Mosfellingur - 22.02.2008, Síða 16

Mosfellingur - 22.02.2008, Síða 16
MOSFELLINGUR HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SENDU OKKUR LÍNU... mosfellingur@mosfellingur.is - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar16 Nýr rekstraraðili tekinn við Ásláki Friðrik Már Ólafsson hefur tekið við rekstri sveitakrárinnar Ásláks. Friðrik býður gamla sem nýja viðskiptavina velkomna. Lögð verður áhersla á fótboltaleiki í beinni útsendingu sem sýndir eru á risaskjá. Bæjarbúar mega búast við breytingum á staðn- um þegar líða fer á sumar en Friðrik er með ýmsar hugmyndir hvernig hann hyggst taka til hendinni og bæta aðstöðu fyrir viðskiptavini sína. Um helgina verður nóg um að vera, spenn- andi leikir á skjánum og trúba- dor á laugardagskvöldið. Vísbending, vikurit um við skipti og efnahagsmál, velur árlega draumasveitar- félagið. Að þessu sinni lenti Mosfellsbær í þriðja sæti og hækkar um þrjú sæti frá árinu áður. Einkunnin sem Mosfellsbær fær er 7,0 og er bærinn rétt á eftir Sel- tjarnarnesi og Garðabæ. Það er afar ánægjulegt að Mosfellsbær lendi svo ofarlega í þessu vali og er það góð viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið hjá sveitarfélaginu á und- anförnum árum. Þeir mælikvarðar sem notaðir eru af Vísbendingu við þetta val eru: • Lág skattheimta • Hófl eg íbúafjölgun • Afkoma sem hlutfall af tekjum sé næst 10% • Hlutfall skulda af tekjum sé næst 1,0 • Veltufjárhlutfall sé næst 1,0 Mosfellsbær skiptir um sæti við Kópavog þetta árið og fer úr sjötta sætinu í það þriðja eins og áður segir. Athygli vekur slök frammistaða Reykja víkur og Hafnarfjarðar í þessu vali en þau lentu í 26. og 37. sæti með einkunnirnar 3,4 og 2,0. Hófl egar álögur og góð þjónusta Mosfellsbær er vel rekið sveitarfélag þar sem sam- an fara hófl egar álögur og góð þjónusta. Hér er mikill metnaður lagður í leik- og grunnskólastarf, hér er góð íþróttaaðstaða með fjöl- breyttu og kraftmiklu starfi og menn ingarlíf er hér með ágætum svo eitt hvað sé nefnt. Mikil uppby- gging er framundan í sveitarfélag- inu, uppbygging sem styrkja mun enn frekar þjóunustuna og mannlí- fi ð. Fram undan er bygg ing þriggja grunnskóla ásamt leikskólum, byg- ging menningar húss, og hér mun hjúkrunarheimili rísa á næstunni. Nú í vikunni var svo skrif að undir langþráðan samning milli Mos- fellsbæjar og menntamálaráðherra um byggingu framhaldsskóla í miðbænum. Það er eftirsóknarvert að búa í Mosfellsbæ. Samanburður við höfuðborgarsvæðið Til að Mosfellingar átti sig betur á skattheimtu og gjaldskrám í sveitarfélögunum á höfuðborgar- svæðinu þá gerði ég samanburð á fasteignagjöldum, leikskólagjöld- um, gjaldi fyrir heitt vatn og út- svari. Reiknuð voru út heildar- gjöld dæmigerðrar fjölskyldu til sveitarfélaganna á ári miðað við ofantalda gjaldstofna. Við útreikn- ing fasteignagjalda var miðað við fasteignamat 150 fm. raðhúss ásamt lóð samkvæmt útreikningi á fasteignamati í sveitarfélögunum frá Fasteignamati ríkisins. Sam- kvæmt því er töluverður munur á fasteignamati sambærilegs húss á höfðuborgarsvæðinu, hæst á Sel- tjarnarnesi en lægst í Mosfellsbæ og Álfta nesi. Leikskólagjöld eru reiknuð sem meðalgjöld 2-5 ára barna, þ.e. tekið er tillit til gjald frjálsrar leik- skólavistar og reiknað út meðalgjald á þessu árabili. Eins og sjá má af töfl unni er greiðslu byrði fasteignagjalda og heits vatns næst lægst í Mosfellsbæ og leikskólagjöld og útsvar er þriðju lægst. Samtals er greiðslubyrði þess- ara fjögurra gjaldstofna næst lægst í Mosfellsbæ. Það er von mín að þessi samanburður á gjöldum sýni raun- sannari mynd á gjaldtöku í Mos- fellsbæ heldur en umræðan og um- fjöllunin um þessi mál hefur oft sýnt. Har ald ur Sverr is son bæj ar stjóri Drauma sveit ar fé lag ið Mos fells bær í verð launa sæti Fasteignamat sambærilegs 150m raðhúss Fasteigna- gjöld á ári Heitt vatn á ári m.v. 1200 tonn Leikskólagjöld á ári (eitt barn 2-5 ára) Útsvar m.v. 7m árstekjur Samtals á ári Reykjavík 39.761.120 174.424 92.161 207.130 912.100 1.385.815 Kópavogur 40.017.880 201.202 92.161 219.164 912.100 1.424.627 Seltjarnarnes 48.637.680 233.805 70.075 300.245 847.000 1.451.125 Garðabær 42.402.080 230.734 92.161 276.870 912.100 1.511.865 Hafnarfjörður 39.174.240 231.010 92.161 250.767 912.100 1.486.038 Álftanes 36.423.240 227.829 92.161 261.800 912.100 1.493.890 Mosfellsbær 36.680.000 195.857 90.130 226.226 905.100 1.417.313 Tafl an sýnir samanburð á gjaldstofnum í nokkrum sveitarfélögum. Mosfellsbær er með næst lægstu gjöldin. Bólið í Bláa lóninu Föstudaginn 8. febrúar fór Félagsmiðstöðin Ból með hóp af unglingum í Bláa lónið. Ferðin var áætluð viku áður en vegna óveðurs á Reykjanes- veginum þurfti að fresta ferð - inni. Mikil spenna var fyrir þes- sari ferð og gekk hún alveg eins og í sögu og voru krakkarnir sáttir og vel soðnir þegar heim var komið. Þorrablót krakka í Varmárskóla Hressir krakkar á ösku- degi í Lágafellsskóla með skólastjóranum sínum, Sigríði Johnsen.

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.