Mosfellingur - 16.12.2010, Side 32
- Íþróttir32
N1 deild karla að Varmá í kvöld
Afturelding - Selfoss
FimmtudAgur 16. deSember kl. 19:30
Yngsti keppnishópur fimleikadeildar Aftureldingar hreppti silfurverðlaunin á
byrjendamóti í hópfimleikum sem haldið var hjá Hamri í Hveragerði á dögunum.
Stelpurnar sem eru að stíga sín fyrstu skref á mótum stóðu sig frábærlega og verður
spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Írinn John Andrews hefur skrifað undir tveggja ára samning við Aftureldingu um að
þjálfa kvennalið félagsins áfram en hann tók við liðinu á miðju sumri og stýrði því út
tímabilið. John Henry Andrews er 32 ára gamall. John er varnarmaður og lék með Cork
City á Írlandi auk þess sem hann var á mála hjá enska félaginu Coventry á árunum 1995-
1998. Hann var aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki kvenna í Aftureldingu sumarið 2008 er
Gareth O’Sullivan stýrði liðinu. Miklar væntingar eru til þess að hann komi með reynslu
sína úr atvinnumennsku inn í starf félagsins.
Hann hefur þjálfað m.a. yngri flokka kvenna og karla, Hvíta riddarann og að auki aðstoð-
að við þjálfun meistaraflokka félagsins. Undirbúningur liðsins er hafinn af fullum krafti
og fer vel af stað.
John Andrews þjálfar áfram meistaraflokk kvenna í fótbolta
Ráðinn til tveggja ára
Frá undirritun samninga. Brynjar
Jóhannesson framkvæmdastjóri
Aftureldingar, John Andrews
og Hallur Birgisson formaður
meistaraflokksráðs.
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Kjör íþróttamanns
og íþróttakonu
Mosfellsbæjar
Óskað er eftir útnefningu á íþróttafólki sem náð hafa
eftirfarandi árangri og hafa lögheimili í Mosfells
bæ en æfa með íþróttafélögum utan Mosfellsbæjar:
hafa orðið Íslandsmeistarar, deildarmeistarar, bikar
meistarar, landsmótsmeistarar og hafa tekið þátt
og/eða æft með landsliði. Tilefnið er kjör íþróttakonu
og íþróttakarls Mosfellsbæjar fyrir árið 2010.
Vinsamlegast hafið samband við
íþróttafulltrúa Mosfellsbæjar
í síma 6600750 eða á sg@mos.is
Vel heppnað mót
badmintondeildar
Badmintondeild Aftureldingar hélt
vel heppnað mót síðustu helgina
í nóvember að Varmá. Mótið var
liður í svo kallaðri stjörnumótaröð
Badmintonsambands Íslands þar
sem allir bestu badmintonspilarar
landsins yngri en 19 ára tóku þátt og
voru þeir á annað hundrað. Þar af
vorum 12 krakkar frá Aftureldingu.
Allir krakkarnir stóðu sig mjög vel
og ljóst er að þjálfararnir þau Ragna,
Halldóra og Vignir eru að vinna gott
starf.
Tveir leikmenn Aftureldingar unnu
til verðlauna að þessu sinni. Stefán
Ás Ingvarsson sigraði í einliðaleik
í flokki U15, en þess má geta að
Stefán tapaði ekki lotu á mótinu.
Þeir Stefán Ás og Guðmundur
Ágúst Thoroddsen sigruðu síðan í
tvíliðleik U15. Á myndinni má sjá
þá Stefán Ás og Guðmund með
verðlaunin. Þess má einnig geta
að Stefán Ás er nýlega kominn úr
landsliðsferð frá Færeyjum en hann
var ásamt Daníel Jóhanssyni úr TBR
valinn sem fulltrúi Íslands í U15 ára
landsliðið.
Þriðja sæti á Norður
landamóti í klifri
Mosfellingurinn Kjartan
Jónsson, 17 ára, vann á
dögunum bronsverðlaun á
Norðurlandameistaramóti í klifri
í sínum flokki. Mótið fór fram í
Solna Klatterklubb í Stokkhólmi
við frábærar aðstæður þar sem
123 ungmenni frá Íslandi, Noregi,
Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi
kepptu og var þetta fjölmennasta
Norðurlandamótið til þessa. Kjartan
hefur æft klifur í fjögur ár og náði
fljótlega góðum árangri í greininni.
Hann varð íslandsmeistari unglinga
árið 2008 og 2009 og náði öðru sæti
á Norðurlandamóti í línuklifri árið
2008. Ásamt Kjartani keppti Bryndís
Muller, 13 ára, á mótinu og vann
hún einnig bronsverðlaun.
Yngsti keppnishópur fimleikadeildarinnar á byrjendamóti
Silfur á Hamarsmóti