Mosfellingur - 22.02.2008, Page 9

Mosfellingur - 22.02.2008, Page 9
Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - 9 Um síðustu helgi afhenti Byggingafélagið Bakki nýjum eigendum fyrstu íbúðirnar við Stórakrika 1. Í þessum áfanga voru sex íbúðir afhentar og eru þetta allt stórar 4ra herbergja íbúðir. Um er að ræða 3ja hæða fjölbýlihús með fimmtán íbúðum og sjö bílskúrum. „Húsið skiptist í tvo stigaganga með lyftu í hvorum stigagangi. Íbúðir- nar voru allar afhentar fullbúnar með gólfefnum og tækjum, m.a. með uppþvottavél, ískáp, þvottavél og þurrkara. Það hefur gengið mjög vel að byggja húsið, við byrjuðum á sökklum í apríl síðastliðnum og rétt tíu mánuðum seinna erum við að afhenta fyrstu íbúðirnar í húsinu,“ segir Örn Kjærnested hjá Byggingafélaginu Bakka. Í tilefni af þessum tímamótum og að þetta er fyrsta fjölbýlishúsið sem er tilbúið í Krikahverfinu, þá bauð Byggingafélagið Bakki bæjarstjórn Mos- fellsbæjar og byggingarnefnd að koma og skoða húsið. „Það er líka gaman að segja frá því að við byggingu hússins reyndum við að beina viðskiptum okkur í bæjarfélagið og fyrir utan okkar eigin starfsmenn, þá fengum við rafvirkja, pípara, málara og jarðvinnuverktaka úr Mosfellsbænum. Þetta skiptir auðvitað miklu máli fyrir bæjarfélagið að sú starfsemi sem þar er fái að njóta góðs af þeirri uppbyggingu sem á sér stað í bænum.” Byggingafélagið Bakki afhendir fyrsta fjölbýlishúsið í Krikahverfi Fyrsta fjölbýlishúsið tilbúið Rauði kross Íslands hefur valið feðgana Sveinbjörn Grétarsson og Tómas Sveinbjörnsson sem Skyndihjálparmenn ársins 2007 fyrir rétt viðbrögð á neyðarstundu. Kona Sveinbjörns, Guðrún Hauksdóttir, hafði fundið fyrir slappleika en ekkert óeðlilegt greinst við læknisskoðun. Seint að kvöldi 26. september var hún að horfa á sjónvarpið þegar Sveinbjörn verður þess var að hún er eins og í krampakasti og hryglir í henni. Hann gerði sér umsvifalaust grein fyrir að hún var meðvitundarlaus, hringdi í Neyðarlínuna og hóf endurlífgun. Vitandi að það getur tekið langan tíma fyrir sjúkrabíl að keyra upp á Kjalarnes þar sem þau búa, sendi hann Tómas, 6 ára son sinn, til að sækja ná- granna þeirra, Þórð Bogason, sem unnið hefur í slökkviliði og sjúkraflutning- um í fjöldamörg ár. Tilviljun ein réði því að Þórður var heima, og aðstoðaði hann Sveinbjörn við endurlífgunina. Þórður kallaði einnig til björgunarsveitina Kjöl, sem kom með súrefni á staðinn áður en sjúkrabíllinn kom og læknishjálp barst. Guðrún hefur náð sér ótrúlega vel af veikindunum. Feðgarnir Sveinbjörn og Tómas á Kjalarnesi Skyndihjálparmenn ársins ����������������������������������������������������������� ���������� � � ���� ���� � �� ��� ��� � �� � ��� ��������� ���� ����� � �� � � � � ��� � �� � � ���� � � ������� Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um fjárframlög til lista- og menningarstarfsemi 2008 Menningarmálanefnd auglýsir eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum frá nefndinni vegna listviðburða og menningarmála árið 2008. Hér undir falla áður árviss fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra. Reglur um úthlutun 1. Rétt til að sækja um framlög til nefndarinnar hafa listamenn, samtök listamanna og félagasamtök, sem vinna að listum og menningarmálum í Mosfellsbæ. 2. Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga: a) Verkefnastyrkir til einstakra verkefna. b) Starfstyrkir til félagasamtaka á sviði lista og menningarmála í Mosfellsbæ. 3. Nauðsynlegt er að umsækjendur tilgreini nákvæmlega til hvaða verka ætlað er að verja framlögunum. 4. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 3. mars 2008 á skrifstofu fræðslu- og menningarsviðs Mosfellsbæjar. Þeim ber að skila á sérstökum umsóknar-eyðublöðum, sem hægt er að fá hjá Þjónustuveri Mosfellsbæjar. Þeir sem óska eftir fá eyðublöðin á rafrænu formi sendi netfang sitt til Þjónustuvers á netfangið: mos@mos.is merkt ósk um eyðublað vegna styrkja til menningarmálanefndar. Rafrænum umsóknum ber að skila á netfangið: bth@mos.is 5. Nefndin áskilur sér rétt til að hafna umsókn umsækjanda að hluta eða alfarið. 6. Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 31. mars 2008 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Fræðslu- og menningarsvið Mosfellsbæjar Þverholti 2 270 Mosfellsbær Það var vel tekið á móti Tomma þegar hann mætti í skólann. Mosfellsbær kominn á kortið Mosfellsbær er fyrsta sveit- arfélagið til að taka kortasjá í gagnið en hún er aðgengileg á vef bæjarins www.mos.is. Kortasjáin auðveldar íbúum að skoða fasteignir sínar og um- hverfi á loftmyndum.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.