Morgunblaðið - 06.09.2018, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.09.2018, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 3 Ertu drífandi einstaklingur með óbilandi áhuga á snyrtivörum? Terma ehf. leitar að öflugu starfsfólki til sölustarfa og kynninga. Við leitum að drífandi einstaklingum sem geta starfað sjálfstætt, hafa sölu-                             !                                       !   "              #    $%        &             '  !       #$%  "%         (    10.september 2018. )  %         #    Verkefnastjóri meistaranáms Háskólasetur Vestfjarða leitar að skipulögðum og drífandi einstaklingi í 100% starf. Staðan er tímabundin til tveggja ára. Verkefnastjóri meistaranáms vinnur í litlu en framsæknu háskóla- og rannsóknarumhverfi á Ísafirði. Verkefnastjóri meistaranáms aðstoðar fagstjóra og aðra starfsmenn m.a. við skipulagningu kennslu og meistara- námsvarna sem og auglýsingu og kynningu náms. Starfið krefst mikillar skipulagshæfni, faglegra vinnubragða, góðrar tímastjórnunar, sveigjanleika og vilja til samstarfs. Menntunar- og hæfniskröfur • Meistarapróf æskilegt • Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Skipulagshæfni og góð tímastjórnun • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta í ræðu og riti Við Háskólasetrið er kennd alþjóðleg, þverfagleg námsleið á meistarastigi í haf- og strandsvæðastjórnun (Coastal and Marine Management), með um 40-50 virka meistaranema ár hvert, og nú bætist við samsvarandi námsleið í sjávarbyggðafræði (Coastal Communities and Regional Development). Báðar námsleiðirnar eru í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Markmið Háskólaseturs er að skapa framúrskarandi náms- og vinnuumhverfi fyrir alþjóðlegan nemendahóp. Nýr fagstjóri þarf að geta hafið störf á haustmisseri 2018. Til greina kemur að starfið sé hlutastarf ef þess væri óskað. Upplýsingar veitir Peter Weiss, forstöðumaður, í síma 450 3045 eða weiss@uw.is. Háskólasetrið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsóknir (kynningarbréf og ferilskrá) sendist í tölvupósti á weiss@uw.is. Umsóknarfrestur er til og með 24.09.2018. www.uw.is Þjónustufulltrúi Óskum eftir að ráða þjónustufulltrúa fyrir Eignaumsjón hf. Helstu verkefni eru:  Upplýsingagjöf og samskipti við viðskiptavini  Umsjón og vinnsla innheimtu húsgjalda og annarrar innheimtu fyrir hönd viðskiptavina  Undirbúningur vegna húsfunda  Skráningar á gögnum  Undirbúningur og uppsetning á innheimtuáætlunum  Samskipti við þjónustuaðila f.h. viðskiptavina  Auk annarra fjölbreytilegra daglegra starfa í þjónustuveri Eignaumsjónar hf. Æskilegt er að umsækjandi sé að lágmarki með stúdentspróf eða sambærilega menntun. Marktæk starfsreynsla af sambærilegu starfi er kostur. Tölugleggni og góð þekking á helstu tölvuforritum s.s. excel og word ásamt almennri tölvukunnáttu. Áhersla er lögð á áhugasemi, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð, frumkvæði og eftirfylgni, auk lipurðar í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi. Hópstjóri Óskum eftir að ráða hópstjóra í þjónustuver fyrir Eignaumsjón hf. Þjónustuver Eignaumsjónar annast samskipti við viðskiptavini, ráðgjöf, undirbúning funda o.m.fl. Helstu verkefni hópstjóra eru:  Verkstjórn daglegra verkefna þjónustuvers  Upplýsingagjöf, ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini  Samskipti við þjónustuaðila og verktaka  Auk annarra fjölbreytilegra starfa í þjónustuveri Eignaumsjónar hf. Æskilegt er að umsækjandi sé að lágmarki með stúdentspróf eða sambærilega menntun. Marktæk starfsreynsla af sambærilegu starfi er mikill kostur. Tölugleggni og góð þekking á helstu tölvuforritum s.s. outlook, excel og word ásamt almennri tölvukunnáttu. Áhersla er lögð á samskiptahæfni, ríka þjónustulund, skipulagshæfileika, lipurð í mannlegum samskiptum, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með 9. september nk., gengið verður frá ráðningu sem fyrst. Guðný Harðardóttir hjá STRÁ ehf., veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 588 3031, en símatími er alla virka daga frá kl. 13-15. Vinsamlega sendið umsóknir og meðfylgjandi gögn til stra@stra.is. STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031 - stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is. Eignaumsjón er 17 ára gamalt fyrirtæki og er leiðandi í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög og býður heildarlausnir í rekstri fjöleignarhúsa bæði íbúðarhúsnæðis og atvinnuhúsnæðis. Félagið hefur umsjón með daglegum rekstri fjölmargra hús- og rekstrarfélaga og kemur faglega að lausn mála sem koma upp í fjölbýlum og fjöleignarhúsum. Markmið félagsins er að gera rekstur húsfélaga markvissari og ódýrari, auðvelda störf stjórna og spara tíma þeirra sem að húsfélaginu standa. Gegnsæi og hlutleysi í öllum rekstri og aðgengilegar upplýsingar um rekstur og ákvarðanir auka skilvirkni og bætir samskipti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.