Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.10.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2018SJÓNARHÓLL Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com EGGERT Ákveðinn fiðringur fór um mig þegar sænska vís-indaakademían tilkynnti fyrr í vikunni hverjirhlytu Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár. Ekki að verðlaunin sjálf séu sérstakt áhugaefni hjá mér heldur vegna þess að í ár voru verðlaunin meðal annars veitt fyrir svör við þeirri grundvallarspurningu sem við höfum spurt okkur að til fjölda ára: Hvernig má tryggja varanlegar og sjálfbærar efnahagslegar framfarir? Spurning þessi var einmitt þungamiðja þeirrar vinnu sem ráðgjafafyrirtækið McKinsey réðst í árið 2012 í leit að sjálfbærri hagvaxtarleið fyrir land og þjóð eftir erfiða tíma í kjölfar hrunsins. Útgáfa skýrslunnar markaði ákveðin tímamót í stefnumótun íslensks samfélags og varð fljótt hryggjarstykkið í málefna- starfi Viðskiptaráðs. Grunnstef skýrslunnar snéri að því að auka framleiðni í landinu og efla útflutningsgreinar. Á þess- um tíma óraði engan fyrir upp- gangi ferðaþjónustunnar sem varð fljótt lykilstoð í íslensku hagkerfi og ein forsenda þessa mikla viðsnúnings sem í raun varð. En hvar stöndum við í dag? Hægja hefur tekið á hagvexti og erfitt er að segja til um hvaða geiri geti tekið stökk næst til að keyra áfram álíka uppgang og við höfum búið við undanfarin ár. Kannski er ágætt að staldra aðeins við og rifja upp þær tillögur sem fram komu í skýrslu McKinsey. Hugvitsdrifinn útflutningur var þar forgangsmál; út- flutningur sem ekki byggir eingöngu á staðbundnum auð- lindum og lýtur því síður náttúrulegum vaxtaskorðum. Fyrirtækin sem falla hér undir eru einkum tækni- og ný- sköpunarfyrirtæki sem þrífast best í umhverfi þar sem að- gengi að hæfileikaríku vinnuafli er gott, öflugar rannsóknir eru stundaðar í samvinnu við sterka háskóla, stuðningur við nýsköpun og þróun sýndur t.d. með ívilnunum og end- urgreiðslu og rekstrarumhverfi er samkeppnishæft í al- þjóðlegum samanburði. Þessu virðist ríkisstjórn okkar ekki hafa gleymt við gerð fjármálaáætlunar fyrir árin 2019–2023 en þar kemur m.a. fram skýr vilji þeirra til að styðja við hugvitsdrifna starf- semi og bæta alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands. Segir þar orðrétt að „í fjármálaáætluninni er miðað við að há- marksstuðningur (þak) á endurgreiðslu vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar verði felldur brott fyrir rekstrarárið 2019.“ Aftur á móti virðast þessar áherslur um aukin stuðn- ing hafa gleymst við gerð fjárlagafrumvarps þar sem gert er ráð fyrir 2,6% samdrætti á útgjöldum til nýsköpunar, rannsókna og þekkingargreina, en það er önnur saga. Romer, annar nýkrýndu Nóbelsverðlaunahafanna, held- ur því fram að fjárfesting í mannauði, nýsköpun og þekk- ingu séu lykilþættir til að auka hagvöxt. Undirstrikar hann að sjálfbær árangur til lengri tíma byggist fyrst og fremst á skýrri stefnu- mótun hins opinbera og nefnir þar að stuðningur og ívilnanir til rannsókna og þróunarmála sem og menntamála séu forsenda framfara í samfélaginu. Romer vill meina að tækniframfarir berist ekki bara til okkar tilvilj- anakennt með vindum og veðri heldur þurfi að huga að þeim eins og einhverju sem við getum raunverulega stjórnað. Þær gífurlegu framfarir sem við höfum orðið vitni að á okkar tímum séu því sprottnar af samvinnu sífellt fleiri ein- staklinga sem tengjast þvert á lönd og þekkingu og deila uppgötvunum og framförum sem aftur skapi enn meiri framfarir á mettíma. Raunveruleg „rannsóknar- og þróun- arríki“ heimsins sem munu uppskera öflugan og sjálf- bæran hagvöxt til lengri tíma séu þær þjóðir sem munu stuðla að opnu samkeppnishæfu hagkerfi þar sem hindr- unum nýsköpunar hefur verið rutt úr vegi og öflugt þekk- ingarsamfélag byggt. Fiðringurinn sem um mig fór þegar nýir Nóbelshafar voru kynntir var líklega til kominn af þeirri einlægu trú að íslensk stjórnvöld ætli sér að standa við sínar fyrirætlanir um að setja hugvitsdrifinn útflutning í forgang og það strax. Þær þjóðir sem ekki kveikja á mikilvægi slíkrar stefnu skv. Romer munu dragast aftur úr og takmarka hagsæld almennings. SPROTAR Ásta Sigríður Fjeldsted framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Nóbelinn til rannsóknar- og þróunarríkisins Íslands ” Þessu virðist ríkisstjórn okkar ekki hafa gleymt við gerð fjármálaáætl- unar fyrir árin 2019– 2023 en þar kemur m.a. fram skýr vilji þeirra til að styðja við hugvits- drifna starfsemi og bæta alþjóðlega sam- keppnishæfni Íslands. VEFSÍÐAN Ekki er auðvelt að rata um heilsu- og fæðubótarefnafrumskóginn. Allir vita að rétta næringin getur skipt sköpum fyrir heilsuna, hjálpað vöðvum að stækka og mittinu að mjókka, en vandinn er sá að mikill munur getur verið á vörunum í heilsuhilllum verslana og ekki alltaf hægt að treysta því sem stendur á innihaldslýsingunni. Fólkið á bak við vefsíðuna Labdo- or (www.labdoor.com) vill leysa þennan vanda og notar til þess snið- ugt viðskiptamódel. Labdoor gerir nákvæmar rann- sóknir á innihaldsefnum heilsuvara af ýmsum toga, greinir niðurstöð- urnar og gefur vörunum einkunn. Niðurstöðurnar eru öllum aðgengi- legar á Labdoor.com og eiga að auðvelda neytendum að velja bestu vörurnar. Það eina sem Labdoor fær í sinn hlut er smávægileg þókn- un þegar gestir síðunnar nota þar til gerðan hlekk við hverja vöru til að panta hana frá seljanda. Forvitnilegt er að skoða niður- stöðurnar á Labdoor, og kemur m.a. í ljós að það próteinduft sem er með besta næringarinnihaldið og bestu virknina fær bara miðlungs- einkunn fyrir nákvæmni innihalds- lýsingar. Þá er próteinduftið sem er neðst á lista Labdoor ekki með nema rétt rösklega 26% prótein- innihald. Svona má lengi telja og er t.d. lakasta kalkvaran með helmingi minna kalk en stendur á merkimið- anum, og lélegasta lýsið kemst ekki með tærnar þar sem það besta er með hælana. ai@mbl.is Það sem koma skal í neytendamálum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.