Mosfellingur - 22.02.2008, Qupperneq 8

Mosfellingur - 22.02.2008, Qupperneq 8
Íbúar í Mosfellsdal og aðrir gestir blótuðu í Hlégarði í byrjun mánaðar Árlegt þorrablót Dalbúa Hraðastaðahjónin Klara og Bjarni. Vignir í Hlégarði, Þorkell í Túnfæti og Haukur á Ökrum. Þorramaturinn var hið mesta lostæti hjá Vigni og Keli stjórnaði Braki og brestum með tilþrifum. Signý á Furuvöllum og Þóra á Hvirfli fengu viðurkenningu fyrir öfluga undirskriftasöfnun vegna hringtorgsins á mótum Vesturlands- og Þingvallavegar. Birgir og Jórunn létu sig ekki vanta á Dalbúablótið. Birgir rifjaði þar upp gamla takta og lék á trompet með lúðrasveitinni Braki og brestum. Ási og Hrefna úr Hveramýrinni. Ása á Hrísbrú og Dísa Linn. Diddú í Túnfæti og Sveinbjörn á Heiðarbæ. Dísa Anderiman og Kolfinna Baldvins- dóttir. Dísa var í undirbúningsnefnd blótsins og Kolfinna veislustjóri. Tveir góðir: Tóti í Dalsgarði og Haukur í Laxnesi. Ólafur Andrésson frá Laugabóli og Gísli rósabóndi.Mæðgurnar Systa og Gógó frá Sigtúni. Didda tekur við happadrættisvinningi. - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar8 Kjölur eignast nýtt björgunartæki Björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi hefur eignast öflugt fjórhjól ætlað til björgunarstarfa. Hjólið er af gerðinni Can-Am Outlander 800cc. Aukabúnaður á hjólinu er: aukarafgeymir, vhf-talstöð, gps, intercom, xenon leitarljós, blá ljós, spil, álkall, skófla, sjúkrabúnaður, lágmarks klifurbúnaður og línur. Á meðfylgjandi mynd er Þor- björn í MótorMax að afhenda lykla að Kjöl 10 til Birgis Þórs varaformanns Kjalar. Bærinn semur við Vodafone Mosfellsbær hefur gert samning við Vodafone um fjárskiptaþjón- ustu þ.e. borðsíma, GSM og Internet fyrir bæjarskrifstofur, grunnskóla, leikskóla, íþrótta- miðstöð, áhaldahús, vinnuskóla o.fl. Með samningnum nást enn betri kjör en bænum hafa áður boðist í þessa þjónustu auk þess sem nú er unnt að taka upp nýjar leiðir í fjarskiptamálum stofnana bæjarins. Engar breytingar verða á símanúmerum Mosfellsbæjar við þessa breytingu. Á myndinni má sjá Harald Sverr- isson, bæjarstjóra og Árna Pétur Jónsson forstjóra Teymis og Vodafone undirrita samninginn. Í vetur hafa nemendur í 2. ár- gangi lært um jörðina og árstíðirnar í samfélagsgreinum. Ýmis verkefni hafa verið unnin af þeim og það síðasta er glerlistaverkið Jörðin sem er samvinnuverkefni árgangsins. Nemendurnir röðuðu glerbrotum í margs konar litum á eitt stórt rúðugler sem að lokum myndaði jörðina ásamt stjörnum á himinhvolfinu. Verkið var síðan brætt í glerbræðsluofni hjá Glit og trónir nú sem gluggalistaverk í Lá- gafellsskóla. Nemendur og umsjónarkennarar þeirra buðu skólastjóranum Sigríði Johnsen og deildarstjóranum, henni Elísabetu, til hátíðar þar sem verkið var afhjúpað og nemendur sungu lagið „Lítill heimur“ af því tilefni. Hér gefur að líta verkið ásamt nemendum. EJ Glerlistaverk í Lágafellsskóla

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.