Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 1
Húsvörður Húsfélagið að Aflagranda 40 í Reykjavík vill ráða húsvörð í hlutastarf og miðað er við 50% starfshlutfall. Í húsinu eru 60 íbúðir. Verkefni húsvarðar eru meðal annars: almenn þrif á sameign ásamt umsjón með sorpgeymslu, eftirlit með sameign og lóð auk minniháttar viðhalds og endurbóta. Hæfniskröfur: Kostur er iðn- eða tæknimenntun, lágmarkskunnátta á tölvur, dugnaður og frumkvæði. Leitað er að snyrtilegum, laghentum og útsjónarsömum einstaklingi með frumkvæði til úrbóta. Lögð er áhersla á að umsækjandi sé jákvæður að eðlisfari og góður í samskiptum. Skriflegar umsóknir berist: Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða netfang starfsumsokn@eignaumsjon.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2018. Um er að ræða: 1. Uppsett svæði til kræklingaræktunar í Hvalfirði - búið að setja út línur. Vilyrði fyrir ostrurækt í firðinum. 2. Áltvíbytnu, 10 mtr á lengd og 4,5 á breidd búin tveimur Cummins vélum, jet drifi og nýjum krana. Báturinn er mjög stöðugur og með gott dekkpláss. 3. Polar Cirkel vinnu-plastbátur með 60 ha Yamaha mótor, með púlti og stýri. Ber mikið og er úr svörtu plasti sem þolir mikið slark Mjög gott verð. Tækifæri fyrir duglegan einstakling/einstaklinga. Nánari upplýsingar hjá fjardarskel@gmail.com ATVINNUTÆKIFÆRI - HVALFJÖRÐUR Til sölu kræklingarækt og vinnubátar Fasteignasalar óskast Lögheimili Eignamiðlun auglýsir eftir löggiltum fasteignasölum eða nema í löggildingu fasteignasala til starfa. Mjög góð verkefni framundan bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi. Góð aðstaða og góðir tekjumöguleikar fyrir heiðarlegt og duglegt fólk. Reynsla af sölu fasteigna og hreint sakavottorð skilyrði. Umsækjendur sendi ferilskrá á logheimili@logheimili.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur til 03.10.2018. Vinlandsleið 14, Reykjavík - Skólabraut 26, Akranesi        atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.