Velferð - 01.12.1995, Síða 10
------------ [PÉlLMllllÁlL ----------------
Félaa hiartasiúklinaa á Revkjavíkursvæðinu
Öflugt og mannmargt félag
Innheimta félagsgjalda gengur mjög vel
Fundcirmenn rísa dfœtur og gera teygjuœfmgar undir eggjunarorðum Auðar og
Sólrúnar.
Félag hjartasjúklinga á
Reykjavíkursvæðinu hélt al-
mennan félagsfund 11. nóv-
ember sl. að Hótel Sögu. For-
maður félagsins, Jón Þór
Jóhannsson, hélt erindi um
störf félagsins og sagði hann
m.a.:
„Félagsmönnum
okkar hefur
haldið áfram að
fjölga og erum
við orðin alveg
um 1600 og
mun hafa fjölg-
að hlutfallslega
örlítið meira í
okkar félagi en í
öðrum félögum landssamtakanna.
Við héldum aðalfund í mars og var þá
endurkosin stjórn félagsins - Jón Þór
Jóhannsson, formaður, Steingrímur
Jónasson, varaformaður, Jón Mýrdal
ritari og Rúrik Kristjánsson, gjaldkeri.
Meðstjórnendur eru Ingibjörg Olafs-
dóttir, Auður Olafsdóttir og Asgeir Þór
Arnason. Varamenn voru kosnir
Lillian Simson, Tómas H. Jóhannsson
og Kristinn Þórhallsson.
Fjárhagsstaða félagsins er góð og hafa
árgjöld innheimst í svipuðu hlutfalli og
áður, eða á milli 80-90% og erum við
þakklát fyrir það. Ekki hafa verið mikil
fjárútlát hjá okkur á þessu ári. Stjórn
félagsins ákvað þó að gefa Land-
spítalanum tölvuforrit og búnað fyrir
230 þús. kr. til þess að halda utan um
sjúkraskrá og biðlista hjartasjúklinga.
Síðan styrktum við yfirsjúkraþjálf-
arana á HL stöðinni, þær Auði og
Sólrúnu, með 200 þús. til að sækja
ráðstefnu í sínu fagi í Bandaríkjunum.
Jón sagði frá fundi sem hann og Björn
Magnússon læknir sóttu hjá Nordisk
Hjerte Union. Jón kynnti þar merki-
lega rannsókn sem Tóbaksvarnaráð
hefur látið gera um reykingavenjur
barna og unglinga frá 10-18 ára aldurs
og Björn, sem var fulltrúi Hjarta-
verndar á fundinum, lýsti aðalfæðu-
tegundum Islendinga samkvæmt rann-
sóknum Manneldisráðs.
Ár hjartans 1999
Á fundinum var samþykkt að stefna að
því að árið 1999 verði ár hjartans í
Evrópu og var Jón kosinn í nefnd til að
Úr einu í annað
Norska ríkisstjórnin hefur í umræðum
um heilbrigðismál á norska Stórþinginu
lofað að leggja fram umtalsverðar fjár-
hæðir til að draga úr löngum biðlista sjúkra
er bíða eftir aðgerðum. í desember fyrir ári
biðu 244 þúsund sjúklingar eftir að komast
í aðgerð á spítölum og af þeim höfðu rúml.
62 þús. beðið lengur en 6 mánuði.
I rannsókn sem samtök hjúkrunarfólks í
Noregi hafa látið gera vill 79% þjóðarinnar
að meira fé sé veitt til sjúkrahúsa og til
heilsugæslu, og 74% töldu að biðlistar
væru brýnasta vandamálið að leysa í dag.
Hjarta- og lungnafélögin í Noregi hafa
huga að undirbúningi fyrir hjartaárið.
Gert er ráð fyrir að þetta ár verði
sérstaklega notað til fjáröflunar um
leið og kynnt verður staða hjarta-
sjúkdóma og hjartasjúklinga í hverju
landi fyrir sig.
I lokin hvatti Jón viðstadda til að muna
eftir Styrktarsjóði hjartasjúklinga
þegar send eru minningarkort.
að undanförnu barist af hörku fyrir auknum
réttindum sjúklinga, m.a. í þá veru að þeir
eigi allir jafnan aðgang að sérfræði-
þjónustu, geti valið um sjúkrahús þótt það
sé í öðru fylki en viðkomandi býr o.s.frv.
Ekki vildi ríkisstjómin lofa öðru á þessum
vettvangi en að í hverju fylki skyldi koma
staða umboðsmanns sjúklinga.
(Heimild Trygd og Arbeid)
2m
SVARTISVANURINN
SÖLUTURN - MYNDBANDALEIGA - ÍSBÚÐ
LAUGAVEGI 118 REYKJAVÍK - SÍMI 551 6040
10