Morgunblaðið - 11.10.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018SJÓNARHÓLL
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
EGGERT
Ákveðinn fiðringur fór um mig þegar sænska vís-indaakademían tilkynnti fyrr í vikunni hverjirhlytu Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár. Ekki að
verðlaunin sjálf séu sérstakt áhugaefni hjá mér heldur
vegna þess að í ár voru verðlaunin meðal annars veitt fyrir
svör við þeirri grundvallarspurningu sem við höfum spurt
okkur að til fjölda ára: Hvernig má tryggja varanlegar og
sjálfbærar efnahagslegar framfarir?
Spurning þessi var einmitt þungamiðja þeirrar vinnu
sem ráðgjafafyrirtækið McKinsey réðst í árið 2012 í leit að
sjálfbærri hagvaxtarleið fyrir land og þjóð eftir erfiða tíma
í kjölfar hrunsins. Útgáfa skýrslunnar markaði ákveðin
tímamót í stefnumótun íslensks samfélags og varð fljótt
hryggjarstykkið í málefna-
starfi Viðskiptaráðs. Grunnstef
skýrslunnar snéri að því að
auka framleiðni í landinu og
efla útflutningsgreinar. Á þess-
um tíma óraði engan fyrir upp-
gangi ferðaþjónustunnar sem
varð fljótt lykilstoð í íslensku
hagkerfi og ein forsenda þessa
mikla viðsnúnings sem í raun
varð.
En hvar stöndum við í dag?
Hægja hefur tekið á hagvexti
og erfitt er að segja til um
hvaða geiri geti tekið stökk
næst til að keyra áfram álíka
uppgang og við höfum búið við
undanfarin ár. Kannski er ágætt að staldra aðeins við og
rifja upp þær tillögur sem fram komu í skýrslu McKinsey.
Hugvitsdrifinn útflutningur var þar forgangsmál; út-
flutningur sem ekki byggir eingöngu á staðbundnum auð-
lindum og lýtur því síður náttúrulegum vaxtaskorðum.
Fyrirtækin sem falla hér undir eru einkum tækni- og ný-
sköpunarfyrirtæki sem þrífast best í umhverfi þar sem að-
gengi að hæfileikaríku vinnuafli er gott, öflugar rannsóknir
eru stundaðar í samvinnu við sterka háskóla, stuðningur
við nýsköpun og þróun sýndur t.d. með ívilnunum og end-
urgreiðslu og rekstrarumhverfi er samkeppnishæft í al-
þjóðlegum samanburði.
Þessu virðist ríkisstjórn okkar ekki hafa gleymt við gerð
fjármálaáætlunar fyrir árin 2019–2023 en þar kemur m.a.
fram skýr vilji þeirra til að styðja við hugvitsdrifna starf-
semi og bæta alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands. Segir
þar orðrétt að „í fjármálaáætluninni er miðað við að há-
marksstuðningur (þak) á endurgreiðslu vegna rannsóknar-
og þróunarkostnaðar verði felldur brott fyrir rekstrarárið
2019.“ Aftur á móti virðast þessar áherslur um aukin stuðn-
ing hafa gleymst við gerð fjárlagafrumvarps þar sem gert
er ráð fyrir 2,6% samdrætti á útgjöldum til nýsköpunar,
rannsókna og þekkingargreina, en það er önnur saga.
Romer, annar nýkrýndu Nóbelsverðlaunahafanna, held-
ur því fram að fjárfesting í mannauði, nýsköpun og þekk-
ingu séu lykilþættir til að auka hagvöxt. Undirstrikar hann
að sjálfbær árangur til lengri tíma
byggist fyrst og fremst á skýrri stefnu-
mótun hins opinbera og nefnir þar að
stuðningur og ívilnanir til rannsókna og
þróunarmála sem og menntamála séu
forsenda framfara í samfélaginu.
Romer vill meina að tækniframfarir
berist ekki bara til okkar tilvilj-
anakennt með vindum og veðri heldur
þurfi að huga að þeim eins og einhverju
sem við getum raunverulega stjórnað.
Þær gífurlegu framfarir sem við höfum
orðið vitni að á okkar tímum séu því
sprottnar af samvinnu sífellt fleiri ein-
staklinga sem tengjast þvert á lönd og
þekkingu og deila uppgötvunum og
framförum sem aftur skapi enn meiri
framfarir á mettíma. Raunveruleg „rannsóknar- og þróun-
arríki“ heimsins sem munu uppskera öflugan og sjálf-
bæran hagvöxt til lengri tíma séu þær þjóðir sem munu
stuðla að opnu samkeppnishæfu hagkerfi þar sem hindr-
unum nýsköpunar hefur verið rutt úr vegi og öflugt þekk-
ingarsamfélag byggt.
Fiðringurinn sem um mig fór þegar nýir Nóbelshafar
voru kynntir var líklega til kominn af þeirri einlægu trú að
íslensk stjórnvöld ætli sér að standa við sínar fyrirætlanir
um að setja hugvitsdrifinn útflutning í forgang og það
strax. Þær þjóðir sem ekki kveikja á mikilvægi slíkrar
stefnu skv. Romer munu dragast aftur úr og takmarka
hagsæld almennings.
SPROTAR
Ásta Sigríður Fjeldsted
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Nóbelinn til rannsóknar-
og þróunarríkisins Íslands
”
Þessu virðist ríkisstjórn
okkar ekki hafa gleymt
við gerð fjármálaáætl-
unar fyrir árin 2019–
2023 en þar kemur m.a.
fram skýr vilji þeirra til
að styðja við hugvits-
drifna starfsemi og
bæta alþjóðlega sam-
keppnishæfni Íslands.
VEFSÍÐAN
Ekki er auðvelt að rata um heilsu-
og fæðubótarefnafrumskóginn. Allir
vita að rétta næringin getur skipt
sköpum fyrir heilsuna, hjálpað
vöðvum að stækka og mittinu að
mjókka, en vandinn er sá að mikill
munur getur verið á vörunum í
heilsuhilllum verslana og ekki alltaf
hægt að treysta því sem stendur á
innihaldslýsingunni.
Fólkið á bak við vefsíðuna Labdo-
or (www.labdoor.com) vill leysa
þennan vanda og notar til þess snið-
ugt viðskiptamódel.
Labdoor gerir nákvæmar rann-
sóknir á innihaldsefnum heilsuvara
af ýmsum toga, greinir niðurstöð-
urnar og gefur vörunum einkunn.
Niðurstöðurnar eru öllum aðgengi-
legar á Labdoor.com og eiga að
auðvelda neytendum að velja bestu
vörurnar. Það eina sem Labdoor
fær í sinn hlut er smávægileg þókn-
un þegar gestir síðunnar nota þar
til gerðan hlekk við hverja vöru til
að panta hana frá seljanda.
Forvitnilegt er að skoða niður-
stöðurnar á Labdoor, og kemur
m.a. í ljós að það próteinduft sem er
með besta næringarinnihaldið og
bestu virknina fær bara miðlungs-
einkunn fyrir nákvæmni innihalds-
lýsingar. Þá er próteinduftið sem er
neðst á lista Labdoor ekki með
nema rétt rösklega 26% prótein-
innihald. Svona má lengi telja og er
t.d. lakasta kalkvaran með helmingi
minna kalk en stendur á merkimið-
anum, og lélegasta lýsið kemst ekki
með tærnar þar sem það besta er
með hælana.
ai@mbl.is
Það sem koma skal
í neytendamálum