Mosfellingur - 22.02.2008, Page 6

Mosfellingur - 22.02.2008, Page 6
ELDRI BORGARAR - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar6 Leikhúsferð verður í Þjóðleikhúsið á leikritið Sólarferð eftir Guðmund Steinsson, þriðjudaginn 18. mars kl. 14. Lagt verður af stað frá Hlaðhömrum kl. 13.30 Miðaverð er kr. 2.500,- og eru miðarnir til sölu á skrifstofu Félagsstarfsins á Hlaðhömrum kl. 13-16 til 14. mars. Línudans, námskeið er á þriðjudögum á Hlaðhömrum kl. 17. Postulínsmálun. Námskeið byrjar laugardaginn 1. mars kl. 11. Skráning er í síma 586-8014 kl. 13-16. Við fylgjumst með hópi íslenskra ferðamanna sem eru samankomnir á spænskri sólarströnd. Þessa dugnaðar- forka, afkomendur víkinganna, þyrstir nú í að njóta lífsins lystisemda á þessum heita, framandi stað, þar sem allt flóir í ódýru áfengi og boð og bönn hins venju- bundna lífs eru víðs fjarri. Leit ferðafélaganna að lífs- hamingju í þessu „himnaríki holdsins“ birtist okkur á bráðfyndinn hátt, en undir niðri kraumar sársauki sem erfitt er að leyna. L E I K H Ú S S Ó L A R F E R Ð Miðaverð fyrir meðlimi STÍS er kr. 1.500 fyrir fyrstu tvo miðana. Aðrir miðar eru á 2.600 kr Skráning fer fram á meðfylgjandi blaði eða með því að senda tölvupóst á stis@istak.is Skráningu lýkur kl 13 mánudaginn 18. feb. 2008 Leikstjóri Benedikt Erlingsson Höfundur Guðmundur Steinsson Leikmynd Ragnar Kjartansson Búningar Margrét Sigurðardóttir Ragnar Kjartansson Lýsing Lárus Björnsson Leikarar Edda Arnljótsdóttir Esther Talía Casey Halldóra Björnsdóttir Ingvar E. Sigurðsson Juan Camilo Román Estrada Kjartan Guðjónsson Ólafía Hrönn Jónsdóttir Þröstur Leó Gunnarsson Leikritið Sólarferð í Þjóðleikhúsinu Sýningardagur er laugardagskvöldið 15. mars. Kl. 20:00 Miklar skemmdir á innanstokksmunum eftir að eldingu laust niður í garðinum Mildi að ekki kviknaði í húsinu Kiwanis styrkir kaup á sjúkraþotu Björgunarsveitin Kyndill fékk á dögunum styrk frá Kiwanis- klúbbnum Geysi til að kaupa sjúkraþotu aftan í vélsleða. Þotan er að gerðina Nila og er fjögurra manna. Þotan er með sér styrktri fjöðrun og er mjög góð til að fl ytja sjúklinga í börum. Sjúkraþotan er góð viðbót við þann tækjakost sem Kyndill hef ur yfi r að ráða. Mikið hefur mætt á björgunar sveitinni í þeirri vetrartíð sem verið hefur á landinu að undanförnu. Þrumur og eldingar gengu yfi r í óveðri á dögunum. Myndin er samsett. Ný stjórn Sjálf- stæðisfélagsins Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Mosfellinga var haldinn þann 18. febrúar. Snorri Gissurarson var kosinn nýr formaður félagsins. Með honum í stjórn verða Agla Elísebet Hendriksdóttir, Anna María Einarsdóttir, Egill Örn Einarsson, Hafdís Rúdolfsdótt- ir, Helga Fjóla Sæmundsdótt- ir, Sigríður Hjálmarsdóttir, Þorbjörn Klemens Eiríksson og Örn Johnson. Sérstakur gestur fundarins var Þorgerður Katrín menntamálaráðherra. Atli Bjarnason var einn þeirra íbúa í Reykjahverfi sem urðu fyrir talsverðu tjóni eftir að eldingu laust niður í um 10 metra fjarlægð frá hon- um. Mikið óveður gekk yfi r landið föstudaginn 8. febrúar auk þess sem margir urðu varir við miklar þrumur og eldingar. Elding í 10 metra fjarlægð „Ég hef aldrei lent í öðru eins, veðrið var mjög slæmt og ég var nýbúinn að staðhæfa við Sunnu kærustu mína að við þyrftum ekkert að óttast. Tveimur mínútum seinna stökk ég aðeins út, til að slökkva ljósin á bílnum sem hafði gleymst að slökkva, þá dundu ósköpin yfi r. Ég hef aldrei heyrt svona mikil læti á ævinni, eldingunni laust niður í u.þ.b. 10 metra fjarlægð frá mér. Höggið sem ég fékk á mig frá elding- unni var líka frekar óþægilegt, eins og fá straum úr innstungu. Þetta var ekki skemmtileg lífsreynsla. Okkur var óneitanlega mjög brugðið.” segir Atli Bjarnason. Rafmagnstæki í rúst Eldingin hefur lent á rafmagnsvír í garðinum með tilheyrandi skaða. Um er að ræða vinnurafmagn vegna framkvæmda í hverfi nu. Inni í húsi splúndraðist rafmagnstafl an og þjófavarnakerfi ð, perur sprungu og rafmagnstæki eyðilögðust. All- ar síma línur í húsinu eyðilögðust, örbylgju ofninn, sjónvarp, tölva og fl eira. Atli segist vera vel tryggður og segir að ef fólk sem mögulega hafi orðið fyrir svipuðu tjóni sé í vafa þá eigi brunatrygging að dekka tjón af þessu tagi. Hundruð þúsunda tjón á Reykjalundi Á Reykjalundi urðu menn varir við töluverð óþægindi og nokkurt tjón. „Brunakerfi ð varð illa úti og tölvu- búnaður eyðilagðist. Einnig varð tjón á myndavélakerfi sundlaug- arinnar sem og símkerfi nu. Búið er að skipta um tæki og tól en tjónið hleypur á nokkur hundruð þúsund krónum“ segir Jón M. Benediktsson framkvæmdastjóri Reykjalundar. „Ég man ekki eftir svona löguðu og hef ég ú verið hér viðloðandi len i” sagði Jón að lokum. Þjófavarnarkerfi ð sprakk ma. í tætlur og reyk lagði yfi r íbúðina. Atli með rafmagnsvírinn sem eldingunni sló niður í. Mikið tjón varð á rafmagnstækjum á heimilinu. Á Reykjalundi varð tjón fyrir mörg hundr- uð þúsund krónur vegna eldinganna.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.