Morgunblaðið - 09.10.2018, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
ÍÞRÓTTIR
Handboltinn Þriðja umferð í Olísdeild kvenna. Kreppa ríkir í Garðabæ. Íslandsmeistararnir skoruðu 47 hjá
Stjörnunni. HK kemur áfram á óvart. Eyjakonur létu ófærð ekki stöðva sig í norðurferð. Lið þriðju umferðar. 4
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Sindri
Landsliðið Kolbeinn Sigþórsson ferðaðist með lest til móts við landsliðið í
gær enda búsettur í Frakklandi. Hann ræddi við fjölmiðla á hóteli liðsins.
Í SAINT-BRIEUC
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Ég fer ekkert í grafgötur með það
að þetta er ekki skemmtileg staða
að vera í, og ég skil hana ekki einu
sinni sjálfur,“ segir Kolbeinn Sig-
þórsson, landsliðsframherji í knatt-
spyrnu. Staða hans hjá franska fé-
laginu Nantes virðist aðeins verða
erfiðari með hverri vikunni, forseti
félagsins hefur bannað honum að fá
svo mikið sem að æfa með liðinu,
hvað þá að spila með því, og það
þrátt fyrir að Nantes gangi allt í
óhag og sé í fallsæti í deildinni.
Kolbeinn er þrátt fyrir þetta
mættur hingað til Saint-Brieuc með
íslenska landsliðinu, eftir að hafa
óvænt verið valinn í hópinn fyrir
fyrstu tvo leikina undir stjórn Erik
Hamrén í síðasta mánuði.
„Það er náttúrulega frábært fyrir
mig að vera valinn í þennan hóp
miðað við hvernig staðan hjá mér
er. Mér er mikið traust sýnt og
þetta er gott tækifæri fyrir mig til
að sýna að ég get ennþá skorað
mörk. Það gefur mér mikið að fá
sénsinn hérna, og mun einnig hjálpa
til við að finna nýtt félag,“ segir
Kolbeinn. Hann segir ekkert koma
til með að breytast hjá sér í Nantes
þó að félagið hafi verið að ráða nýj-
an þjálfara, Vahid Halilhodzic.
„Ég geri mér alla vega engar
vonir um það. Þetta hefur allt sam-
an snúist um það að forsetinn vill
hvorki að ég spili né æfi með liðinu.
Það að nýr þjálfari komi breytir
engu hjá mér, nema að forsetinn
breyti sinni skoðun. Ég þarf bara að
bíða, og sjá hvort ég hafi ekki rétt
til að æfa að minnsta kosti með lið-
inu,“ segir Kolbeinn, en nú er nefni-
lega svo komið að hann má ekki
einu sinni æfa með liðsfélögum
sínum.
Kannar rétt sinn
„Það er verið að skoða fyrir mig
hvort ég hafi ekki rétt til þess. Ég
fæ ekki að æfa með varaliðinu held-
ur, svo þetta er stórfurðuleg staða.
Við erum sjö leikmenn að æfa sam-
an, sem erum ekki inni í myndinni
hjá klúbbnum. Þetta er auðvitað
mjög skrýtin staða, en svona hefur
þetta verið síðasta mánuðinn. Það
er verið að vinna í þessu máli fyrir
mig og vonandi fæ ég skýr svör um
þetta sem fyrst. Við æfum alveg vel,
en það er skrýtið að vera sjö saman
að æfa,“ segir Kolbeinn. Úr sjö
manna æfingum hjá Nantes er hann
mættur til æfinga fyrir tvo afar erf-
iða leiki, vináttulandsleik gegn
heimsmeisturum Frakka og gegn
Svisslendingum í Þjóðadeildinni á
fimmtudag. Kolbeinn viðurkennir
að ástand sitt gæti auðvitað verið
betra, en bætir við:
„Staðan á mér er þokkaleg miðað
við þetta. Ég kom inn á í síðasta
landsleik og leið bara vel. Mér
fannst ég jafnvel geta spilað meira.
Mér líður bara vel og það eru engin
meiðsli að hrjá mig. Mig vantar
bara leikform, og vonandi fæ ég
fleiri leiki sem fyrst. Helst í jan-
úar,“ segir Kolbeinn, og þvertekur
fyrir að það muni stranda á sér, eins
og forseti Nantes reyndi að halda
fram að hefði gerst í sumar:
„Ég var tilbúinn að fara í lok fé-
lagaskiptagluggans í sumar en það
fór ekki í gegn. Það var allt annað
en ég sem kom í veg fyrir það. Ég
vildi fara, nema þá að ég hefði feng-
ið að spila með liðinu, þá hefði ég
viljað vera áfram, en það voru engar
líkur á því.“
„Stórfurðuleg staða“
Kolbeinn fær ekki að æfa með Nantes Hefur æft í sjö manna hópi síðasta
mánuðinn Gefur mikið að vera í landsliðshópnum gegn Frakklandi og Sviss
ÍÞRÓTTAHÚS
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Vonir standa til þess að karlalið
Gróttu fái heimild til þess að leika
sinn fyrsta heimaleik í Olísdeild
karla í handknattleik á þessu
keppnistímabili á sunnudaginn en
mistök við hönnun og viðbyggingu í
sumar urðu þess valdandi að
keppnissalur félagsins er ekki lög-
legur eins og sakir standa. Unnið
er að bráðabirgðalausn þessa dag-
ana svo hægt verði að fá und-
anþágu frá reglum Handknattleiks-
sambands Íslands um lágmarks-
öryggissvæði fyrir aftan hvort
markið. Að sögn Kára Garðars-
sonar, íþróttastjóra Gróttu, verður
að öllum líkindum ekki unnið að
varanlegri lausn fyrr en næsta
sumar þótt ekki sé hægt að útiloka
að farið verði í lagfæringar í kring-
um næstu áramót.
