg misti heilsuna. Það sem hann þráir mest þegar námi er lokið er að verða útlendur trúboði. En hann verður að kjósa léttari stöðu og bera sinn kross. Hugsaðu um hvað þú vilt gjöra í dag og hvaða áhrif það hefir á framtíð þína. y —L. E. C. -----------☆------------ Hver er mismunurinn? Einn morgun þegar ég opnaði skólabók- ina mína sá ég að móðir mín hafði límt miða á fremstu blaðsíðuna með þessum orðum : „Dauður er ég ekki, Sir Andrew hrópa vann, særður get ég verið, en ekki drepinn. Ég legst niður, það blæðir um stund. Svo stend ég upp og fer að berjast aftur.“ Þessar línur hafa oft hjálpað mér gegn um erfiðleikana. Heimsins börn gjöra það sem rangt er, en Guðs börn falla fyrir freistingu og gjöra hið sama. Hver er mismunurinn? Annar syndgar og kærir sig hvergi, hann hefir enga samvizku af því. Hinn vill gjöra það sem rétt er, en er veikur fyrir og stenst ekki freistinguna. Gistihúsið stendur við fjallsræturnar. Snjóþakin brött hæð stendur að baki þess. Þú sér smáa dökka díla á hreyfingu upp í nær því þverhnýptri hæðinni. Það eru menn og konur, sem byrjuðu að klifrast upp fyrir fjórum til fimm klukkustundum síðan í von um að geta klifrast alla leið upp á fjallsbrúnina. Vér skulum nú horfa gegn um sjónauk- ann hvernig þeim gengur áfram. Þú spyr hvað þetta sé sem þeir draga á milli sín. Það eru kaðlar, sem þeir hafa með sér til vara ef einhver skyldi sleppa úr spori. Líttu á manninn 1 miðjum hónpum. Hann hefir mist fótanna. Ætli hann deyi? Nei, vinir hans hafa gott hald á honum, hann dinglar í lausu lofti. Nú hafa þeir dregið hann upp og hann er úr allri hættu. Ég þekti ungan mann, sem hélt að hann væri svo góður að klifrast, að hann gæti farið einsamall. Hann fór, en hrapaði. Svo lá hann tvo sólarhringa meðvitundarlaus í snjónum. Þegar hann fanst var hann nær því gegnfrosinn. Það leið heil vika áður

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.