Morgunblaðið - 29.10.2018, Síða 5

Morgunblaðið - 29.10.2018, Síða 5
Rosengård ðar í fótbolta og missti í leið- m varð Piteå nn fyrir Roseng- tókst að jafna. mínútunum og léku allan leik- u Gunnarsdóttur ðbjörg spilaði nað LB. ðsins og Elísabet m ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 ENGLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark Everton sem tapaði 2:1 fyrir Manchester United á Old Trafford í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær en Gylfi spilaði allan leikinn í liði Everton. Paul Pogba kom United yfir á 27. Mínútu með marki úr vítaspyrnu sem Ant- hony Martial fiskaði. Martial var svo á ferðinni í upphafi síðari hálfleiks þegar hann kom United 2:0-yfir og heimamenn í vænlegri stöðu. Gylfi Þór Sigurðsson sendi liðsfélaga sinn Richarlison í gegn á 76. mínútu en Chris Smalling, varnarmaður United, braut á Richarlison innan teigs og vítaspyrna dæmd. Gylfi steig á punktinn og skoraði af miklu öruggi en lengra komust leikmenn Everton ekki. Manchester United er í áttunda sæti deildarinnar með 17 stig en Everton í níunda sætinu með 15 stig. Liverpool á toppinn Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Car- diff sem tapaði illa fyrir Liverpool á Anfield á laugardaginn en leiknum lauk með 4:1-sigri Liverpool. Moha- med Salah kom Liverpool yfir strax á 10. mínútu og Sadio Mané tvöfald- aði forystu Liverpool á 66. Mínútu. Callum Paterson klóraði í bakkann fyrir Cardiff, ellefu mínútum síðar, en þeir Xherdan Shaqiri og Mané gerðu út um leikinn á lokamínút- unum og sigur Liverpool aldrei í hættu. Aron Einar fór af velli á 73. mínútu í stöðunni 2:0 en Liverpool er á toppi deildarinnar með 26 stig eftir fyrstu tíu leiki sína og hefur þriggja stiga forskot á Manchester City sem sækir Tottenham heim í kvöld. Car- diff er í sautjánda sæti deildarinnar með 5 stig, jafn mörg stig og Ful- ham, sem er í átjánda sætinu og fall- sæti. Burnley steinlá Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley sem tók á móti Chelsea á Turf Moor en leiknum lauk með þægilegum 4:0-sigri Chelsea. Burnley byrjaði leikinn ágætlega en eftir að Álvaro Morata skoraði fyrsta mark leiksins tók Chelsea öll völd og vellinum. Ross Barkley, Willian og Ruben Loftus- Cheek bætti við þremur mörkum til viðbótar fyrir Chelsea í seinni hálf- leik. Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn í liði Burnley en fékk úr litlu að moða. Burnley er í fimm- tánda sæti deildarinnar með 8 stig en Chelsea er í öðru sætinu með 24 stig eftir 10 leiki. Palace stöðvaði Arsenal Crystal Palace stöðvaði sig- urgöngu Arsenal þegar liðið mættust á Selhurst Park en Luka Milivojevic kom Palace yfir með marki úr víta- spyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Granit Xhaka jafnaði metin með lag- legu aukaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og Pierre-Emerick Auba- meyang kom Arsenal yfir, fjórum mínútum síðar. Milivojevic tryggði Palace stig með marki úr vítaspyrnu á 83. mínútu og lokatölur því 2:2. Crystal Palace er í fjórtánda sæti deildarinnar með 8 stig en Arsenal er í fjórða sætinu með 22 stig. Mark Gylfa dugði ekki til AFP Mark Gylfi Þór Sigurðsson minnkar muninn fyrir Everton á Old Trafford með marki úr vítaspyrnu.  Íslendingarnir byrjuðu allir í misstórum töpum  Þrjú lið áfram ósigruð í úrvals- deildinni  Newcastle og Huddersfield án sigurs  City getur skotist á toppinn Landsliðskonurnar í knattspyrnu Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir léku báðar sinn fyrsta leik fyrir Adelaide United í efstu deild ástralska fótboltans í fyrrinótt. Liðið heimsótti þá Melbourne Victory og varð niðurstaðan markalaust jafntefli. Melbourne var sterkari aðilinn í leiknum og fékk ófá færin til að skora fyrsta markið, en það tókst ekki. Fanndís fékk eitt besta færi Adelaide er hún komst í afar góða stöðu í vítateig heimamanna en hún skaut boltanum í varnarmann og rétt yfir markið. Gunnhildur lék allan leikinn á miðjunni og Fanndís fyrstu 79 mínúturnar á vinstri kantinum. Þær eru báðar á lánssamningi hjá Adelaide. Fanndís er samningsbundin Val og Gunnhildur samningsbundin Ut- ah Royals í Bandaríkjunum. Þær tóku tilboði Adelaide United um að leika með lið- inu næstu mánuði til þess að brúa ákveðið bil meðan ekki er leikið í Bandaríkj- unum og á Íslandi. johanningi@mbl.is Fyrsti leikurinn í Ástralíu Fanndís Friðriksdóttir Haukur Heiðar Hauksson þarf væntanlega að finna sér nýtt fé- lag eftir tímabilið. Bakvörð- urinn hefur lítið spilað með AIK á leiktíðinni en hann hefur verið í herbúðum sænska félagsins síðan 2015. Haukur hefur aðeins byrjað tvo deildarleiki fyrir AIK á tímabilinu. „Við erum sennilega með bestu vörnina í deildinni og við fáum lítið af mörkum á okk- ur. Það er erfitt fyrir mig að kvarta yfir spiltíma mínum. Ég er ánægður að hjálpa liðinu að berjast á toppi deildarinnar,“ sagði Haukur við