Velferð - 01.12.1995, Síða 4
----- --------------
5 félagar fá gullmerki
Sigurður tekur í hönd Sigurveigar. Hallur flytur þakkartölu.
Stjórn Landssamtaka hjarta-
sjúklinga ákvað nýlega að
heiðra 5 félaga sína og færa
þeim gullmerki samtakanna,
sem er barmnæla úr gulli með
merki samtakanna.
Af þessu tilefni var efnt til hófs á
Hótel Sögu, og þar sagði Sigurður
Helgason, formaður LHS, m.a. að öll
félög eigi að sýna sínum bestu
félögum ræktarsemi í verki og sýna
þakklæti fyrir vel unnin störf. Sigurður
kallaði fyrst fram Ingólf Viktorsson,
sem var fyrsti formaður LHS frá 1983
til 1990 og sat í stjórn til 1994.
Ingólfur hefur verið starfsmaður hjá
okkur í mörg ár, sagði Sigurður, og er
enn í fullu fjöri, hefur með öll
samskipti við félögin að gera og er
mjög ötull í starfi.
Næstur var Jóhannes Proppé kall-
aður fram, en hann hefur verið
gjaldkeri frá upphafi og haldið vel utan
um fé samtakanna. „Ef menn eru búnir
að eyða of miklu, eða gefa of mikið,
þyngist brúnin á Jóhannesi. Jóhannes
er dugnaðarforkur og hefur verið
okkur mikil stoð og styrkur. Hann er
nú í hlutastarfi fyrir LHS“, sagði
Sigurður.
Þá var röðin komin að Birni Bjarm-
an, en hann var einn af stofnendum
félagsins og fyrsti ritari stjórnar.
„Hann hefur verið ötull í starfi,
tillögugóður og málefnalegur. Áhrifa
hans hafa gætt mikið í okkar félagi“,
sagði Sigurður um leið og hann afhenti
merkið góða.
Að lokum hlutu hjónin Hallur
Hermannsson og Sigurveig Halldórs-
dóttir gullmerki samtakanna. Sigurveig
hefur verið í stjórn samtakanna frá
upphafi fram til ársins 1994.
„Styrktarsjóður hjartasjúklinga er
baráttumál Sigurveigar, sjóður sem í
eru 5 miljónir króna í dag. Sigurveig er
enn formaður sjóðsins og við erum
stolt af því hvað hún hefur unnið vel
og lengi fyrir samtökin“, sagði Sig-
urður.
„Hallur er afar skeleggur og ein-
beittur maður“, sagði Sigurður, „og
hann hefur verið skrifstofustjóri og
ritstjóri Velferðar síðari árin. Hallur á
gott með að umgangast fólk og hafa
áhrif á það til góðs. Fjársafnanir okkar
sumar kynnu að hafa farið illa ef við
hefðum ekki notið aðstoðar hans. Þá er
Hallur, eins og Björn Bjarman og
fleiri, mjög ritfær og ritstýrði Velferð
með miklum sóma, gerði blaðið
merkilegt og athyglisvert og það sýnir
hve margir eiginleikar búa í þessum
ágæta manni“.
Sigurður nefndi síðan hverjir væru
fallnir frá af þeim sem sátu í fyrstu
stjóm LHS.
„Samtök okkar byggjast á því að við
höldum alltaf kraftinum", sagði Sig-
urður ennfremur, „um leið og deyfð
færist yfir félögin er voðinn vís. Það er
afar mikilvægt að standa vörð um
okkar hagsmuni innan velferðarkerfis-
ins, sem á nú undir högg að sækja. Við
höfum náð miklum og góðum árangri í
baráttunni við hjartasjúkdóma og
megum því ekkert slaka á í þeirri
baráttu.“
Björn Bjarman sló strax á léttari
strengi og sagði að aðeins hann og
Hallur væru hæfir til að þakka fyrir sig
því allir hinir væru enn að starfa fyrir
LHS. „Ég er sá ykkar sem fór fyrstur í
hjartaskurð, það em rétt að verða átján
ár síðan ég fór til London. Þegar ég
kvaddi enska lækninn sagði hann:
Þetta hefur nú gengið ágætlega og þú
getur alveg reiknað með svona 5-7
árum. En hér stend ég enn og get
meðal annars þakkað því miklum
framförum í læknastétt og góðu starfi
LHS, sem ég met mikils þótt ég hafi
kannski á köflum verið uppi með
gagnrýni“.
Hallur þakkaði fyrir sig og konu sína
og sagði að „sér kæmi til hugar vísa
eftir Þuru mína í Garði sem var
vinkona mín hér fyrr á árum. Þura fékk
einu sinni símskeyti sem var svona:
Þura í Garði þraukar hér
þögl á vatnsins bakka
ef hún kynntist meira mér
myndi hún eignast krakka.
Þura svaraði um hæl:
Ekki þarf að efa það
að ég þakka skeytið,
nefndu drengur stund og stað
og stattu við fyrirheitið.
Við eigum ekki nema hluta af því
lofi skilið sem formaðurinn okkar bar
á okkur. Það er siður á tilhaldsdögum
að hafa uppi skrúðmælgi í ræðum,
enda yrðu þær helv. leiðinlegar annars.
Við höfum verið hluti af þeim kjarna
sem hefur starfað fyrir þetta félag frá
upphafi og erum þakklát fyrir það að
hafa unnið með svo ágætu fólki.
Sérstaklega viljum við þakka sam-
4