Morgunblaðið - 03.10.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.10.2018, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 ÍÞRÓTTIR Körfuboltinn Íslandsmótið hefst í kvöld með heilli umferð í Dominos-deild kvenna. Keflvíkingum er spáð Ís- landsmeistaratitlinum en meisturum Hauka sjötta sæti. Morgunblaðið fer yfir það sem framundan er í vetur. 2-3 Íþróttir mbl.is Keppni hófst í gærkvöld í Hertz- deild karla í íshokkíi þar sem Skautafélag Reykjavíkur og Björn- inn áttust við í Skautahöllinni í Laugardal. Skautafélag Reykjavík- ur hrósaði sigri 3:2, eftir að hafa lent undir, 2:1, strax í fyrsta leik- hluta. Annar leikhluti var marka- laus. Robbie Sigurðarson, Patrik Podsednicek og Sölvi Atlason skor- uðu mörk Skautafélags Reykjavík- ur og skoraði Sölvi sigurmarkið þegar tæp ein og hálf mínúta var eftir en Björninn var enn yfir, 2:1 yfir þegar skammt var eftir af leiknum. Ingþór Árnason og Andri Helgason skoruðu mörk Bjarn- arins. Aðeins þrjú lið taka þátt á Ís- landsmóti karla í íshokkíi á þessu tímabili eftir að lið Esjunnar var lagt niður í vor vegna aðstöðuleysis. Næsti leikur deildarinnar verður í Skautahöllinni á Akureyri á laug- ardaginn þegar Íslandsmeistarar Skautafélags Akureyrar tala á móti leikmönnum Skautafélags Reykja- víkur. sport@mbl.is Sölvi skor- aði sigur- markið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Barátta Robbie Sigurðsson, leikmaður SR, og Andri Helgason liðsmaður Bjarnarins t.v. eigast við í leiknum í gærkvöld sem Robbie og félagar unnu. Ómar Ingi Magnússon átti enn einn stórleikinn með Aalborg Håndbold í gærkvöldi þegar liðið vann Mors Thy, 31:22, í upphafsleik sjöundu umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Ómar Ingi skoraði sjö mörk í átta skotum. Þar af skoraði hann þrjú mörk úr vítaköstum. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk. Aalborg Håndbold situr þar með í efsta sæti með 12 stig. Arnór Atlason er að- stoðarþjálfari liðsins. GOG, TTH og Århus eru með 10 stig en eftir sex leiki. iben@mbl.is Ómar Ingi átti enn einn stórleikinn Ómar Ingi Magnússon Arnór Þór Gunnarsson er enn í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn þýsku 1.deildarinnar í handknattleik. Hann hefur skoraði 54 mörk í sjö leikjum Bergischer á leiktíðinni. Að- eins Matthias Musche, horna- maður hjá Mageburg, hefur skoraði fleiri mörk, 71. Musche hefur leikið einum leik fleiri en Arnór Þór sem hefur skorað 26 af mörkum sínum úr vítakasti. Annar Þórsari frá Akureyri, Oddur Gretarsson, er markahæstur Íslendinga í annarri deild með 36 mörk í sex leikjum. iben@mbl.is Arnór Þór er áfram iðinn við kolann Arnór Þór Gunnarsson Jón Daði Böðvarsson meiddist í upphitun fyrir leik Reading og QPR í ensku B-deildinni í knattspyrnu í gær. Til stóð að Jón Daði yrði í byrjunarliði Reading en vegna meiðslanna sem komu upp á á elleftu stundu varð ekkert af þátttöku hans. Ekki var ljóst í gærkvöld hvort um alvarleg meiðsli væri að ræða hjá Jóni Daða. Fram- undan er vináttulandsleikur Íslands og Frakk- lands í Guingamp á þriðjudaginn og leikur við landslið Sviss í framhaldinu. iben@mbl.is Jón Daði meiddist í upphitun fyrir leik Jón Daði Böðvarsson Riðlakeppin á heimsmeistaramóti kvenna í blaki í Japan er langt komin. Þriðju umferð í B- og C- riðlum lauk í gær. Í B-riðli vann Ítalía lið Kúbu í þremur lotum. Tyrkland vann Búlgaríu með sama mun og eins lagði Kína lið Kanada í þrem- ur lotum. Í C-riðli var lítið meiri spenna því Rússland vann Kasakstan, 3:0, Taíland vann Trínidad og Tóbago, 3:1. Leikurinn var sögulegur fyrir þær sakir að síðarnefnda liðið vann í fyrsta sinn hrinu í kappleik á HM. Áfram gengur allt á aft- urlöppunum hjá liði Suður-Kóreu á mótinu. Lið- ið tapaði fyrir Bandaríkjunum, 3:1, og hefur ekki unnið leik á mótinu. Bandaríkin og Rúss- land eru í efstu sætum riðilsins en Ítalía og Kína bera af öðrum liðum í B-riðlinum. Riðla- keppninni lýkur á morgun. iben@mbl.is Ljósmynd/FIVB Fögnuður Leikmenn bandaríska landsliðsins fagna einu af stigum sínum í leiknum við Suður-Kóreu. Riðlakeppni HM lýkur á morgun Martin Hermannsson lét mikið að sér kveða þegar lið hans Alba Berl- in vann tyrkneska liðið Tofas Bursa með 16 stiga mun á heimavelli í gærkvöld í fyrstu umferð B-deildar Evrópubikarsins í körfuknattleik. Leikið var í Berlin. Martin, sem kom til Alba í sumar, skoraði 15 stig, átti þrjár stoðsendingar, vann boltann í þrígang og tók eitt frá- kast í leiknum. Alls lék hann með í 24 mínútur og 38 sekúndur, þar af var hann á leikvellinum nær allan fjórða og síðasta leikhlutann þegar Alba-liðið sneri leiknum sér í hag. Martin var þriðji stigahæsti leik- maður Alba. Alba var stigi yfir í hálfleik, 55:54, og var stigi undir þegar þriðji leikhluti var að baki, 75:74. Tofas Bursa hafnaði í öðru sæti tyrknesku deildarinnar í vor. Martin var í stóru hlut- verki í Berlín Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Öflugur Martin Hermannsson fór mikinn í fjórða leikhluta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.