Morgunblaðið - 06.09.2018, Side 2

Morgunblaðið - 06.09.2018, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 Tradewind is hiring an Account Executive in Iceland Tradewind provides full service international factoring, credit protection services, import and vendor finance, PO and supply-chain finance programs. Tradewind is headquartered in Germany and has 18 offices including locations in the United States, Asia, the Middle East and Europe. For additional company information, please visit: www.tradewindfinance.com. We are looking for a highly motivated and qualified Account Executive to manage assigned client relationships. The Account Executive will be stationed in Iceland. See job description on our website: www.tradewindfinance.com/about- us/careers and send your application to iceland@tradewindfinance.com. Starf sérfræðings á skrifstofu menningarmála Auglýst er laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menningarmála á sviði lista- og safnamála auk málefna menningararfs í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2018 Starf lögfræðings á skrifstofu laga og stjórnsýslu Auglýst er laust til umsóknar starf lögfræðings á skrifstofu laga og stjórnsýslu í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Um er að ræða fullt starf í eitt ár vegna afleysinga. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2018                                             !        "    #!  $    "                             !" #$ %%&    '  ( ) * +  +" , *    + " (-./012/3 4 ) * + * + 5       Sjá nánar á kopavogur.is www.kopavogur.is/is/stjornsysla/um-okkur/laus-storf Laus störf hjá Kópavogsbæ Við mönnum stöðuna www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. Meiri en helmingi færri bréf voru send með Íslandspósti árið 2017 en 2007 og bréfum fækkar enn mikið. Þegar fyrstu sex mánuðir ársins 2018 eru bornir saman við fyrstu sex mánuði ársins 2017 kemur í ljós að samdrátturinn er 12% sem er mun meira en spár gerðu ráð fyrir. Ef fram fer sem horfir verður met- fækkun bréfa í ár. Það leiðir til þess að tekjur Íslandspósts munu dragast saman um hátt í 400 milljónir kr. Á sama tíma eykst kostnaður við bréfadreifingu vegna þess að fjölgun íbúða og fyrirtækja leiðir til þess að dreifikerfi Ís- landspósts stækkar. Einkaréttartekjur dugar ekki Árið 2018 hefur verið Ís- landspósti um margt erfitt, segir í frétt frá fyrirtækinu. Fækkun bréfa þýðir minni tekjur sem hefur veruleg áhrif á rekstur félagsins. Ís- landspóstur sinnir svokallaðri alþjónustuskyldu fyrir ríkið og hefur á móti einkarétt á að dreifa árituðum bréfum allt að 50 grömmum. Tekjum af einkaréttarbréf- unum er ætlað að greiða fyrir þá alþjónustu sem ekki stend- ur undir sér, s.s. dreifingu í sveitum landsins. Nú er svo komið að tekjur af einkarétti duga ekki til. Önnur þjónusta sem fyrirtækið veitir í sam- keppni hefur því verið að greiða niður hluta alþjónust- unnar. Samandregnar tölur í hálfsársuppgjöri Íslands eru þær að á fyrri helmingi ársins lækkuðu tekjurnar um 64 milljónir kr. á milli ára, tekjur vegna bréfa innan einkaréttar lækka um 201 milljón kr. en aðrar tekjur jukust um 132 milljónir kr. Rekstrarkostn- aður jókst um 285 milljónir kr. á milli ára eða um 7%. EBIDTA lækkar um 349 milljónir kr. og afkoman Ís- landspósts versnaði um 260 milljónir kr. Þjónusta endurskoðuð Með minnkandi bréfa- magni á undanförnum árum hefur óhjákvæmilega þurft að endurskoða þjónustuna, segir í tilkynningu Íslandspósts. Hafa hagræðingaraðgerðir á undanförnum árum leitt til þess að kostnaður nú er tæp- um tveimur milljörðum króna minni en raun var fyrir ára- tug. Nú síðast var dreifing- ardögum í þéttbýli fækkað snemma á þessu ári. Vonir stóðu til að hagræði af því gæti leitt til lækkunar á burð- argjöldum en því miður hefur samdráttur í bréfamagni orð- ið til þess að hækka verður verðskrá bréfa til að mæta tekjutapinu, komi annað ekki til. Þær hækkanir hefðu orðið mun meiri hefði kostn- aðarlækkun vegna fækkunar dreifingardaga ekki komið til. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Akranes Pósthús á Skaganum en nokkur í þessum stíl eru til. Metfækkun bréfa  Slök afkoma Íslandspósts Björgólfur Jóhannsson, fyrr- verandi forstjóri Icelandair, er nýr formaður stjórnar Ís- landsstofu, en hún var skipuð á dögunum í kjölfar breytinga á lögum um stofn- unina sem Alþingi samþykkti síðasta vor. Af Samtökum atvinnu- lífsins eru skipuð í stjórn Hildur Árnadótt- ir, sem er varafor- maður, Ásthildur Othars- dóttir og Jens Garðar Helgason. Áshildur Braga- dóttir og Borgar Þór Einars- son eru tilnefnd af utan- ríkisráðherra og Friðjón R. Friðjónsson er kandídat ferðamála- og nýsköp- unarráðherra. Hlutverk Íslandsstofu er meðal annars að vera sam- starfsvettvangur atvinnulífs, hagsmunasamtaka, stofnana og stjórnvalda um stefnu og aðgerðir til þess að auka út- flutningstekjur og hagvöxt. Enn fremur að veita alhliða þjónustu og ráðgjöf til allra út- flutningsgreina og að laða er- lenda ferðamenn til landsins með kynningarstarfi. Jón Ásbergsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Ís- landsstofu frá stofnun hennar árið 2010, mun að eigin ósk láta af störfum sem fram- kvæmdastjóri. Hann mun að beiðni stjórnar starfa áfram hjá Íslandsstofu og vera nýj- um stjórnendum til ráðgjafar. Sterk ímynd „Ímynd Íslands þegar kem- ur að vörugæðum hefur sjald- an verið sterkari en einmitt nú,“ segir Jón Ásbergsson. „Ég hlakka til að taka þátt í þeim breytingum sem fram undan eru í starfsemi Íslands- stofu en ég mat það svo að á þessum tímamótum væri rétt að nýr framkvæmdastjóri tæki við stjórnartaumunum.“ Björgólfur Jóhannsson, for- maður stjórnar Íslandsstofu, segir í tilkynningu margt gott hafa áunnist þar á bæ undir forystu Jóns Ásbergssonar. Að sama skapi séu spennandi tímar fram undan. „Nú horf- um við til framtíðar og það er ljóst að breytt rekstrarform gefur okkur tækifæri til að halda áfram að sækja fram af krafti fyrir íslenskt atvinnulíf.“ Breytingar á starf- semi Íslandsstofu  Jón Ásbergsson hættir Björgólfur Jóhannsson Jón Ásbergsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.