Í sumar var ráðist í að bæta að-
stöðu til fimleikaæfinga við íþrótta-
hús Gróttu á Seltjarnarnesi. Um
leið var bætt við búningsklefa fyrir
íþróttamiðstöðina og var ekki van-
þörf á. Einnig var lagt nýtt parkett
á íþróttasalinn, lýsing bætt, komið
upp nýjum áhorfendabekkjum og
fimleikagryfja sem var í öðrum
endanum var fjarlægð enda ekki
þörf fyrir hana lengur eftir að sér-
stakur fimleikasalur reis. Í þessum
breytingum var íþróttasalurinn
styttur um einn metra, úr 44 metr-
um í 43 metra. Þar með minnkaði
svæðið frá endalínu út í vegg við
hvorn enda sem þessu nam og nú
er svo komið að handboltamörkin
standa þétt upp við báða veggi á
norður- og suðurhlið. Fyrir vikið er
ekki hægt að ganga fyrir aftan
mörkin meðan á kappleik stendur
svo dæmi sé tekið. Lágmarkssvæði,
svokallað öryggissvæði, má ekki
vera minna en tveir metrar, eins og
það var, en er nú hálfur annar
metri. „Arkitektarnir gerðu mistök
og hafa viðurkennt þau. Síðan sést
mér og fleirum yfir þegar við skoð-
um teikningar enda datt mönnum
ekki í hug að það væri búið að
stytta salinn því það stóð bara alls
ekki til. Af því leiðir að þetta er
stórkostlegt klúður,“ sagði Kári í
gær.
Veggir klæddir með dýnum
„Þetta er vont en það er unnið að
lausn þannig að salurinn verður
stækkaður á ný um þann metra
sem vantar upp á. Í þær fram-
kvæmdir verður ekki farið strax.
Kannski um áramótin eða þá í síð-
asta lagi næsta sumar,“ sagði Kári,
sem hefur ásamt fleirum unnið að
lausn til bráðabirgða.
„Frá því að þetta klúður kom í
ljós hefur meðal annars verið unnið
í samstarfi við HSÍ við að gera sal-
inn sem öruggastan. Til dæmis hafa
veggirnir tveir verið klæddir með
dýnum. Fyrir vikið fengum við
heimild til þess að kvennaliðið okk-
ar lék heimaleik á síðasta fimmtu-
dag og að öllu óbreyttu leikur
karlaliðið heimaleik sinn við Hauka
í salnum á sunnudaginn. Við bind-
um vonir við að HSÍ muni veita
okkur undanþágu,“ sagði Kári sem
harmar mjög hvernig komið er.
„Mörgu var breytt til betri vegar
í íþróttasalnum en því miður þá
urðu þessi mistök sem við höfum
þurft að súpa seyðið af,“ sagði Kári
Garðarsson, íþróttastjóri Gróttu, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Þetta er stórkostlegt klúður
Keppnissalurinn á Seltjarnarnesi styttur og er ólöglegur fyrir handboltaleiki
Morgunblaðið/Eggert
Grótta Daði Laxdal Gautason og fé-
lagar bíða fyrsta heimaleiksins.
Íslenska karla-
landsliðið í
knattspyrnu kom
í gær saman til
æfinga í bænum
Saint-Brieuc, í
norðvesturhluta
Frakklands,
vegna komandi
leikja við heims-
meistara Frakka
og Svisslendinga.
Um er að ræða vináttulandsleik við
Frakka á fimmtudag og tilraun til
hefnda gegn Sviss á Laugardals-
velli á mánudag, í Þjóðadeildinni.
Flestallir leikmenn íslenska liðs-
ins tóku þátt í æfingu í gær en þá
voru þó ókomnir þrír leikmenn úr
23ja manna hópnum sem Erik
Hamrén valdi fyrir ferðina. Þeir
Rúrik Gíslason og Emil Hallfreðs-
son mættu í gærkvöld, eftir fyrstu
æfinguna. Markvörðurinn Ög-
mundur Kristinsson, sem kemur
aftur í hópinn eftir fjarveru, kemur
hins vegar ekki fyrr en eftir æfingu
í dag en landsliðsþjálfararnir gáfu
leyfi fyrir því að hann spilaði með
liði sínu Larissa í grísku úrvals-
deildinni í gærkvöld. Það var
ákveðið þrátt fyrir að landslið hafi
forgang fram yfir félagslið í þess-
ari viku vegna opinberra leikdaga
FIFA.
Hörður Björgvin Magnússon hef-
ur glímt við meiðsli aftan í læri eða
rassvöðva, en er að jafna sig af
þeim meiðslum og kveðst tilbúinn
að spila í leikjunum við Frakkland
og Sviss. sindris@mbl.is
Ögmundur
fékk leyfi
til að spila
Ögmundur
Kristinsson