Mosfellingur - 22.02.2008, Qupperneq 4
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar4
KIRKJUSTARFIÐ
Helgihald næstu vikur:
24. febrúar
Guðþsjónusta í Mosfellskirkju
kl. 11. Kammerkór Mosfellsbæjar
syngur.
Organisti: Jónas Þórir
Prestur: Sr. Jón Þorsteinsson
Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju
kl. 13.
2. mars
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar
Barna- og fjölskyldusamvera í
Lágafellskirkju kl. 13.
Barnakór syngur, Leikbrúðuland
verður með leiksýningu og fl.
Allir velkomnir
9. mars
Fermingarguðsþjónustur
að Lágafelli kl. 10:30 og 13:30.
16. mars - Pálmasunnudag.
Fermingarguðsþjónustur
að Lágafelli kl. 10:30 og 13:30
Lista yfir fermingarbörn þessa
vors er hægt að nálgast á
heimasíðu safnaðarins.
Hægt er að nálgast allar upplýs-
ingar um helgihald og safnaðar-
starf Lágafellssóknar á heimasíðu
kirkjunnar: www.lagafellskirkja.is
www.lagafellskirkja.is
Hjáleiðir á Reykja-
vegi fram á vor
Vegna framkvæmda Vegagerðar
og Mosfellsbæjar við fyrirhugað
hringtorg á gatnamótum Jóns-
teigs, Stórakrika og Reykjavegar,
verður tímabundin aðkoma að
Teigahverfi í gegnum Völuteig
og Víðiteig. Gert er ráð fyrir að
loka við Jónsteig, ofan Víðiteigs,
í fjóra mánuði. Tímabundin
aðkoma að Krikahverfi verður í
gegnum Sunnukrika og hjáleið af
Reykjavegi.
SÓKN Í SÓKN
– LIFANDI SAMFÉLAG
Vertu með í sókninni!
Í þriðja sæti yfir
draumasveitarfélag
Mosfellsbær er í þriðja sæti á
lista tímaritsins Vísbendingar
um draumasveitafélagið, en það
er það sveitarfélag sem er best
statt samkvæmt nokkrum mæli-
kvörðum sem þeir gefa sér.
Í listanum er 38 sveitarfélögum
gefin einkunn og skera þrjú
sveitarfélög sig nokkuð úr og fá
einkunn yfir 7. Garðabær er þar
efstur með einkunnina 8,4 en þar
á eftir koma Seltjarnarnes með
7,3 og Mosfellsbær með 7,0. Mos-
fellsbær hækkar sig úr 6. sæti með
einkunnina 6,3. Við skiptum um
sæti við Kópavog sem fellur úr 3.
sæti niður í 6. sæti. Í úttektinni
er horft til lágrar skattheimtu,
hóflegrar íbúafjölgunar, afkomu
sem hlutfalls af tekjum, hlutfalls
skulda af tekjum og veltufjár-
hlutfalls.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra og Haraldur
Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæj-
ar, undirrituðu í vikunni samkomu-
lag um stofnun og byggingu fram-
haldsskóla í Mosfellsbæ. Skólinn
mun rísa í miðbæ Mosfellsbæjar og
stefnt er að því að skólastarf hefjist
þar haustið 2009. Skólinn verður
fyrsti framhaldsskóli Mosfellsbæjar
og jafnframt sá fyrsti sem stofnaður
er á vegum opinberra aðila á höfuð-
borgarsvæðinu frá því að Borgar-
holtsskóli hóf störf árið 1996. Með
honum verður gerbylting í mennta-
málum í Mosfellsbæ og nágrenni.
Skólameistari hefur störf í haust
Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir
allt að 4.000 fermetra byggingu
sem rúmar 400-500 nemendur. Við
ákvörðun lóðarstærðar verður gert
ráð fyrir möguleikum til verulegrar
stækkunar í framtíðinni og við hönn-
un hússins og undirbúning skóla-
starfs verður lögð áhersla á sveigjan-
leika og möguleika til nýbreytni.
Skólameistari mun hefja störf eigi
síðar en haustið 2008. Hann mun
ásamt öðrum ráðgjöfum vinna að
undirbúningi, stofnun og uppbygg-
ingu skólans í samvinnu við Mennta-
málaráðuneyti og Mosfellsbæ. Í
samningi milli aðila er gert ráð fyrir
að Mosfellsbær muni hafa mikil áhrif
á uppbyggingu og stefnu skólans al-
veg frá byrjun og sjá um byggingu
hans fyrir hönd ráðuneytisins.
Hluti af miðbæjarskipulagi
„Við hjá Mosfellsbæ viljum vera
leiðandi á sviði menntunar og skóla-
starfs,“ segir Haraldur Sverrisson
bæjarstjóri. „Nú getur ungt fólk í
Mosfellsbæ sótt menntun upp að
háskólastigi í sinni heimabyggð.
Að staðsetja framhaldsskólann í
miðbænum er geysilega mikilvægur
áfangi í uppbyggingu miðbæjarins.
Skólinn mun gæða miðbæinn lífi og
auka þar á flóru fjölbreytts mannlífs
menningar og þjónustu. Þessi staður
milli Vesturlandsvegar og Háholts
var valinn besti staðurinn fyrir fram-
haldsskólann í sérstakri staðarvals-
athugun sem unnin var fyrir um
tveimur árum.“
Skólinn verði bóknámsskóli
„Næsti framhaldsskóli við Mos-
fellsbæ er Borgarholtsskóli og hann
er verkmenntaskóla, því er eðlilegt
að horft verði til bóknámsskóla í
Mosfellsbæ“ segir Haraldur en sam-
kvæmt frumdrögum af þarfagreinin-
gu fyrir skólann sem fór fram í fyrra
með viðræðum við alla stjórnmála-
flokka í bænum er gert ráð fyrir að
skólinn verði bóknámsskóli.
Haraldur segir jafnframt að hugur
standi til að í áhersluþáttum í starfi
skólans verði horft til umhverfis- og
orkufræða í víðum skilningi. Þá er
horft til heilsu-, íþrótta og menn-
ingarnáms sem gæti verið í samstarfi
við slíka starfssemi hér í bænum
eins og Reykjalund, Listaskólann og
íþróttafélögin. Upplýsingatækni hef-
ur einnig verið nefnd sem einn af
áhersluþáttunum.
„Persónulega væri ég ekkert á
móti því að form skólans yrði hefð-
bundinn menntaskóli og mundi þá
heita Menntaskólinn í Mosfellsbæ,
MM, en fjölbrautarskólaformið kem-
ur vissulega til greina líka” segir bæj-
arstjórinn að lokum.
Áhersla á heilsu-, íþrótta- og menningarnám auk umhverfis- og orkufræða
Framhaldsskóli í nýjum miðbæ
STAÐSETNINGIN
Loftmyndir ehf.
Bæjarfulltrúar og mennta-
málaráðherra við undirritun
samninga um framhaldsskóla.
Starfsmenn bæjarins og
aðrir gesti á þessum gleði-
degi fyrir Mosfellinga.