Fotbollsk- analen í Svíþjóð. johanningi@mbl.is Er úti í kuldanum Haukur Heiðar Hauksson Íslandsmeistarar SA Víkinga unnu sannfærandi 6:1-útisigur á SR í Hertz-deild karla í íshokkíi á lauga- dag. SA vann einmitt leik liðanna í 1. umferðinni með sömu markatölu og er liðið á toppnum með sex stig. Hafþór Andri Sigrúnarson kom SA yfir á fjórðu mínútu en Robbie Sig- urðsson jafnaði sex mínútum síðar. Ingvar Jónsson og Thomas Stuart- Dant sáu hins vegar til þess að SA væri með 3:1-forskot eftir fyrsta leik- hluta. SA hélt áfram að bæta í forskotið í öðrum leikhluta og Jussi Sipponen og Andri Már Mikaelsson skoruðu sitt markið hvor í leikhlutanum og var staðan 5:1 fyrir þriðja og síðasta leik- hlutann. Jóhann Már Leifsson skoraði eina mark þriðja leikhlutans og tryggði SA annan sannfærandi sigur á Reykvíkingum. sport@mbl.is Annar öruggur sigur SA-inga Morgunblaðið/Eggert Á sigurbraut Leikmenn SA Víkinga í stórsókn í leik sínum bláklædda SR-inga. Morgunblaðið/Eggert amerískum fótbolta og unnu 50:0. England Manch. United – Everton................. 2:1  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton og skoraði eina mark liðs- ins úr vítaspyrnu á 77. mínútu. Burnley – Chelsea ............................ 0:4  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley. Liverpool – Cardiff .......................... 4:1  Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 73. mínúturnar með Cardiff. Brighton – Wolves ............................ 1:0 Fulham – Bournemouth.................... 0:3 Southampton – Newcastle ................ 0:0 Watford – Huddersfield.................... 3:0 Leicester – West Ham...................... 1:1 Crystal Palace – Arsenal .................. 2:2 Staðan efstu liða: Liverpool 10 8 2 0 20:4 26 Chelsea 10 7 3 0 24:7 24 Manch.City 9 7 2 0 26:3 23 Arsenal 10 7 1 2 24:13 22 Tottenham 9 7 0 2 16:7 21 Bournemouth 10 6 2 2 19:12 20 Watford 10 6 1 3 16:12 19 Manch.Utd 10 5 2 3 17:17 17 Everton 10 4 3 3 16:14 15 Wolves 10 4 3 3 9:9 15 Brighton 10 4 2 4 11:13 14 Leicester 10 4 1 5 16:16 13 West Ham 10 2 2 6 9:15 8 Cr. Palace 10 2 2 6 7:13 8 Burnley 10 2 2 6 10:21 8 Southampton 10 1 4 5 6:14 7 Cardiff 10 1 2 7 9:23 5 B-deild: Swansea – Reading .......................... 2:0  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 64. mínútu hjá Reading. Þýskaland Hannover – Augsburg...................... 1:2  Alfreð Finnbogason lék fyrstu 75. mínúturnar með Augsburg og skoraði annað mark liðsins. Werder Bremen – Leverkusen ........ 2:6  Aron Jóhannsson var ekki í leik- mannahóp Werder Bremen. B-deild: Paderborn – Sandhausen................. 3:3  Rúrik Gíslason lék allan leikinn með Saundhausen og lagði upp annað mark liðsins. A-deild kvenna: Wolfsburg – Leverkusen.................. 7:0  Sara Björk Gunnarsdóttir lék fyrstu 90. mínúturnar með Wolfsburg og skor- aði eitt mark. Spánn Barcelona – Real Madrid.................. 5:1 Atlético Madrid – Real Sociedad...... 2:0 Ítalía SPAL – Frosinone ............................ 0:3  Emil Hallfreðsson var ekki í leik- mannahóp Frosinone vegna meiðsla. B-deild: Padova – Spezia ............................... 0:0  Sveinn Aron Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekk Spezia. A-deild kvenna: Florentia – Roma ............................. 1:2  Kristrún Rut Antonsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Roma. Frakkland Mónakó – Dijon ................................ 2:2  Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leik- inn í marki Dijon. Rússland Rostov – Anzhi ................................. 1:0  Sverrir Ingi Ingason og Ragnar Sig- urðsson léku allan leikinn með Rostov, Björn Bergmann Sigurðarson lék fyrstu 70. mínúturnar með Rostov og skoraði, Viðar Örn Kjartansson kom inn á sem varamaður á 86. mínútu hjá Rostov. CSKA Moskva – Krasnodar ............. 1:2  Hörður Björgvin Magnússon og Arn- ór Sigurðsson léku allan leikinn með CSKA Moskvu.  Jón Guðni Fjóluson sat allan tímann á varamannabekk Krasnodar. Holland AZ Alkmaar – Heerenveen.............. 2:3  Albert Guðmundsson lék allan leik- inn með AZAlkmaar og skoraði annað mark liðsins. De Graafschap – Excelsior .............. 4:1  Elías Már Ómarsson lék fyrstu 82. mínúturnar með Excelsior og skoraði, Mikael Anderson var ekki í leikmanna- hóp Excelsior. Willem II – Utrecht .......................... 0:1  Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á sem varamaður hjá Willhem II á 82. mínútu. Belgía Lokeren – Oostende ......................... 0:0  Ari Freyr Skúlason var ekki í leik- mannahóp Lokeren. Sviss Grasshoppers – Basel....................... 1:3  Rúnar Már Sigurjónsson lék ekki með Grasshoppers vegna meiðsla. St. Gallen – Zürich........................... 3:2  Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leikmannahóp Zürich. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.