Mosfellingur - 22.02.2008, Side 20

Mosfellingur - 22.02.2008, Side 20
Mexíkóskt lasagne Í eldhúsinu 5 - 6 kjúklingabringur 1/2 laukur 2 rauðar paprikur eitt bréf Burrito kryddmix eða bara krydda eftir smekk 2 dósir taco eða salsasósa, t.d. Old el paso (medium eða eftir smekk) 1/2 lítri matreiðslurjómi 6 tortillas pönnukökur eða 8 fajita pönnu kökur (þær eru minni) rifinn ost Kjúklingabringurnar eru skornar í bita. Laukur skorinn smátt og paprika í bita. Laukur steiktur ásamt papriku á pönnu, kjúklingabitum bætt út í og kryddað. Þegar kjúklingurinn er steiktur er salsa- sósu og rjóma bætt út í og látið malla. Eldfast fat - fyrst eru tortillas pönnu- kökur settar í botninn og þurfa þær að þekja botninn svo kjúklingasósan og tortillaskökur til skiptis efst kjúklin- gasósa, ostur yfir. Bakist ca. 15 mín. í ofni eða þar til osturinn hefur bráðnað. Gott er að bera réttinn fram með sýrðum rjóma/kotasælu, fersku salati, brauði og Dorritos flögum. HJÁ LAUFEYJU EYDAL Heyrst hefur... ...að Bogomil Font hafi þurft frá að hverfa á þorrablóti Dalbúa fyrr en við var að búast en hann hafði tvíbókað sig þetta kvöldið. ...að gervigrasið nái ekki að bræða snjó fari frostið undir -2°. ...að verið sé að byggja stærsta einbýlishús landsins í Dalnum. ...að Edda Davíðs sé ólétt á ný. Tekin í Bólinu? ...að handrukkarinn Annþór Karlsson hafi fundist inni í fataskáp í Urðarholtinu eftir að hafa strokið út um glugga úr fangaklefa í RVK. ...að stelpurnar í Lesblindusetrinu séu fluttar í Völuteig 8, hjá löggunni. ...að Leifur á gröfunni og bolabít- urinn hans hafi unnið glæstan sigur í tvífarakeppni á dögunum. ...að hestamenn haldi sína árlegu árshátíð annað kvöld í Hlégarði. ...að næsta viðureign í spurninga- keppni sveitarfélaga, Útsvari, fari fram á 99 ára afmæli Aftureldingar þann 11. apríl. Þar mun ungmanna- félags andinn ráða ríkjum. ...að Aftureldingar-páskaeggin séu farinn að hreiðra um sig en þau slógu rækilega í gegn um síðustu páska. ...að Bubbi Morthens hafi kallað Dóra DNA „útþynnt gen frá Nóbelskáldinu“ eftir að Dóri gagnrýndi þáttinn hans á Stöð 2. ...að Magnea og Bjöggi eigi von á tvíburum. ...að það verði suðræn sveifla í Hlégarði í kvöld þegar stórhljómsveit Tómasar R. leikur. ...að handboltastrákarnir séu á hraðri leið niður í 1. deild fari þeir ekki að hysja upp um sig brækurnar. Næsti leikur er á sunnudaginn gegn ÍBV. ...að bæjarbúar séu skelfingu lostnir eftir þrumur og eldingar á dögunum. Ætli komi aftur-elding? ...að Skúli boxari Ármanns eigi möguleika á að komast á Ólympíuleikana. ...að Sigsteinn á Blikastöðum sé orðinn 103 ára gamall Endilega sendið okkur slúður mosfellingur@mosfellingur.is - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar20 Nafn: Sigrún Karlsdóttir Gælunafn: sigrunz Aldur: 14 ára Bekkur: 9. GG Hvað finnst þér um flugelda? Alveg frábær leið til að sprengja á sig pizzafeis Góður morgunmatur er: Seríós með vænni slettu af súrmjólk Ekkert hár eða engar tær? Engar tær pottþétt Hvað notar þú háfjalla-andlitsvatn frá Dior oft? Kvölds og morgna Hvernig var árshátíð Bólsins 2007? GEÐVEIK :D Ef þú værir dýr þá værir þú? Spæta Ef þú værir bók, um hvað fjallaðir þú? Myglusveppi Ef þú værir mynd, hvað væri að sjá? Frábæra manneskju (Sigrúnu Karls) Ef þú værir hljóð, í hverju heyrðist? Hnerrandi hesti Hvað langar þig að verða? Geimfari Hvað getur þú tekið margar armbeygjur? Fleiri en enga og færri en eina Hver er til fyrirmyndar? María Helga er alltaf til fyrirmyndar Er spandex inn? Er það ekki bara klassík sem er alltaf inn? Uppáhalds dagur? 16. nóvember, dagur íslenskrar tungu List sem þú fílar? Ljóðlist Hvað finnst þér um Britney Spears? Snickers En Garðar Cortes? gangsta4sho Eitt orð um pólitík: Núrgis (lestu afturábak) Seinustu meiðsl: Ásdís lamdi mig svo fast að ég handleggsbrotnaði Seinasta kraftaverk: Kim Larsen tónleikarnir í Vodafone-höllinni! Þægilegustu skór í heimi: Víkingastígvélin mín, luuv ! UNGLINGURINN Kenpo karate og kickbox í boði Nú geta bæjarbúar farið að æfa alvöru bardagalistir eins og Kenpo Karate og kínverskt/ amerískt Kickbox. Þessar íþróttir eru fyrir fólk á öllum aldri og góð leið til að komast í hörku form. Æfi ngar eru í Íþróttamiðstöðinni Lágafellslaug á föstudagskvöld- um kl. 18:30-20 og á laugar- dögum kl. 11:30-13. Þjálfari er Lasse Brandt Jensen Á myndinni má sjá þjálfarann með einum nemanda sinna, Viðari Má. Meiri upplýsingar má fi nna á www.kenpo.bloggar.is Kenpo Karate og Kickbox mynd/texti/oddvar Laufey lét okkur fá þessa girnilegu uppskrift að lasagne fyrir 5-6 manns. Laufey vinnur hjá VR, í þjónustuveri og á samskiptasviði. „Þessa uppskrift fékk ég í vinn- unni, en einu sinni í mánuði er stafsmaður VR gestakokkur í mötu- neytinu og þá var okkur eitt sinn boðið upp á þennan frábæra rétt. Ég hef svo matreitt réttinn fyrir m.a. saumaklúbbinn og ýmis matar boð og vekur hann alltaf jafn mikla lukku. Einfalt – fljótlegt og ótrúlega ljúffengt. Getur það verið betra?” MOSFELLINGUR KEMUR NÆST ÚT 14. MARS

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.