Mosfellingur - 22.02.2008, Qupperneq 17
Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - 17
VGH
MOSFELLSBÆ
Verktaki - Vélaleiga
GSM: 896 8279 896 9443 896 2279
ÞAÐ
SEM
TIL
ÞARF
HÁHOLT 23 - SÍMI 566 8500
Alvöru
Fyrirtæki sem auglýsa í Mosfellingi
stuðla að því að þú fáir blaðið frítt inn um lúguna á þriggja vikna fresti
sveitakrá
Á meðan fjöldi manns er
á biðlistum eftir félagsleg-
um leiguíbúðum á landinu
öllu áforma aðeins fimm
sveitarfélög að fjölga leigu-
íbúðum á árinu. Samkvæmt
frétt í Morgunblaðinu ný-
lega þá ráðgera Reykjavík,
Kópavogur, Hafnarfjörður,
Seltjarnarnes og Reykhólahreppur
að fjölga félagslegum leiguíbúðum
og sýna þessi sveitarfélög þar með
samfélagslega ábyrgð gagnvart þeim
sem eru á biðlistum eftir félagslegu
leiguhúsnæði.
En hver er staðan í Mosfellsbæ?
Allt frá því að meirihluti sjálfstæðis-
manna tók við stjórn sveitarfélagsins
á vormánuðum 2002 hefur ekki verið
fjölgað um eina einustu félagslega
leiguíbúð heldur þvert á móti hafa
félagslegar leiguíbúðir verið seldar.
Og samkvæmt áætlunum núverandi
meirihluta er ekki að sjá að mikil
breyting verði þar á.
Á sama tíma hefur okkur fjölgað
verulega eða úr u.þ.b. 6400 manns í
ríflega 8000 eða um fjórðung og því
mætti ætla að þörfin hafi aukist frek-
ar en minnkað.
Í Mosfellsbæ eru hlutfallslega
fáar félagslegar leiguíbúðir
Í Mosfellsbæ eru um 30 félagslegar
leiguíbúðir sem þýðir að u.þ.b. 4,0
félagslegar leiguíbúðir á hverja 1000
íbúa. Til samanburðar þá eru í Kópa-
vogi eru 11,3 félagslegar leiguíbúðir
á hverja 1000 íbúa og í Reykjavík eru
þær 16,9, meðaltal á landi öllu er
14,6.
(Heimild: Varasjóður húsnæðismála 2007)
Eflaust eru margar skýringar á því
hvers vegna svo fáar íbúðir eru pr.
1000 íbúa í bæjarfélaginu okkar og
ætla ég ekki að reyna að skýra það
hér.
Biðlisti eftir félagslegu leiguhús-
næði er ekki langur í sveitarfélaginu
ýmissa hluta vegna en í ljósi ofan-
greindra staðreynda og í ört stækk-
andi bæjarfélagi ættum við að sjá
metnað okkar í að axla enn
betur okkar samfélagslegu
ábyrgð og fjölga jafnt og þétt
félagslegum leiguíbúðum.
Sérstakar húsaleigubætur
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar
samþykkti nýlega reglur um
sérstakar húsaleigubætur og
eru þær ágætt fyrsta skref í því að
koma til móts við fjölskyldur og ein-
staklinga sem búa í almennu leigu-
húsnæði og eiga í erfiðleikum með
að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra
launa, þungrar framfærslubyrðar eða
annarra félagslegra erfiðleika.
Allt hljómar þetta mjög vel en þeg-
ar skoðuð eru þau viðmið sem um-
sækjandi þarf að uppfylla þá er ljóst
að aðeins mjög lítill hluti þeirra sem
reglurnar þyrftu að ná til getur sótt
um bæturnar sökum tekjuviðmiða.
Samkvæmt reglunum skal meta að-
stæður umsækjenda m.a. út frá eftir-
farandi viðmiðum:
Umsækjandi þarf að eiga lögheim-
ili í Mosfellsbæ þegar sótt er um
bæturnar og hafa átt það síðastliðna
12 mánuði.
Eignarmörk í reglunum eru
2.899.000,-.
Tekjumörk fyrir einstakling eru
2.056.404,- og 2.933.701 fyrir hjón,
auk þess 329.112 fyrir hvert barn á
framfæri undir 18 ára aldri.
Til upplýsinga þá byggir sveitar-
félagið Árborg sínar sérstöku húsa-
leigubætur upp á annan hátt og sem
dæmi þá eru tekjuviðmið þar eftirfar-
andi:
Tekjumörk einstaklings 2.873.000,-
og 3.980.000,- fyrir hjón, auk þess
476.000,- fyrir hvert barn á framfæri.
Eins og sjá má eru tekjuviðmiðin ríf-
lega 1/3 hærri hjá Árborg og því regl-
urnar þar aðgengilegri fyrir stærri
hóp.
Það er mikilvægt að við næstu end-
urskoðun reglna um sérstakar húsa-
leigubætur verði tekjuviðmið skoðuð
og hvað markmiði þær eigi að ná.
Marteinn Magnússon
bæjarfulltrúi
Samfélagsleg ábyrgð
í húsnæðismálum
BOLTINN UM HELGINA:
Laugardagur
kl. 13:45 Birmingham - Arsenal
kl. 16:00 Liverpool - Middlesbrough
kl. 18:15 Newcastle - Man. Utd.
Sunnudagur
kl. 15:00 Tottenham - Chelsea
Í BEINNI
BOLTINN
Laugardagskvöld
Trúbadorinn Hermann jr.
fyrrum söngvari Papana heldur
uppi stuði fram eftir nóttu.
FRÍTT INN